Gerðir kirkjuþings - 01.01.2012, Page 73

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2012, Page 73
73 Auk þess greiðir Kirkjumálasjóður 33 m.kr. til þjóðkirkjunnar. Ráðgert er að selja eignir sem ekki er talin þörf fyrir eða þykja óhagkvæmar í rekstri, en eignasafnið hefur vaxið undanfarinn áratug. Árið 2013 er gert ráð fyrir svipuðum heildartekjum og gjöldum og árið 2012. Fjármagnskostnaður lækkar vegna endurfjármögnunar óhagstæðra lána. Rauntölur og áætlun Kirkjumálasjóðs 2011 Tekjuhalli Kirkjumálasjóðs árið 2011 er 54,5 m.kr. Helstu skýringar eru að andvirði eignasölu Kirkjumálasjóðs sem var greitt til Biskupsstofu var aðeins í greiðsluáætlun en ekki rekstraráætlun – þannig að greiðsluafkoma stenst en rekstraráætlun verður skökk. Framsetning rekstraráætlunar hefur verið lagfærð vegna áranna 2012 og 2013. Einnig er breytt framsetningu vegna sameiginlegs kostnaðar Laugavegi 31. Áður var þessi kostnaður nettaður út en nú eru bókfærð gjöld og tekjur á móti - en rekstrarniðurstaða er sú sama. Annar kostnaður fór fram úr gjaldaáætlun en tekjur hækkuðu á móti. Hagnaður af sölu fastafjármuna er hærri en gert var ráð fyrir í áætlun, en um bókhaldslegan hagnað er að ræða þannig að áhrif eru ekki á innstreymi fjármagns. 06-707 Kristnisjóður Greiðslur ríkisins til Kristnisjóðs samkvæmt kirkjujarðasamkomulaginu samsvarar 15 árslaunum presta í fámennustu prestaköllunum og er 73,1 m.kr. samkvæmt fjárlaga- frumvarpi 2013. Samkvæmt frumvarpinu er gerð krafa um 0,9 m.kr. niðurskurði eða um 1,2% ef miðað er við fjárlög 2012. Greiðsla ríkis lækkar um 28,9 m.kr. eða 28,3% árið 2012 ef miðað er við óskert kirkjujarðasamkomulag (sbr. töflu 2). 06-735 Sóknargjöld Árið 2008 voru sóknargjöld komin í kr. 872 á mánuði fyrir hvern einstakling 16 ára og eldri í þjóðkirkjunni og hefði átt að hækka um 6,1% í janúar 2009 eða í 925 kr. á mánuði. Sóknargjöldin voru hins vegar lækkuð með lagasetningu í byrjun árs 2009 í 855 kr. og aftur með annarri lagasetningu 1. júlí 2009 í 811 kr. á mánuði út árið. Sóknargjöld urðu því að meðaltali 833 kr. fyrir allt árið 2009. Árið 2010 voru sóknargjöld 767 kr. á mánuði og lækkuðu enn í 698 kr. árið 2011. Samkvæmt fjárlögum 2012 eru sóknargjöld til þjóðkirkjunnar alls 1.680,0 m.kr. eða kr. 701 á mánuði fyrir hvern einstakling. Sóknargjöld hækka um 62,8 m.kr. árið 2013 eða 3,9% miðað við fjárlög 2012. Sóknargjald árið 2013 miðað við fjárlagafrumvarp 2013 er 727 kr. fyrir hvern gjaldanda. Ef miðað er við óskertan grunn sóknargjalda árið 2012 (sbr. töflu 2) eru sóknir að taka á sig 840,7 m.kr. skerðingu eða 33,4% frá - því ef sóknargjaldið hefði verið reiknað samkvæmt óbreyttum lögum nr. 91/1987 ætti það vera kr. 1.101 árið 2012. Frá fjárlögum ársins 2008 hafa sóknargjöld lækkað um sem nemur 20% miðað við árið 2012. Þegar skoðuð er þróun fjárveitinga vegna annarra fjárlagaliða undir innanríkisráðuneytinu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.