Þjóðmál - 01.03.2014, Blaðsíða 33
32 Þjóðmál voR 2014
á bátinn . Það er vissulega ekki vanþörf á
að brýna þetta fyrir sér, nú þegar umræða
um efnahagsmál og baráttan fyrir að halda
í horfi því hagsældarþjóðfélagi, sem vér
viljum hafa, skyggja svo að ekki verður um
villst, á þau markmið sem í raun og veru
eru öllum æðri . (Kristján Eldjárn, forseti
Íslands, í nýársávarpi 1 . janúar 1980 .)
• [Heimildarkvikmynd Saga film um Jón
Sigurðsson forseta] hefur fengið heitið
„Eigi víkja“ eftir einkunnarorðum Jóns .
(Morgunblaðið 29 . ágúst 1993 .)
• Eigi víkja, voru kjöryrði hans . (Gísli
Jónsson íslenskukennari í Morgunblaðinu
17 . júní 1994 .)
• „Eigi víkja“ voru kjörorð hans, og með
þau að leiðarljósi varði hann meint lands
réttindi Íslands af fullkomnum ósveigjan
leika gegn tilraunum Dana til að koma
sambandi Íslands og Danmerkur á nýjan
grundvöll . (Guðmundur Hálfdanar son:
„Jón Sigurðsson og baráttan um nú
tímann“ . Erindi á málþingi um Jón forseta
í Háskóla Íslands 6 . desember 2003 .)
Oft er talið að kjörorðið hljóti að mega
rekja til einhvers merkilegs viðburðar í
sjálfstæðisbaráttunni . Eitt dæmi:
[Uppsögn Menntaskólans fór fram] í há
tíðarsal skólans, hinum sögufræga þjóð
fundarsal frá 1851, er Jón Sigurðsson
mælti sín örlagaríku og ódauðlegu eggj
ana orð í stjórnfrelsisbaráttu Íslendinga:
„Eigi víkja“ . (Richard Beck prófessor í
Tíma riti Þjóðræknisfélags Íslendinga 1 . tbl .
42 . árg . 1960, bls . 14–15 .)
Víkur nú sögunni til vors 1851 . Í Kaupmannahöfn var Jón Sigurðsson að
búa sig undir þjóðfundinn sem haldinn var
um sumarið . Hélt hann Íslands 15 . maí en
Páll Eggert Ólason skrifaði ævisögu Jóns forseta í
fimm bindum á árunum 1929 til 1933 . Hann giskaði
á að innsiglið með skjaldarmerkinu hefði verið
fært Jóni Sigurðssyni að gjöf í samsæti Íslendinga í
Kaupmannahöfn vorið 1851 .
Gísli Brynjúlfsson var árum saman einn nánasti
samstarfsmaður og vinur Jóns Sigurðssonar . Hann
orti tvívegis til hans ljóð . Að líkindum er hann
upphafsmaður þess að færa Jóni innsigli með skjaldar
merki Lopts ríka Guttormssonar .