Félagsbréf - 01.12.1959, Síða 60

Félagsbréf - 01.12.1959, Síða 60
Umsköpun sögunnar STAUNS VITJAÐ AÐ NÍJU. íðtæk hreinsun í útgúfu sögulegra staðreynda hefur nú verið gerð í Sovétríkjunum: f staðinn fyrir „Hið stutta söguskeið kommúnistaflokks Sovétríki- anna“ (fyrsta útgáfa kom árið 1938) hef- ur nú verið prentuð ný handbók og a'ð mörgu leyti mjög ólik hinni. Þeirri gömlu, sem kom út í 50 milljónum eintaka á sínum tíma, hefur nú verið kastað í „rusla- kistu sögunnar“. Nýja útgáfan varð síðbúin. Eftir að Krústjoff hafði fordæmt gömlu handbók- ina í „leynirœðu,“ sinni á 20. flokksþing- inu var skipuð ellefu manna ritnefnd undir stjórn B.M. Ponomareff, „til að sjá um útgáfu alþýðlegrar marxiskrar hand- bókar um sögu flokksins er eingöngu byggðist á sögulegum staðreyndum,“ eins og það er orðað. Samningu bókarinnar skyldi lokið á tæpu ári, en baráttan um völdin milli arftaka Stalins (og umrótið í Austur-Evrópu 1956) tafði bersýnilega fyrir útgáfunni. Það voru of mörg vanda- söm atriði, sem þörfnuðust nákvæmrar endurskýringar og of margir af fylgis- mönnum Stalins, sem höfðu helzt úr lest- inni og fallið í skuggann. Það er fyrst nú, sem hin nýja alþýð- lega útlegging á sögu flokksins hefur komið út og þá aðallega fyrir atbeina hins nýja ritara flokksins. Fyrsta útgáfa nýju handbókarinnar seld- ist upp á nokkrum klukkustundum. Nýja handbókin er helmingi lengri en sú gamla. Hún nær allt fram til liðandi stundar, og einn kaflinn fjallar m.a. um 21. flokksþingið og 7-ára áætlunina. Ef gamla handbókin var gefin út, til þess að skapa og móta hina sögulegu goðsögn um „Stalins-tímabilið", þá hefur nýja handbókin aftur á móti breytt og endur- skoðað efni að flytja mönnum, til að veita þeim sögulega innsýn þeirrar kynslóðar, sem mótast undir stjórn Krústjoffs. Það sem fyrst og fremst gerir hina gömlu og nýju kynningu á „sögulegum staðreyndum" svo ólíkar, er sem vænta mátti það hlutverk, er Stalin er eignað. Gamla handbókin var að sjálfsögðu eitt af tækjum Stalins til sjálfsupphafningar, þar sem hann tileinkaði sjálfum sér verk annarra manna. Þegar hann hafði útrýmt þeim, gerði hann eitt af tvennu, kenndi þeim um gömul svik og blekkingar, eða máði nöfn þeirra algerlega af söguspjöld- um byltingarinnar. Nýja bókin skákar Stalin á sinn rétta stað, án þess þó að veita hinum réttu mönnum aftur þann heiður af raunveru- legum verkum þeirra, er annar hafði tileinkað sér með röngu. I gömlu handbók- inni var Stalins fyrst getið í sambandi við
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Félagsbréf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.