Morgunblaðið - 31.12.2015, Blaðsíða 86
86 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2015
Mest seldu ofnar
á Norðurlöndum
Hlátur og fliss berst úr salB á efri hæð Hafnar-hússins og þegar komiðer inn lítur hópur karl-
manna eilítið vandræðalega upp, líkt
og þeir hafi verið staðnir að verki.
Þeir reynast hafa gleymt sér eins og
börn að leik við skoðun verks eftir
Katrínu Sigurðardóttur á sýning-
unni Horft inní hvítan kassa – skúlp-
túrar og módel og hafði einn þeirra
einmitt rekið höfuðið ofan í slíkan
kassa. Hér skal ekki upplýst hvað
þar er að sjá – en verkið er náskylt
eftirminnilegu verki sem Katrín
sýndi fyrir mörgum árum í Galleríi
Sævars Karls og hinu snjalla „High
Plane VI“ í Listasafni Íslands fyrir
nokkrum árum (og öðrum skyldum
verkum sem listunnendum hefur
ekki gefist kostur á að sjá hér á
landi). Á þessum sýningum greip
margur áhorfandinn andann á lofti
og ruglaðist um stundarsakir bæði í
ríminu og rýminu. Leikur með
stærðarhlutföll eru enda aðalsmerki
listamannsins – og verður áhorfand-
anum gjarnan hugsað til sögunnar
um Lísu í Undralandi. Verkið í sal B
nær ekki að framkalla jafnkitlandi
háleita reynslu og áðurnefnd verk en
þar er áhorfandinn samt sem áður
hafinn á stall þar sem hann getur
sett sig í spor Lísu og undrast.
Karlmennirnir í salnum reyndust
vera franskir ferðalangar og mátti
heyra þá muldra nafn Marie Antoi-
nette er þeir gægðust inn um glugga
verksins „Skrautþiljur“ eða „Boiser-
ie“ upp á frönsku. Verkið tengist
raunar frönsku drottningunni og
byggist á herbergi sem nú er varð-
veitt í Metropolitan-safninu í New
York. Herbergi Katrínar er ekki í
fullri stærð, það er hvítt í hólf og gólf
og mannlaust. Speglatækni gerir að
verkum að rýmið virðist fullkomlega
sjálfbær heimur sem hverfist óend-
anlega um sjálft sig. Í því býr fram-
andleiki og áhorfandanum bregður í
brún þegar hann tekur eftir risa-
vöxnu auga sem virðist fylgjast með
honum: er hann sjálfur orðinn að
viðfangi þessar sviðsetningar, fangi í
dularfullu tímahylki?
Undirrituð hélt í humátt á eftir
Frökkunum inn í C-sal þar sem allir
gægðust í króka og kima líkana, eða
smækkaðra útgáfa af innsetningum
Katrínar í sýningarrýmum erlendis.
Líkönin, sem Listasafni Reykjavík-
ur áskotnuðust nýlega, vann hún
upprunalega sem undirbúning fyrir
innsetningarnar. Þar sem innsetn-
ingarnar sjálfar heyra nú sögunni til
hafa líkönin orðið að eftirmyndum af
verkum sem sjálf eru oft eft-
irmyndir. Þessar eftirmyndir/líkön
eru jafnframt samsafn smækkaðra
staða, en þess má geta að ýmis önn-
ur verk Katrínar eru beinlínis líkön
af raunverulegum stöðum (bygg-
ingum eða görðum) sem hún flytur í
eftirgerð sinni milli staða. Leikurinn
er því lykilatriði í listsköpun Katr-
ínar. Í C-sal sveiflast áhorfandinn
milli þess að vera „safngestur“ sem
kynnir sér upplýsandi yfirlit um feril
listamannsins, og þess að umbreyt-
ast í Gúlliver í Putalandi í þessu
skáldlega rými. Í öllu falli er það
áhorfandinn sjálfur, í hvikulli af-
stöðu við umhverfi sitt, sem er í
brennidepli. Þegar horft er inn í
hvíta kassa Katrínar vakna áleitnir
þankar um eðli safnareynslunnar, og
um nútímalistasafnið sem „hvíta
kassann“, hugmynd sem gerir ráð
fyrir sérstöku, upphöfnu listáhorfi
utan tíma og rúms – en þar er leik-
urinn líka ávallt á næsta leiti og vit-
undin um allar okkar vistarverur.
Um króka og kima
Vistarverur „Skrautþiljur“, „Boiserie“ á frönsku, verk Katrínar Sigurðardóttur frá árinu 2010.
