Þjóðmál - 01.06.2012, Qupperneq 88
Þjóðmál SUmAR 2012 87
Það kemur okkur öllum við þegar eignar
haldi eða afnotarétti á landi okkar er ráð
stafað út fyrir landsteinana . Kínverski auð
maðurinn hrósar happi yfir að vera laus við
innan ríkisráðherrann . En skyldi hann vera
laus við íslenska þjóð? Ég held ekki . Almennt
vilja Íslendingar ekki verða hráefnanýlenda
fyrir erlenda auðmenn, jafnvel þótt stöku
sveitarstjórnarmanni glepjist sýn . Þannig var
það líka í Mið Ameríku þegar bananaekrurnar
voru seldar .
Ég held að erlendir auðkýfingar eigi að fara
varlega í að hreykja sér á kostnað íslenskra
stjórnmálamanna sem vilja sporna gegn því
að vaðið sé á skítugum skónum inn á Ísland .
Föstudaginn 4 . maí sagði Huang Nubo við
China Daily:
Ég held að niðurstaðan [vegna Grímsstaða
á Fjöllum] verði ekki langt frá því sem ég
vonaðist eftir . Með því að leigja landið
er ólíklegt að málinu verði hafnað, því
innanríkisráðherrann hefur ekkert með málið
að gera í þetta skipti .
A tvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar sagði á vefsíðu sinni hinn 7 . maí að rammi
Huangs Nubos gerði ráð fyrir kaupum
sveitarfélaga á jörðinni og leigu hennar
til 40 ára, án fjárhagslega íþyngjandi eða
áhættusamra skilyrða fyrir sveitarfélögin .
Eftir þessum ramma hefði verið unnið á
ýmsum vígstöðvum undangengnar vikur,
en hugmyndafræði verkefnisins hefði verið
kynnt í ríkisstjórn hinn 4 . maí 2012 .
Vinna atvinnuþróunarfélaga Eyfirðinga
og Þingeyinga hefði miðað að því að
koma fram með útfærslu á því hvernig
verkefnið gæti komist á laggirnar í sem
mestri sátt og jafnframt á þann hátt að
allra hagsmuna væri gætt hvað varðaði
umgengnisrétt almennings, þróun lífríkis
á landinu, sjálfbæra nýtingu auðlinda og
atvinnusköpun og vöxt á starfssvæðinu .
Fyrirliggjandi áætlanir tryggðu um
gengnis rétt almennings betur en nú væri og
römm uðu inn sérstök skilyrði og takmark
anir á landnýtingu og auðlindum sem ekki
væru til staðar nú . Eignarhald á landinu
yrði í höndum kjörinna fulltrúa af svæðinu;
deili skipu lagsvald og umhverfismat væri
síðan hjá til þess bærum stofnunum .
Frásögnin á vefsíðu Atvinnuþróunar
félags Eyjafjarðar var birt til að auðvelda
sveitar stjórnarmönnum að miðla upplýs
ingum um áform Huangs Nubos sín á milli
og til umbjóðenda sinna því að í hönd fór
markviss vinna sem miðaði að því að fá sem
flest sveitarfélög á Norður og Austurlandi
til að slást í hópinn .
Í Þingeyjarsýslum eru sex sveitarfélög:
Langa nesbyggð, Norðurþing, Skútu staða
hreppur, Svalbarðshreppur, Tjör nes hrepp
ur og Þingeyjarsveit . Af Austur landi komu
Vopnafjörður og Fljótsdals hérað að málinu .
Úr Eyjafirði komu Akur eyri, Grýtu bakka
hreppur, Svalbarðs strandar hreppur, Hörg
ár sveit og Eyja fjarðar sveit að umræðum um
kaup á Grímsstöðum á Fjöllum og jafn
framt er minnst á Dalvíkurbyggð í fréttum
af málinu.
Föstudaginn 11 . maí 2012 héldu full trú ar
níu sveitarfélaga á Norður og Austur landi
fund í Heiðarbæ í Reykjahverfi til að ræða
um að stofna einkahlutfélag til að kaupa
þann hluta Grímsstaða sem ekki er í eigu
ríkisins með það fyrir augum að leigja Huang
Nubo landið . Stofnuðu sex sveitarfélög
með sér undirbúningsfélag um verkefnið:
Akureyri, Hörgársveit, Grýtubakkahrepp ur,
Norðurþing, Vopnafjörður og Fljótsdals
hérað . Heitir félagið GáF ehf . Verkefni
undir búningsfélagsins er að verða vettvang
ur hluthafa til að kanna til hlítar alla þætti
málsins og leggja fram endanlegan samning
til kynningar fyrir Huang Nubo .
Af fundargerðum sveitarstjórna Grýtu
bakka hrepps og Hörgársveitar má ráða að
hvor hreppur lagði fram 75 .000 kr . hlutafé í