Þjóðmál - 01.06.2012, Page 66
Þjóðmál SUmAR 2012 65
snautt andrúmsloft . Fólkið er illa klætt, fáir
bílar í umferð, ekkert til í búðunum, mörg
hús ennþá eyðilögð eftir stríðið og lögregla
og hermenn alls staðar . Og auðvitað
hefur maður það á tilfinn ingunni að vera
lítt velkominn gestur enda að sjálfsögðu
yfirlýstur andstæðingur þessa svínarís alls .
Nokkurt nervösitet skapaðist við það
að Jórdaninn skýrði frá því að hann hefði
notað tækifærið og komið með í bílnum
svolítið af kaffi og góðri niðursuðu í skjóli
okkar til vinafólks síns austan megin . Var
nú ekki um annað að ræða en að leyfa
stráknum að afhenda þesa gjöf sem eins
gat náttúrlega verið svartamarkaðsgóss . Var
nú farið inn í ósköp leiðinlegt íbúðahverfi
og þó þar væri ekkert um að vera stóðu
tveir Vopomenn þar með alvæpni . Hvarf
nú Múhammeð, sem svo heitir, með
bréfpoka sinn inn í eitt húsið . Þó nokkuð
tafðist það að hann stæði við loforð sitt og
kæmi strax aftur og var nú annar Vopo
inn farinn að hafa vaxandi áhuga á okkur
þremenningunum sem sátum sem fastast í
Opelnum . Lykillinn var í bílnum og var ég
farinn að hugleiða að stinga af og halda til
landamærapóstsins án bílstjóra hvernig sem
því kynni að verða tekið, þegar Múhammeð
kom hröðum skrefum . Honum var sýnilega
brugðið og var voteygur . Kom þá sagan .
Vinirnir voru gömul hjón sem hann bjó hjá
áður en múrinn kom og höfðu þau nánast
gengið honum í foreldra stað . Þau áttu nú
mjög bágt, umkomulaus og veik, og hafði
heimsóknin tekið mjög á unga manninn
sem þótti afar vænt um þau bæði . Enginn
vafi var í mínum huga á trúverðugleika
frásagnarinnar og var ég feginn að við
urðum þarna að liði þó óumbeðið væri
og sennilega ekki alveg áhættulaust . En
ég varpaði öndinni léttar þegar við vorum
komin aftur í gegnum Checkpoint Charlie,
hafandi skrúfað niður rúðuna og dregið að
mér ferskt haustloft hins frjálsa heims .
Við snæddum hádegisverð með tveim
flóttamönnum að austan og hlýddum
á hetjulega frásögn þeirra af flóttanum .
Skelfilegt er það nú að þjóðir Austur
Evrópu skuli lúta kúgun og ofbeldi Rússa
og afvegaleiddra fylgifiska þeirra og að þetta
sé gert í nafni þess sem kallað er hugsjón .
Fáránlegt . Þá var flogið eftir sk . „corridor“
— flugleið sem Sovét leyfir til Hamborgar
því Berlín er jú á þeirra hernámssvæði . Farið
á þetta afar stásslega, nýja hótel og eru hér
ferðalok í þessari boðsferð til Þýskalands
fyrir okkur Varðbergsfélaga . Við Eykon
erum með samliggjandi herbergi og erum
í þessum skrifuðu orðum að sammælast
um að fá okkur bjór . Og þegar maður lítur
Einar Benediktsson
starf aði í utanríkis þjón
ustunni í tæpa fjóra
ára tugi og var sendi
herra í Genf, París,
Lond on, Brussel, Osló
og Washington . Þessi
mynd var tekin af Einari
og eiginkonu hans, Elsu
Pétursdóttur, eftir af
hend ingu trúnaðar bréfs
hjá Elísabetu II . Eng
lands drottn ingu 1982 .