Listasafn Reykjavíkur,
Hafnarhús
Katrín Sigurðardóttir: Horft inní
hvítan kassa – skúlptúrar og módel
bbbbn
Til 3. janúar 2016. Opið alla daga kl. 10-
17, fimmtud. til kl. 20 (opið gamlársdag
kl. 10-14 og nýársdag kl. 13-17) . Að-
gangur kr. 1.400, námsmenn 25 ára og
yngri: kr. 800, hópar 10+: kr. 800, ör-
yrkjar, eldri borgarar (70+) og börn 18
ára og yngri: ókeypis. Árskort kr. 3.300.
ANNA JÓA
MYNDLIST
Listakonan Katrín í porti Lista-
safns Reykjavíkur í Hafnarhúsi.
Hljómplata Adele, 25, var sú mest selda í lið-
inni viku, 20.-27. desember, skv. Tónlistanum
sem unninn er af Félagi hljómplötuframleið-
enda og inniheldur sölutölur úr verslunum
Hagkaups, Pennans/Eymundsson, 12 Tóna,
Elko, Smekkleysu plötubúð, Samkaupa,
Kaupfélags Skagfirðinga, Lucky Records,
Vefverslun Record Records, Skífunnar, N1
og Tónlist.is. Önnur mest selda platan var
Jólaland Baggalúts og Bubbi Morthens og
Spaðadrottningarnar eiga þriðju mest seldu
plötu vikunnar, 18 konur. Plata Justins Bie-
ber, Purpose, er í fjórða sæti og Bubbi og
hljómsveitin Dimma í því fimmta með plötuna
Bubbi og Dimma.
Friðrik Dór á mest spilaða lag vikunnar,
„Skál fyrir þér“, skv. Lagalistanum sem er
unninn af Félagi hljómplötuframleiðenda og
inniheldur samantekt sl. viku á mest spiluðu
lögunum á Bylgjunni, FM957, Xinu 977, Rás 2
og K100,5 og tekur einnig mið af sölu og spil-
un á Tónlist.is. „Adventure of a Lifetime“
með Coldplay er í 2. sæti, „Organs“ með Of
Monsters and Men í því þriðja, „Gold Laces“
Júníusar Meyvants í 4. sæti og í því fimmta
„Ex’s and Oh’s“ með Elle King.
Adele og Friðrik Dór efst á listum
AFP
Ógnarvinsæl Plata bresku söngkonunnar
Adele, 25, selst eins og heitar lummur.
Náttúruupplifun er yfirskrift sýningar sem
verður opnuð í Kompunni í Alþýðuhúsinu á
Siglufirði á laugardag, 2. janúar, kl. 17.
Á sýningunni eru verk í eigu Aðalheiðar
Eysteinsdóttur. Í gegnum tíðina hefur Aðal-
heiður safnað listaverkum og á nú orðið tölu-
vert safn sem hún hefur valið úr fyrir þessa
fjölbreytilegu sýningu. Listaverkin eru eftir
Steingrím Eyfjörð, Jónborgu Sigurðardóttur,
Joris Rademaker, Örnu Guðnýju Valsdóttur,
Kristján Steingrím Jónsson, Fredie Beck-
mans og Heklu Björt Helgadóttur.
Upplifun í Kompunni
Fjölbreytileg Hluti verks eftir Joris Rademaker.
Allmörgum athyglis-
verðum sýningum lýkur á
sunnudaginn kemur í lista-
söfnum á höfuðborgar-
svæðinu. Má þar á meðal
nefna tvær sýningar á
Kjarvalsstöðum, sýningu á
verkum Katrínar
Sigurðardóttur í Hafn-
arhúsi, verkum Nínu
Tryggvadóttur í Listasafni
Íslands og Valdimars
Thorlacius í Myndasal Þjóðminjasafnsins. Þá
lýkur einnig sýningunum Skúlptúr / Skúlp-
túr í Gerðarsafni og klukkan 15 mun Kristín
Dagmar Jóhannesdóttir, safnstjóri Gerðar-
safns, leiða gesti um sýningar þeirra Baldurs
Geirs Bragasonar og Habbyjar Oskar. Á
þessum samhliða einkasýningum má sjá per-
sónulegar hugleiðingar listamannanna um
skúlptúrinn í samtímanum. Verk þeirra eru
ólík en hugsunin að baki þeim á margt sam-
eiginlegt, segir Kristín Dagmar.
Sýningum lýkur og
leiðsögn um helgina
Kristín Dagmar
Jóhannesdóttir