Þjóðmál - 01.06.2012, Side 60
Þjóðmál SUmAR 2012 59
er atvinnu stig jafn an betra og jöfnuður og
hagv öxtur meiri í hagkerfum með sjálf
stæðan gjald miðil . Loks má nefna að ef
hér væri tek inn upp erlendur gjaldmiðill
yrði hann iðu lega of sterkur eða veikur
fyrir hag kerfi okkar .
Það er líka nauðsynlegt að leiðrétta þá
bábilju að hagkerfi Íslands sé of smátt til
að bera sjálfstæðan gjaldmiðil . Það fer lítið
fyrir kenningum um vandamál of smárra
myntsvæða . Hagfræðin fjallar meira um
vandamál stærri myntsvæða og þau vanda
mál sem upp koma þegar ólík ríki reyna að
búa við sameiginlega mynt .
Hvað gefur gjaldmiðlum verðgildi
Hvernig getur seðill, sem er í raun ekkert nema loforð um greiðslu í
öðrum eins seðli, haft verðgildi? Hvers
vegna samþykkir fólk krónur sem greiðslu
fyrir vinnu og vöru?
Skýringin felst í því að ríkið leggur á skatta
í íslenskum krónum, ríflega fimm hundruð
milljarða á ári, og myndar þannig kjölfestu
í eftirspurn eftir krónunni . Á meðan ríkið
innheimtir skatta í krónum, munu flestir
landsmenn og fyrirtæki hafa þörf fyrir
krónur til að greiða skatta . Þar með hafa
krónur verðgildi .
Það er samt skilyrði að peningamagnið
(seðlar, mynt og lausar innstæður) sé
hæfilegt og breytist í takt við vöxt og þarfir
hagkerfisins . Vaxi peningamagnið of hratt,
fer þannig að fólk þarf sífellt fleiri krónur til
að kaupa sömu vörur en áður . Það verður
verðbólga .
Bankar búa til rafkrónur
með útlánum
Enn eru margir sem trúa því að bankar þurfi að safna innlánum (sparnaði) til að
geta veitt útlán . Staðreyndin er sú að banki
getur búið til nýjar rafkrónur og lánað þær
út svo lengi sem bankinn uppfyllir skilyrði
um eiginfjárhlutfall . Viljugur lántaki er allt
sem banki þarf til að setja nýjar krónur út
í hagkerfið .
Fjármálaeftirlitið setur bönkum skilyrði
um eiginfjárhlutfall (16%) og bankar á
Íslandi geta því veitt lán sem nema ríflega 6
földu eigin fé bankans .
Þegar banki veitir lán getur hann gert það
með því einfaldlega að hækka innstæðuna
á hlaupareikningi lántakandans . Þessar
viðbótarrafkrónur á hlaupareikningi lán
takandans eru ekki tilfærsla á sparnaði
heldur aukning á peningamagni í landinu .
Raf krónur, sem bankar búa til með þessum
hætti, eru jafngjaldgengar í viðskiptum og
seðlar og mynt sem Seðlabankinn setur í
umferð .
„ . . . bankar veita lán einfaldlega með því
að hækka innstæðuna á hlaupareikningi
lántakans, lántakinn getur síðan notað
innstæðuna sem greiðslu hvar sem er . Bankar
veita lán með því að búa til peninga .“
– Bank of England Quarterly Bulletin
2008 Q1 | Volume 48 No. 1.
Hvernig peningamagni er stýrt
Eins og fram hefur komið hefur Seðlabankinn sett alls 40 mia króna í seðlum
og mynt í umferð en bankar hafa sett 1 .000
mia af rafkrónum (lausum innstæðum) í
umferð . Bankarnir eru því í aðalhlutverki
við framleiðslu gjaldmiðilsins .
Markmið Seðlabankans er verðstöðugleiki
en markmið einkabanka er að sjálfsögðu að
hámarka arðsemi eigenda sinna . Banki, sem
gætir eigin hagsmuna, vill auka útlán (þenja
út peningamagn) á uppgangstímum en draga
úr útlánum (draga saman peningamagn) í
niðursveiflu . Bankar hafa því innbyggðan
hvata til að magna hagsveiflur í stað þess að
dempa þær .