Gerðir kirkjuþings - 01.01.2012, Page 70

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2012, Page 70
70 71 Rekstraráætlun 06-701 Þjóðkirkjunnar árið 2013 - forsendur Á Biskupsstofu og Kirkjumálasjóði fjölgar starfsmönnum sem nemur hálfu stöðugildi. Áætluð stöðugildi á Biskupsstofu árið 2012 voru 13,9 en samkvæmt áætlun 2013 verða stöðugildi 15. Áætluð stöðugildi Kirkjumálasjóðs voru 9,7 árið 2012 en verða 9,1 samkvæmt áætlun 2013. Samtals verða starfsmenn 24,1 árið 2013 í stað 23,6 árið 2012 – eða hálfu stöðugildi fleiri. • Aðalbókari á Biskupsstofu fer úr 80% starfi í 100% starf m.a. vegna yfirtöku bókhalds Skálholts. • Verkefnisstjóri fjármála sókna fer úr 50% starfi í 80% starf, en auknar sértekjur koma á móti úr Jöfnunarsjóði sókna. • Verkefnisstjóri á fræðslu- og þjónustusviði verður í 100% starfi árið 2013 en árið 2012 var verkefnisstjórinn í 50% starfi á Biskupsstofu vegna afleysinga í prestaköllum. • Verkefnisstjóri guðfræði- og þjóðmálasviði lætur af störfum og við það sparast 50%. • Símavörður á Biskupsstofu í 60% starfi lætur af störfum og verður starfið ekki auglýst. Ráðgert er að spara sem nemur um fjórum prestsembættum árið 2013. Prestsembætti verða þannig 128 samkvæmt rekstraráætlun 2013 í stað 132 samkvæmt rekstraráætlun 2012. • Héraðsprestur í Austfjarðaprófastsdæmi fer úr 50% starfi í 100% starf. • Hríseyjarprestakall og Möðruvallaprestakall sameinast og við það sparast eitt embætti sóknarprests. • Héraðsprestur II í Kjalarnesprófastsdæmi lætur af störfum – við það sparast hálft embætti, en biðlaun voru greidd á árinu 2012 sem svarar til 20% embættis. • Frestað er að auglýsa 100% embætti í Grafarvogsprestakalli. Við það sparast sem nemur 100% prestsembættis. • Frestað verður að auglýsa embætti í Háteigsprestakalli, sem losnar 1. ágúst 2013 við starfslok sóknarprests. Við það sparast 40% sóknarprestsembættis. • Frestað að auglýsa embætti sóknarprests í Staðastaðarprestakalli við starfslok sóknarprests 1. júlí 2013, en við það sparast 50% sóknarprestsembættis. • Skipaður hefur verið prestur í 50% embætti vegna niðurlagningar prestakallanna Holts og Kálfafellsstaðar. Aukning útgjalda sem nemur 50% prestsembættis. • Bíldudals- og Tálknafjarðarprestakalli verður þjónað með aukaþjónustu – við það sparast sem nemur 50% sóknarprestsembættis. • Embætti 50% héraðsprests Þingeyjarprófastsdæmis hefur verið lagt niður, en biðlaun voru greidd árið 2012. Sparnaður árið 2013 nemur 50% prestsembættis. • Frá 1. júní 2012 fór sérþjónustuprestur á Biskupsstofu í 50% starf. Sparnaður árið 2013 nemur 30% prestsembættis. • Frá 1. september 2012 fór sérþjónustuprestur á Biskupsstofu í 50% starf. Sparnaður árið 2013 nemur 40% prestsembættis. • Árið 2011 var lagt niður embætti vímuvarnaprests, en 50% biðlaun voru greidd árið 2012. Sparnaður nemur 50% prestsembættis árið 2013.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.