Þjóðmál - 01.06.2012, Side 26
Þjóðmál SUmAR 2012 25
að stjórna annarri manneskju gerir það með
hennar samþykki . Hann þvingar engan .
Hann bara lokkar . Hann býður eitthvað í
staðinn . En sá sem notar vald stálsins hótar
eða beitir ofbeldi . Hann þarf ekki samþykki .
Hann einfaldlega skipar fyrir . Gull er mýkra
en stál á fleiri en einn veg .“
„Ég sé ekki að það sé svo mikill munur,“
segir þingmaðurinn fyrrverandi, „peninga
valdið hefur drottnað yfir fólki alltof lengi .
Það tekur burt reisn og sjálfsvirðingu
mannsins . Það þarf að taka gullið af þessum
auðjöfrum og setja skynsamlegar reglur um
notkun þess .“
„En það vald sem á að nota í staðinn til að
samhæfa starf mannanna, stálið, leyfir það
fólki að halda nokkurri reisn? Sá sem beitir
valdi stálsins, afhendir hann byssuna eða
sverðið fórnarlambi sínu? Má fórnarlambið
svo nota valdið næst? Nei . En sá sem beitir
gulli notar vald sitt eingöngu með því að
láta það af hendi . Hann lætur þann fá gullið
sem hann hefur vald yfir . Gullið er eins og
kefli í boðhlaupi, þar sem röðin er komin
að meintu fórnarlambi að fara næst með
valdið og hlaupa næsta sprett .“
„Þú setur þetta allt upp með vitlausum
hætti . Gullið leiðir samt til illra verka . Fólk
jafnvel drepur fyrir peninga . Fólk notar
gullið til að kaupa sér völd og þessi vopn
sem þú kallar vald stálsins .“
„Ástin getur leitt fólk til illra verka . Gull
er verkfæri sem nota má bæði til góðs og
ills . Það er aðeins vont þar sem það leiðir
fólk á glapstigu valds stálsins . Og ef við
viljum komast hjá því: Hvers vegna að
stökkva beint í vald stálsins sem við vorum
að reyna að forðast? Erum við þá ekki orðin
það afl sem við ætluðum að berjast gegn? Er
það ekki eins og að brenna mat til að forða
honum frá skemmdum?“
Karlarnir gjóa augunum hver til annars .
Þeir eru sammála um að þessi Sigurfreyr
hafi fært sig of langt upp á skaftið .
gull sem þú dáir hefur leitt margan manninn
villan vega . Græðgin veldur illvirkjum .
Græðgi í gull . Græðgi í völd . Gull er vald .“
„Það er satt,“ segir Sigurfreyr, „gullið
lokkar marga til ills, rétt eins og það lokkar
reyndar marga líka til góðs . Það má líka nota
bæði til góðra og illra hluta . En það leiðir
hugann að öðrum málmi – eða reyndar
málmblendi: stáli!“
„Hvað meinarðu, drengur, hvað með
stál?“
„Stál er táknmynd annars konar valds .
Stál er notað í byssur, sprengjur og sverð .
Mér finnst að margir sem tala gegn valdi
gullsins vilji einmitt nota vald af þessu tagi
í staðinn . Setja hömlur sem verður aðeins
framfylgt með stáli . En gull er miklu jafnara
og sanngjarnara vald . . .“
„Vitleysa . . .“
„Leyfðu mér að klára . Sá sem notar gull til