Félagsbréf - 01.12.1959, Page 36

Félagsbréf - 01.12.1959, Page 36
ÞÓRÐUR EINARSSON: IJpprisan og lífið Noklcrar liugleifiingar um bók Boris Pasternaks, „Sívagó lœkni“. SEPTEMBERBÓK Almenna bókafélagsins á þessu ári er hin margumrædda skáldsaga rússneska skáldsins Boris Pasternaks, sem á íslenzku hefur hlotið nafnið „Sívagó læknir“. Bókin kemur nú út í þýðingu hér um bil hálfu öðru ári eftir að hún birtist í enskri þýðingu þeirra Max Hayward og Manva Harari, en síðasti kafli hókarinnar, það er að segja ljóð Sívagós læknis, voru þýdd af Bernard Guilbert. Það er þessi enska þýðing, sem farið hefur verið eftir við þýðingu bókarinnar á íslenzkt mál. Það má heita býsna vel af sér vikið að hafa komið því í verk að þýða þessa stóru bók — hún er hvorki meira né minna en 518 þéttsettar síður, og eru ljóðin þá ekki talin með — og koma henni út á prent á ekki lengri tíma. Slík þýðing er ekkert áhlaupaverk og krefst raunar þess að þýðand- inn eyði miklum tíma í að kynna sér verkið rækilega og kryfja það til mergjar, og jafnvel kynni sér að nokkru ákveðið tímabil í bókmenntasögu Rússlands og þá ekki síðúr sögu Rússlands frá því um aldamót síðustu og fram undir það að síðari heimsstyrjöldin brauzt úr. Ég er mjög smeykur um og reyndar nærri því viss um, að þetta hefur ekki verið gert, heldur hefur ensku þýðingunni verið fylgt í blindni, en sú þýðing hefur orðið fyrir allmikilli gagnrýni. Einkum hefur þýðendum verið legið það á hálsi, að þeir hafi jafnvel unnið verkið of hroðvirknislega og ónákvæmlega, jafn- vel þótt þýðingin sé læsileg. Það er aðallega rithöfundurinn Edmund Wilson, en hann er rússneskumaður ágælur og hefur gert nákvæman saman- burð á rússneska frumtexta bókarinnar og ensku þýðingunni, sem befur gagnrýnt ensku útgáfu bókarinnar og líkt henni við vinnubrögð Reader s Digest, þegar menn þess fara að stytta og umskrifa verk annarra. Sjálfur get ég ekki gert annan samanburð en milli ensku þýðingarinnar og hinu-

x

Félagsbréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.