Þjóðmál - 01.06.2012, Side 25
24 Þjóðmál SUmAR 2012
Ein af söluhæstu bókum þessa vors er Ábyrgða kver eftir Gunnlaug Jónsson .
Bókin fjallar almennt um gildi þess í mann
félaginu að hver og einn axli ábyrgð á gjörð
um sín um en með sérstakri skírskotun til
fjár mála kreppunnar sem skall á 2008 og
falls ís lensku bank anna, sbr . undirtitil
kvers ins: „Bankahrunið og lærdómurinn
um ábyrgð .“
Á bókarkápu segir:
„Ábyrgðarkver fjallar um hvernig per
sónuleg ábyrgð var aftengd á árunum fyrir
hrun með bæði raunverulegri og ætlaðri
ríkisábyrgð á bönkum . Þannig gátu bankar
farið með peninga annarra að eigin vild án
eðlilegs aðhalds eigendanna .
Höfundur dregur svo þann lærdóm af
banka hruninu að persónuleg ábyrgð eigi
að vera sem mest á öllum sviðum og skapi
jafnvægi . Boðskapurinn á því ekki aðeins
við um fjármál eða stjórnmál, heldur
einnig einkalíf og önnur mál . Þannig
kann boðskapurinn að gagnast lesendum í
persónulegu lífi þeirra .
Engin manneskja er dæmd í bókinni fyrir
gjörðir sínar í tengslum við bankahrunið,
heldur er leitast við að ræða á hlutlausan hátt
um ástæður þess . Umfjöllunin er á þann hátt
utan við pólitískar skotgrafir . Eins ætti fólk
bæði hægra og vinstra megin í stjórnmálum
að geta fallist á þann boðskap að ríkið eigi
ekki að borga tap einkarekinna fyrirtækja
þegar eigendurnir fá hagnaðinn .“
Hverjum kafla bókarinnar fylgir dæmisaga
sem er ætlað að auðvelda lesandanum að
tengja boðskap hans við daglegt líf . Hér fer
á eftir dæmisaga við 6 . kafla bókarinnar, en
sá kafli ber yfirskriftina: „Ábyrgð, frelsi og
friður við náungann fara saman“:
Það er föstudagsmorgunn . Karlarnir safnast saman í heita pottinum til að
ræða þjóðfélagsmál . Gunnleifur Herjólfs
son, fyrrverandi alþingismaður, talar
venju lega mest og hæst . Körlunum finnst
mikið til þess koma að eiga spjall við
þennan aðsópsmikla leiðtoga og hlusta í
andakt .
Sigurfreyr, ungur maður sem rekur lítið
iðnfyrirtæki, gerir sér sýnilega ekki grein
fyrir því hvílíkt mikilmenni Gunnleifur er
og talar af fullu sjálfstrausti, án þess að hafa
fengið vísbendingar um að skoðanir hans
séu að skapi þingmannsins . Hann talar
fjálg lega um að hann ætli að byggja upp
stórt fyrirtæki með tímanum .
„Margur verður af aurum api,“ segir
Gunnleifur djúpri og kreistri röddu, „þetta
Ábyrgðakver Gunnlaugs
Jónssonar