Þjóðmál - 01.03.2014, Side 18

Þjóðmál - 01.03.2014, Side 18
 Þjóðmál voR 2014 17 leitt í Evrópu . Með bréfaskriftum og rann sóknum, sem Kostur lét framkvæma er lend is, gátum við komið í veg fyrir að stjórn völdum í Brussel tækist að stýra neysl­ unni hér heima og þau jafnvel komið í veg fyrir að inn flytjandinn á þessari ágætu vöru yrði fyrir gríðar legu tjóni . Við bíðum enn eftir jólakorti frá honum . Alla vega er það ekki honum að þakka að við getum keypt gamla góða Cocoa Puffs í Kosti . Með þessu tók ráðherra undir kröfur ís­ lenskra neytenda um mikilvægi þess að geta valið þær vörur þeir vilja neyta, í stað þess að láta stjórnvöld í Brussel velja fyrir sig . Írekstri Kosts hef ég rekið mig á tvenns konar hindranir: Tækni legar hindr anir Evrópusambandsins, sem íslensk stjórn völd hafa samþykkt, og síðan offors ís lenska eftir­ litsiðnaðarins sem helst má líkja við einelti, þar sem reglan er sú að ég sé sekur maður fyrir það eitt að flytja til lands ins amerískar matvörur . Ein af þessum hindr unum er inni haldslýsingar og merk ing ar mál . Kostnaður við kröfur Evrópusambands­ ins um merkingar er gríðarlegur . Ég tel hann skipta hundruð milljónum króna á ári hverju . Við urðum að ráða til okkar mat­ væla fræðing sem umbreytir innhaldslýsing­ um yfir í ESB­staðal . Einnig þurft um við að kaupa dýr tæki og ráða tvo starfs menn í vinnu við að líma miða á dósir sem enginn les . Bandarísku vörurnar eru nú þegar með fullkomnar innihaldslýsingar og ef eitt hvað er, mun einfaldari og auðskiljan legri að mati viðskiptavina okkar en þær evrópsku, að ég tali nú ekki um þær íslensku . Ef sumar íslenskar framleiðsluvörur eru skoðaðar þá stendur nánast ekkert á pakkningunni . Ég hef ekkert á móti eftirliti en þessi enda leysa, að líma miða á vörur sem eru full komlega merktar fyrir er ekkert annað en gríðarlegur aukakostnaður fyrir íslenska neyt endur . MAST ætti frekar að beina kröft ­ um sínum að innlendum mat væla fram­ leiðendum en að endur taka allt það eftirlit sem bandarískir mat væla fram leiðendur eru þegar búnir að ganga í gegnum hjá Mat­ vælastofnun Banda ríkj anna, FDA . Í samskiptum við eftirlitsiðnaðinn hef ég búið við öfuga sönnunarbyrði . Búið er að ákveða fyrirfram að varan sé ólögleg og þar af leiðandi bönnuð . Grundvallar atriði réttar kerfisins virðast ekki eiga við í af­ skiptum MAST af innflutningi frá Banda ­ ríkj un um . Lítum á merkilegt og reyndar stór furðu­legt mál, sem stjórnvöld og eftir lits­ iðnaðurinn hér heima hafa tekið þátt í, en það er bann á sölu á Season All­krydd­ blöndunni sem seld var hér á landi árum saman . Ástæða innflutningsbannsins er sögð sú að kryddið innihaldi litarefnið E­160 . Þetta er náttúrulegt litarefni sem unnið er úr Annatto­fræjum og hefur verið notað til matargerðar allt frá 16 . öld . Þetta er undarleg ástæða í ljósi þess að Annatto hefur verið notað í matvæli öldum saman og er sannarlega notað í evrópsk Í rekstri Kosts hef ég rekið mig á tvenns konar hindranir: Tækni legar hindr anir Evrópu­ sambandsins, sem íslensk stjórn ­ völd hafa samþykkt, og síðan offors ís lenska eftir litsiðnaðarins sem helst má líkja við einelti, þar sem reglan er sú að ég sé sekur maður fyrir það eitt að flytja til lands ins amerískar matvörur . . .

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.