Þjóðmál - 01.06.2012, Qupperneq 57
56 Þjóðmál SUmAR 2012
Í dag, rúmum þremur árum eftir banka
kreppuna 2008, glíma menn við mikla
erfið leika í spænska bankakerfinu . Sumir
óttast jafnvel um stöðu banka í fleiri
Evrópulöndum, þrátt fyrir að þeir hafi
notið lausafjárstuðnings Evrópska seðla
bank ans .
Frá árinu 2010, ári eftir að ríkisstjórn
Jóhönnu Sigurðardóttur settist að völd
um, hafa 8 fjármálafyrirtæki fallið hér á
landi . Tvö þeirra, Byr hf . og SpKef, voru
ný fjármálafyrirtæki sem stofnuð voru af
Steingrími J . Sigfússyni ráðherra . Hver ber
ábyrgðina á því og hvaða viðbragðs áætl anir
voru fyrir hendi? Hvenær var rætt um þau
mál í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðar dóttur?
Ekki fyrr en hrun þeirra fjármála fyrir tækja
var óumflýjanlegt .
Alþingismennirnir, sem skipuðu meiri
hlutann, ákváðu að ákæra í blindni eftir
skýrslu rannsóknarnefndar Páls Hreins
sonar . Það gerðu þeir án þess að afla sér
gagna, kynna sér sjónarmið og rök þeirra
sem meiningin var að ákæra . Þingmenn
irnir gættu sín ekki á því að nefndarmenn
irnir í rannsóknarnefndinni voru búnir að
komast að efnislegri niðurstöðu löngu áður
en rannsókn lauk . Einn nefndarmaður lýsti
niðurstöðunni í mars 2009, þegar nefndin
hafði rétt hafið störf . Annar nefndarmaður
lýsti „svörtum niðurstöðum“ í ágúst 2009
eða 8 mánuðum áður en skýrsla rann
sóknarnefndarinnar kom út . Sá þriðji
lýsti geðhvörfum sínum vegna vinnu við
skýrsluna þremur mánuðum áður en hún
kom út . Við það má bæta að málsmeðferð
rannsóknarnefndarinnar stóðst engar kröfur
og besta dæmið um það er hvernig nefndin
lítilsvirti andmælarétt .
Það er umhugsunarefni að þegar þrjú og
hálft ár er liðið frá bankahruni er búið að
ákæra og dæma fyrrum forsætisráðherra .
Lítið er hins vegar að frétta af ákærum á
hendur bankamönnum .
Kom bankahrunið stjórnendum bank
anna ekki við?
Eyða fyrst og afla svo!
R íkisstjórnin hefur kynnt áætlun um hvernig stórskuldugur ríkisjóður
geti eytt tugum milljarða til viðbótar á
næstu árum . Er það nefnt fjárfestingar
áætlun .
Þessi yfirlýsing er um stóraukinn hlut
rík is ins í efnahagslífi landsmanna er jafn
framt árétting ríkisstjórnarinnar um að
hún muni aldrei lækka þá skatta sem hún
hefur hækkað á undanförnum árum . Hún
ætlar þvert á móti að halda áfram á sömu
braut . Engu á að skila til lands manna með
lækkun á sköttum .
Ríkisstjórnin hefur tvær hugmyndir um
hvernig fjármagna megi þessa „fjárfest
ingaráætlun .“
• Snarhækkun veiðigjalds á sjávar út veg
inn .
• Sölu á hlut ríkisins í viðskiptabönkun
um þremur .
Hvorki er búið að samþykkja laga frum
varp um aukna skattlagningu á sjávar
útveginn né gera áætlun um sölu á hlut
rík is ins á bönkunum . En ríkisstjórnin hins
vegar þegar búin að ákveða að eyða hugsan
legum tekjum af þessum aðgerðum . Eyða
fyrst og afla svo .
Vefþjóðviljinn á andriki.is, 19 . maí 2012 .