Þjóðmál - 01.06.2012, Page 33
32 Þjóðmál SUmAR 2012
slíkum fjárfestingum . Ekki er ólíklegt að
í boði verði óverðtryggð lán með breyti
legum vöxtum, eins og eru nú þegar í
boði í íslenskum krónum, en það kann að
taka einhvern tíma að þróa óverðtryggð
fasteignalán hérlendis með föstum vöxtum
til lengri tíma en 5–10 ára í senn .
Auðveldar afnám hafta á fjármagns
flutn ingum:
Erfitt er að átta sig á hvernig menn hafa
talið sér trú um að upptaka erlends gjald
miðils geti auðveldað afnám hafta á fjár
magns flutningum . Þvert á móti mun upp
taka erlends gjaldmiðils áður en höftin hafa
verið afnumin gera afnám þeirra erfiðari .
Þeir sem aðhyllast aðild að ESB hafa bent
á að með upptöku evrunnar myndu allar
krónur breytast í evrur og þær gjaldgengar
sem slíkar hvar sem er á evrusvæðinu . Það
er rétt, svo langt sem það nær, en evra
verður hins vegar ekki tekin upp fyrr en
Ísland hefur uppfyllt skilyrði Maastricht
sáttmálans . Eitt þeirra er að engin höft
hafi verið á viðskiptum með gjaldmiðil
landsins í nokkurn tíma áður en aðild fæst
að evrusamstarfinu . Því yrði að vera búið að
afnema höftin löngu áður en hægt yrði að
taka upp evruna .
Með einhliða upptöku erlends gjaldmið
ils aukast líkur á greiðslufalli ríkisins all
verulega; það á í raun einnig við um upptöku
evrunnar og upptöku annars gjaldmiðils
með tvíhliða samningi við útgáfuríki
viðkomandi gjaldmiðils .4 Ríkissjóður gæti
átt mjög erfitt með að endurfjármagna
sig eftir upptöku erlends gjaldmiðils og
bankar myndu að öllum líkindum lenda
4 Það er reyndar afar ótrúverðugt að erlent ríki sé líklegt til
að gera samning við Ísland sem fæli í sér að viðkomandi ríki
svo gott sem gæfi íslenska ríkinu og bönkunum peninga til
þess að geta staðið við innlausn skuldbindinga til skemmri
tíma eða jafnvel nokkurra ára . Án slíkrar gjafar gætu
íslenskir bankar ekki millifært nýju dollarana (eða hvað sem
gjaldmiðillinn heitir) til annarra landa og kæmust fljótt í
greiðsluþrot, sama hversu mikið eigið fé þeir hefðu .
í lausafjárvanda, nema að sett yrðu enn
víðtækari gjaldeyrishöft en nú eru til þess að
koma í veg fyrir útflæði nýja gjaldmiðilsins
til annarra landa . Það gæti hreinlega komið
upp skortur á lausu fé í umferð, sem kæmi í
veg fyrir að hægt yrði að eiga viðskipti með
brýnustu nauðsynjar og ríkissjóður gæti
jafnvel lent í því að geta ekki greitt laun, ef
þeir sem eiga í dag kröfur á ríkið og innlán
í bönkum færu með fjármagnið úr landi í
formi nýja gjaldmiðilsins .
Menn ættu fremur að einbeita sér að því
að losna við núverandi höft á fjár magns
flutningum sem fyrst, því að höftin eru
mjög skaðleg efnahagslífi í landinu . Telji
menn að æskilegt sé að taka upp erlendan
gjaldmiðil, þá yrði það mun auð veldari
og sársaukaminni aðgerð eftir að gjald
eyrishöftin hafa verið afnumin .
*
Það er undarlegt að á Íslandi skuli ýmsir vel menntaðir menn hafa fyllst áhuga
á að leggja niður krónuna og taka þess í
stað upp erlendan gjaldmiðil, þegar á sama
tíma má sjá hversu miklum skaða slík
aðgerð hefur valdið fjölda landa í Evrópu á
undan förnum árum . Lönd þessi tóku upp
erlend an gjaldmiðil, evruna, sameiginlegan
gjald miðil ESB . Eftir sem áður höfðu þessi
lönd nokkuð um stjórnun peningamála að
segja, a .m .k . að forminu til, ólíkt því ef þau
hefðu einhliða tekið upp Bandaríkjadollar
eða Kanadadollar . Ekki verður sagt að upp
taka evrunnar hafi verið farsæl ákvörð un
fyrir þessi lönd . Í dag standa þau frammi
fyrir gríðarlegum efnahagslegum, pólitísk
um og samfélagslegum vanda, sem enn
sér ekki fyrir endann á; vanda sem reynist
erfitt að leysa án þjóðargjaldmiðils . Þó svo
að veru legar líkur séu á að einhver ríki
muni hætta evru samstarfinu og taka að
nýju upp eigin gjaldmiðil verður það ferli