Þjóðmál - 01.06.2012, Qupperneq 14
Þjóðmál SUmAR 2012 13
Nýjasta skip íslenska fiskiskipaflotans, Heimaey VE 1, er glæsilegt uppsjávarveiðiskip í eigu Ísfélags Vest manna
eyja . Skipið er smíðað í Síle og kom til landsins 15 . maí sl . Það var fimm ár í smíðum, en smíði þess tafðist
vegna náttúruhamfara í Síle . Skipið er rúmlega 71 metra langt og 14 metra breitt . Burðargeta þess er um
tvö þúsund tonn í tíu kælitönkum . Skipið er búið fullkomnum tæknibúnaði og er hannað sérstaklega með
orkusparnað fyrir augum . Aðbúnaður áhafnar þykir til fyrirmyndar . Í skipinu eru fjórir einsmannsklefar og átta
tveggjamannaklefar, auk sjúkraklefa . Salerni er í hverjum klefa . Við komuna til heimahafnar sagði skip stjór inn,
Ólafur Einarsson, að skipið væri sjóborg, það hefði glöggt komið í ljós í ferðinni frá Síle .
síðar varð, með jarðskjálfta og flóðbylgju,
sem olli því að ekkert varð af smíði skips nr .
2 þar sem skipasmíðastöðin skemmdist illa
í flóð bylgjunni og smíði Heimaeyjar seink
aði um hátt í tvö ár .
En með góðum vilja og samstarfi Ís félags
ins og Asmar, sem ég tel vera einstakt, var
lokið við smíði Heimaeyjar sem nú er komin
heil í heimahöfn .
Skipið er einstakt að allri gerð, búið þeim
besta búnaði sem völ er á . Sérstaklega hefur
verið gætt að orkunýtingu og meðferð
aflans . Skipið er hannað af Rolls Royce .
Við stöndum því á tímamótum en smíði
Heimaeyjar sýnir svo ekki verður um villst
að eigendur Ísfélags Vestmannaeyja eru
ein lægir í þeirri vinnu sinni að byggja upp
glæsi legt sjávarútvegsfyrirtæki í fremstu röð
á heimsvísu . Það var vitaskuld ekki áhættu
laust að ákveða að hefja smíði tveggja nýrra
skipa . Þetta hefur heldur betur sýnt sig og
þar höfum við meðal annars þurft að eiga
við óblíða móður náttúru .
Nú eigum við hins vegar í annarri baráttu
sem virðist ætla að verða tvísýnni og erfiðari
og það er baráttan við stjórnvöld á Íslandi .
Hver getur trúað því að ríkisstjórn Íslands
sé staðráðin í því að ráðast að undirstöðu
búsetu hér á landi, sjávarútveginum og
veikja hann?