Þjóðmál - 01.06.2012, Side 43
42 Þjóðmál SUmAR 2012
erlendra aðila bætast krónueignir íslenskra
fjárfesta sem læstar eru í landinu og kynnu
að leita út fyrir landsteinana við afnám
hafta . Enda virðast margir komnir á þá
skoðun að eina leið okkar úr höftunum sé
upptaka annarrar myntar með formlegri
aðild að myntsamstarfi .
Aðrir álíta að þrátt fyrir allt sé önnur
lausn til á vandanum, lausn sem krefjist ekki
upptöku annarrar myntar . Margir þeirra
telja helsta ágalla leiðar Seðlabankans hversu
hægt hefur gengið að ýta aflandskrónueig
endum úr landi . Lausnin á þessum vanda sé
að veita aflandskrónueigendum sterka hvata
til að taka þátt í útboðum Seðlabankans, stilla
þeim nánast upp við vegg . Þetta megi til að
mynda gera með því að gera þeim grein fyrir
því að losi þeir ekki krónur sínar úr landi í
útboðum Seðlabankans verði þær fastar hér
um lengri tíma eftir að gjaldeyrishöftum
er að öðru leyti aflétt .2 Önnur leið, sem
nefnd hefur verið, er að setja sérstakan,
háan útgönguskatt á aflandskrónur þegar
frjálsir fjármagnsflutningar verða heimilaðir
á nýjan leik .3
Ýmsar spurningar vakna þegar úrræði af
þessu tagi eru nefnd sem lúta bæði að hag
rænum og lagalegum álitamálum . Hvað
sem þeim líður þá hef ég sannfærst um að
framkvæmdalegir annmarkar útiloki í reynd
leiðir sem byggja á framangreindum afar
kostum sem aflandskrónueigendum verði
settir . Verði gjald eyrisviðskipti frjáls að öðru
2 Fjöldi hagfræðinga hefur talað fyrir þessari leið . Friðrik
Már Baldursson gerði grein fyrir einni mögulegri útfærslu
í erindi sínu á nýlegri ráðstefnu Samtaka atvinnulífsins
(sjá, http://www .sa .is/files/20120516SAFridrik_Baldurs
son_2021759322 .pdf) . Yngvi Örn Kristinsson viðraði
svipaða hugmynd á fundi Félags viðskipta og hagfræðinga
22 . mars . Skýrsla hóps sérfræðinga, sem Viðskiptaráð hafði
forgöngu um útgáfu á, viðrar einnig þennan möguleika
þótt í henni sé stefnt að afnámi hafta á allar krónueignir á
sama tíma (sjá, http://www .vi .is/files/2011 .12 .14Afnamsa
aetlun_409288260 .pdf) .
3 Áætlun Samtaka atvinnulífsins um afnám gjaldeyrishafta
leggur til að þessi leið verði farin ef þörf reynist . (sjá, http://
www .sa .is/files/Áætlun%20SA%20um%20afnám%20
gjaldeyrishafta%202012_1349650619 .pdf ) .
leyti fæ ég ekki séð hvernig megi fyrirbyggja
að aðilar, sem mega skipta krónum í erlenda
gjald miðla, eigi viðskipti á bak við tjöldin
við aflands krónueigendur . Þannig verður
hótunin um að festa þær krónur marklítil .
Fleiri leiðir hafa verið nefndar, s .s .
skiptigengisleið Lilju Mósesdóttur . Hún
gengur út á að aflandskrónueigendum verði
boðið að fjárfesta til langs tíma . Krónueign
þeirra sem hafni því verði færð niður áður en
skipti í erlenda mynt er heimiluð . Í nýlegri
grein gefur Lilja til kynna að niðurfærsla
kynni að nema 80% .4
Að mínu viti verður að gjalda varhug
við þessari leið og öllum leiðum sem gera
ráð fyrir annarri meðferð aflandskróna
en annarra króna í afnámsferlinu . Slíkar
aðgerðir hlyti að þurfa á byggja á grunni
neyðar réttar með vísan til almannahags
muna . Erfitt er að færa sönnur á þá neyð
sem gæti réttlætt þessi úrræði . Reikna verður
með að aflandskrónueigendur myndu leita
réttar síns . Yrði hægt að afnema höftin við
þær aðstæður?
Þá verður að huga að orðspori landsins .
Það er eitt að grípa til neyðarráðstafana
þegar raunveruleg neyð er fyrir hendi . Það
er annað þegar aðstæður eru í líkingu við
þær sem við nú búum við . Helst virðist
eiga að réttlæta þær með því að í landinu
séu miklar krónueignir í eigu útlendinga .
Það er tæplega nægileg réttlæting fyrir svo
afdrifaríkum aðgerðum . Það yrði að færa
fyrir því óyggjandi rök að miklir almanna
hagsmunir væru að veði og önnur vægari
úrræði stæðu ekki til boða . Annars væru
send afgerandi skilaboð um hvað stjórn
völd telji boðlega hegðun gagnvart erlend
um fjármagnseigendum . Hvaða gögn um
væri hægt að tefla fram í þeim mál flutn ingi?
Styðja niðurstöður útboða Seðla bank ans
hann?
4 Sjá, http://liljam .is/greinasafn/2012/april2012/skipti
gengis leidinskaparsamstodu/ .