Félagsbréf - 01.12.1959, Side 67

Félagsbréf - 01.12.1959, Side 67
FÉLAGSBRÉF 65 eiginlegu sekt ríkisþinsins „meðan brotið var grundvallarlögmál sameiginlegrar for- ystu“ og ekki síSur meSan veriS var að má burt nöfn þeirra Malenkoffs, Molotoíís og Kaganovits, stuSlaSi bersýnilega aS þeirri ákvörSun, aS hefja sögulegt æviskeiS Krústjoff seinna en þaS raunverulega byrjaSi. Þetta er skiljanlegt. í ræSu sem Krústjoff hélt á opinberum fundi 30. jan. 1937, hafSi hann þetta aS segja um Moskvu-málsrannsóknirnar hinar síSari: „Þessir fyrirlitlegu vesalingar vildu eySi- leggja og sundra eindrægni flokksins og ríkisins.... Þeir lyftu svikulum höndum sínum gegn félaga Stalin.... Stalin — von okkar, Stalin — þrá okkar, Stalin — ljós hinnar þroskuSu og framsæknu mann- úSar, Stalin — vilja okkar, Stalin — sigri okkar....“ Vegna þess hve hlutverk Krústjoffs í hreinsuninni var eftirtektarvert og áher- andi, er ekki hægt aS taka ræSu hans á 18. flokksþinginu sem neina fjarveru- sönnun: „Hina árangursríku og sigursælu út- rýmingu fasiskra erindreka og allra hinna svívirSilegu Trotskyista og Bukhar- inista eigum viS fyrst og fremst og persónu- lega aS þakka leiStoga okkar, hinum mikla Stalin“. Árás Krústjoffs á Stalin í ræSu þeirri, cr hann hélt á 20. flokksþinginu, heldur áfram aS vera „leyndarmál". Ritstjórar bókarinnar vitna í hraSritaSa skýrslu 20. flokksþingsins, en geta ekki skýrskotaS til ræSunnar sjálfrar, þar eS slíkt er ekki gert í skýrslunni. 1 nýju handhókinni er hvergi aS finna neina persónudýrkun á núverandi ritara flokksins, samanboriS viS þá gömlu. En eftir því sem nær kemur nútímanum, þeim mun oftar kemur nafn Krústjoffs fyrir á blaSsíSum hennar. Allar mikilvægar á- kvarSanir og framkvæmdir, á tímabilinu eftir lát Stalins eru eignaSar honum per- sónulega og fordæmingu hans á allri persónudýrkun. Sovétsku leiStogarnir geta aldrei nóg- samlega fordæmt hina svokölluSu „endur- skoSunarmenn". En eru þeir ekki mestu endurskoSunarmennirnir sjálfir?? Eru þeir ekki stöSugt aS endurskoSa sfna eigin fortíS? Hin „stöSuga bylting“ virSist krefjast stöSugrar endurskoSunar á sög- unni. Nýjar handbækur eru ekki einungis viShætur viS hinar gömlu: Þær trýma þeim. ÞaS er eins og meS Brooklyn Bridge, yfirmálningin byrjar, jafnvel áSur en fyrri málningin er aS fullu lokiS. ... Sverrir Haraldsson íslenzkaði. BARNA- OG UNGLINGABÆKUR Bláskjár ............................................... kr. 25.00 Marin og riddarinn eftir sr. FriSrik Hallgrímsson ...... — 10.00 Perseifs og aSrar sögur eftir sr. FriSrik Hallgrímsson .... — 12.50 Skræpuskikkja eftir sr. FriSrik Hallgrímsson ........... — 14.00 Steinaldarmenn í GarpagerSi eftir Loft GuSmundsson .... — 48.00 Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar.

x

Félagsbréf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.