Þjóðmál - 01.06.2012, Qupperneq 86
Þjóðmál SUmAR 2012 85
Austurlands batni, t .d . með bættum flug
samgöngum og um leið bætir það sam
keppnisstöðu annarra ferðaþjónustuaðila á
svæðinu . Í reynd má þannig segja að verið
sé að stækka kökuna og að þessi fyrirhugaða
upp bygging sé líkleg til að verða annarri
ferða þjónustu á svæðinu mikil lyftistöng, auk
þess sem þetta mun styðja við átak í markaðs
setningu á Norðurlandi sem áfanga staðar
fyrir erlenda ferðamenn . Frekari fregna af
fram gangi verkefnisins má vænta á komandi
vikum .
Huang Nubo sagði þriðjudaginn 17 . apríl, á kaupstefnu í kínversku borg
inni Shanghai, að hann vonaðist til að geta
skrifað undir samning um uppbyggingu
á Grímsstöðum á Fjöllum þrátt fyrir
erfiðleika við framkvæmd áforma sinna .
Kom þetta fram í frétt chinadaily.com.cn
mið vikudaginn 18 . apríl .
Í fréttinni sagði að háttsettir íslenskir
embættismenn hefðu stutt umsókn hans
um kaup á Grímsstöðum en innan
ríkisráðuneytið á Íslandi hefði í nóvember
úrskurðað að umsóknin félli ekki að
íslenskum lögum um eignarhald útlend
inga á landi . „Þrátt fyrir að ekki gengi allt
að óskum hafnaði ríkisstjórnin tillögu
okkar ekki alfarið,“ sagði Huang . „Líklega
munum við ganga frá fjárfestingunni innan
tveggja mánaða .“
Í fréttinni var haft eftir Þórði Hilmars
syni, forstöðumanni Fjárfestingarstofunnar,
sem er hluti Íslandsstofu, að unnið væri að
breyt ingum á lögum til að koma til móts
við fjárfesta frá löndum á borð við Kína .
Þórður sat kaupstefnuna í Shanghai .
Huang Nubo sagði að verkefnið á Íslandi
yrði hornsteinn sóknar hans á Norður lönd
um næsta áratug . Næst ætlaði hann að láta
að sér kveða í Danmörku og sagðist oft
hafa rætt við danska embættismenn um
hugsanlega fjárfestingu . Hann mundi auk
þess fara á skíði á Grænlandi með danska
sendiherranum í Kína til að kynnast fjár
festingarverkefnum þar .
Hinn 18 . apríl 2012 birtist frásögn á
bandaríska vefmiðlinum forbes.com þar sem
haft er eftir Þórði Hilmarssyni að Nubo
verði líklega leigt landið á Grímsstöðum til
langs tíma .
Föstudaginn 4 . maí 2012 ræddi ríkisstjórn Íslands drög að samkomulagi við
Huang Nubo . Samkomulagið var gert án
vit undar Ögmundar Jónassonar innanríkis
ráð herra . Í kínverskum fjölmiðlum hreykti
Huang Nubo sér af því að hafa sniðgengið
Ögmund og lét eins og þar með væri hann
kominn á beinu brautina til Grímsstaða .
Eftir ríkisstjórnarfundinn kom hins vegar
í ljós að ekkert samkomulag hafði verið gert .
Ágreiningur var til dæmis um hvort Huang
fengi Grímsstaði til leigu til 40 ára eða
99 ára . Spurningin virtist ekki snúast um
verð, 800 milljónir króna sem sveitarfélög
ætluðu að taka að láni og innheimta síðan
frá Huang .
Áhugamenn um fjárfestingu Huangs
Nubos fögnuðu fréttunum frá Shanghai
og um sam komulagið . Var til dæmis látið
í veðri vaka að það væri nú mikill munur á
þess um viðskiptum eða því þegar kanadísk
ur fjárfestir stofnaði „skúffu fyrir tæki“ í Sví
þjóð til að geta eignast hlut í HS Orku .
Nú væri allt uppi á borðinu og ekki beitt
neinum brögðum!
Laugardaginn 5 . maí 2012 sagði Huang
Nubo við kínverska fjölmiðla að samn
ingur hans um land á Íslandi hefði verið
samþykktur föstudaginn 4 . maí eftir að
háttsettir íslenskir embættismenn hefðu
fundað um málið . Á fundinum hefði nefnd
fulltrúa efnahags, fjármála og iðnaðar
ráðherra Íslands samþykkt að leigja Huang
landið í stað þess að selja honum það .
Huang hafði að hans sögn fengið þessar
góðu fréttir frá umboðsmanni fyrirtækis síns