Þjóðmál - 01.06.2012, Page 94
Þjóðmál SUmAR 2012 93
Eftir að stjórnmálaþátttöku Björns
Bjarna sonar lauk einhenti hann sér í að
skrifa bók um atburðarás sem skók íslenskt
sam félag í um fimm ár . Þegar því máli lauk,
þá kom í ljós að það var aðeins forsmekkur
að miklum hildarleik, sem sér enn ekki fyrir
endann á . Baugsmáli, sem hófst um síðustu
aldamót en komst í hámæli með húsleit í
húsakynnum Aðfanga hf . og Baugs hf . 28 .
ágúst 2002, lauk með niðurstöðu Hæstarétt
ar 5 . júní 2008 . Allan þann tíma sem málið
var fyrir dómstólum var Björn Bjarnason
dóms mála ráðherra . Málareksturinn með
máls skjölum um 50 .000 blaðsíður var að
minnstu leyti rekinn fyrir dómstólum .
Hinir meintu sakborningar leituðu stuðn
ings utan réttarsala, sem er að öðru jöfnu
deilurammi í slíkum málum . Það heitir að
leita til dómstóls götunnar . Þegar dómstóll
götunnar tekur til starfa hrynur réttarríkið .
Álitsgjafir og umsagnir voru mun fyrir
ferðarmeiri en niður stöður dómstóla á
tveimur dómstigum . Fyrir þá sem stóðu
fyrir utan hring iðuna virtist sem vörn
sakborninga væri meiri um forms atriði en
efnisatriði . Ljóst er þó að „Baugsmál“ var
aðeins forleikur að öðrum hildarleik, sem er
hrun íslenska fjármála kerfisins .
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra
þurfti að gegna skyldum sínum við skip un
embættis manna . Hluti af vörn sak born inga
var að láta að því liggja að dóms mála ráð
herrann væri vanhæfur til ákvarð anatöku
í málum sem honum bar skylda til að
úrskurða um . Og ekki aðeins ráðherrann,
heldur gjörvöll ríkisstjórnin . Má leiða rök
að því að með málarekstri í Baugsmálum
var í raun réttri reynd valdataka á Íslandi .
Má þar minna á að annar aðaleigandi
Baugs hf . lét birta í sínu nafni í kosningum
auglýsingu gegn sitjandi dómsmálaráðherra,
sem hafði þó aldrei gert annað en skyldu
sína . Merkilegast við þá auglýsingu var
markhópurinn, Sjálfstæðismenn, kjósendur
Sjálf stæðisflokksins . Auglýsingin bar árang
ur því dómsmálaráðherrann féll um sæti
með útstrikunum . Auglýsingin er dæmi um
sjálftöku áhrifa en ekki síður vitnisburður
um dómgreind kjósenda Sjálfstæðisflokksins
á örlagastundu .
Sagnfræðingurinn Björn skráði hjá sér
atburðarásina eins og hún birtist honum .
Sumt birti Björn á vefsvæði sínu, en þar
er hann frumkvöðull . Einnig hélt sagn
fræð ingurinn saman gögn um, sem urðu
til og birtust opinberlega . Það var ærinn
starfi því margt kom fram og af mismiklu
viti . Það kemur aldrei fram í Rosa baugi
hvenær hugmynd að bók kviknaði . Bókin
kom út árið 2011 . Bókin er afrakstur vinnu
sagnfræðings, sem lifði atburðarás, hafði
aðgang að gögnum og ekki síst greinanlega
hugsun . Bókin getur vart fallið undir það
að vera afurð rannsóknar blaða mennsku því
í slíkri blaðamennsku er oftar en ekki gert
ráð fyrir ónafn greindum uppljóstrurum og
aðgangi höfunda að gögnum sem öðrum
eru ekki aðgengileg . Í Rosabaugi er ávallt
getið heimilda og vitnað í nafngreinda
menn og konur . Efninu er raðað saman
á skipulegan hátt, í röð tíma og efnis . Í
Rosabaugi koma fram efnisatriði sem sýna
á hvern veg málefni fyrirtækis geta klofið
þjóð, að því er virðist eftir flokkslínum, eins
og málefni einstakra fyrirtækja séu hluti
af stjórnmálum, og einnig kemur fram í
Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra .