Félagsbréf - 01.12.1959, Page 24

Félagsbréf - 01.12.1959, Page 24
22 FÉLAGSBRÉF en árangurinn furðu smár. Þeir feðgar virtust hvorugur kunna að meta framlag hjónanna þeim til afþreyingar, og ekki voru þeir málgefnir, því tilraunirnar, sem kona Andrésar gerði til að toga úr þeim orð á stangli, fóru flestar út um þúfur. Fyrir fjórum árum hafði kona Guttorms komið hér ásamt dóttur sinni í heimsókn til móður þeirra Sofnhólsbræðra. Skömnui síðar dó móðir þeirra, en nú fýsti húsfreyjuna í Sofnhól að heyra frá Guðborgu, konunni með milda svipinn og hóglega fasið, sem hér gekk um hlað á árunum góðu, áður en dauðinn tók að höggva til beggja handa. En við það var ekki komandi. Helzt virtust þeir feðgar staðnæmast þar sem Ásmundur var, og þó gjarnan spölkorn frá honum. Kæmu þeir að hon- um í hlaði, þar sem hann smurði vagnhjól eða tók upp legu, virtu þeir aðfarir hans nákvæmlega fyrir sér. Væri hann í skemmu við smíðar, stað- næmdust þeir í dyrum og gáfu gaum að hverri hreyfingu lians. Og viki hann sér frá, voru þeir vísir til að læðast inn og þukla á smíðisgripnum, klunnalegum, stórum höndum, með vott af brosi í leiftrandi augum. Þeir voru fámálir við Ásmund og þó margmálli en við aðra. En fundu nú sjálfa sig fyrir, því varla vildi það til að Ásmundur anzaði þeim. Fyrir hálfu ári hefði hann gert að gamni sínu við þá, spjallað við þá, ræðinn og skemmtilegur, kannski skammað þá, en vissulega togað út úr þeim svör við öllum spurningum sínum. En nú Iiafði dauðinn riðið um garð og hrifið burt unga stúlku með ferlegum aðförum, og Ásmundi var brugðið. Tal hans, áður létt, varð þunglamalegt, og ör lund hans, viðkvæm eins og lund móður hans, virtist hafa glatað þenslu sinni, því nú sýndist skap hans allt á einn veg: þungt, innhverft og engum sveiflum háð. Aðeins einn maður vissi betur: bróðir hans. Eftir slysið hafði breytingin komið þann veg, að fáir tóku eftir henni fyrst í stað. Sorgin hafði sín áhrif á hann og það undraði engan, en þegar annað fólk tók upp fyrri háttu, gróið sára sinna að mestu, dróst hann aftur úr. Hann hóf sig ekki upp úr sorginni, hann varð kyrr undir farginu. Eða kannski var farginu létt af honum að einhverju leyti, en lund hans reis ekki upp, hún hafði bæklazt og gat ekki rétt úr sér. Enginn sagði að Ásmundur hefði bilað á geðsmunum. Hann vann störf sín og talaði máli sínu ef iþess þurfti með, breyttur að vísu, en fólk hélt hann kæmist yfir erfiðleikana með tímanum. Aðeins einn maður var kvíð- inn: bróðir hans. Af því hann hafði séð það, sem enginn annar sá og heyrt það, sem enginn annar heyrði, tvisvar á stuttum tíma. í fyrra skiptið skömm'J

x

Félagsbréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.