Morgunblaðið - 31.12.2015, Blaðsíða 75
kosningarnar 2014, hefur verið for-
maður Sambands sveitarfélaga á
Austurlandi frá aðalfundi þess 2014
og var tilnefnd af Sambandi ís-
lenskra sveitarfélaga til setu í
Stjórnstöð ferðamála 2015. Þá situr
hún í stjórn Austurbrúar ses, var
kjörin af Alþingi til setu í Lands-
dómi frá 2011, situr í Bókasafnaráði
frá 2013 og er formaður skóla-
nefndar Handverks- og hússtjórn-
arskólans á Hallormsstað frá 2009.
Sigrún sinnti ýmsum félags-
störfum í Flensborg, KHÍ og HÍ.
Hún sat í foreldrafélagi Egilsstaða-
skóla um tíma og var formaður þess
í tvö ár, var formaður Zeta-deildar
Delta Kappa Gamma 1994-98, situr í
stjórn Héraðslistans, var eitt ár
aðalmaður í svæðisráði austur-
svæðis Vatnajökulsþjóðgarðs og
varamaður árin 2010-2014.
„Sem betur fer tengjast áhuga-
mál mín störfum mínum. Ég hef
áhuga á því að fylgjast með þjóð-
málum, stjórnmálum í nágranna-
löndunum og svo taka verkefni
tengd sveitarstjórnarmálunum
drjúgan tíma.
Þegar störfunum sleppir er svo
gott að grípa í góða bók og bjóða
gestum í mat.“
Fjölskylda
Eiginmaður Sigrúnar er Björn
Sveinsson, f. 16.2. 1965, tæknifræð-
ingur og útibússtjóri Verkís á Egils-
stöðum. Foreldrar hans: Dagný
Pálsdóttir, f. 26.5. 1941, verkakona
og húsfreyja á Egilsstöðum, og
Sveinn Björnsson, f. 20.11. 1938, d.
11.9. 2015, húsasmíðameistari á
Egilsstöðum.
Börn Sigrúnar og Björns eru Sig-
urlaug Björnsdóttir, f. 5.3. 1997;
Sveinn Björnsson, f. 30.3. 2005,
grunnskólanemi á Egilsstöðum.
Stjúpdætur Sigrúnar eru Sif
Björnsdóttir, f. 31.8. 1987, búsett í
Berlín og starfar þar, og Marta
Björnsdóttir, f. 6.10. 1987, búsett í
Gautaborg og starfar þar.
Bræður Sigrúnar eru Benedikt G.
Blöndal, f. 11.8. 1955, bílstjóri og
verktaki á Hallormsstað, og Sig-
urður Björn Blöndal, f. 8.12. 1969,
borgarfulltrúi í Reykjavík og for-
maður borgarráðs.
Foreldrar Sigrúnar eru Sigurður
Blöndal, f. 3.11. 1924, d. 26.8. 2014,
skógarvörður og skógræktarstjóri,
síðast á Hallormsstað, og Guðrún
Sigurðardóttir, f. 19.8. 1933, d.
14.11. 2015, húsfreyja á Hallorms-
stað frá 1991.
Úr frændgarði Sigrúnar Blöndal
Sigrún
Blöndal
Björn Sigurðsson
b. á Grjótnesi
Vilborg S. Guðmundsdóttir
húsfr. á Grjótnesi á Melrakkasléttu
Sigurður Björnsson
skrifstofumaður í Rvík
Halldóra Friðriksdóttir
kennari og fyrrv. skólastj. í Rvík
Guðrún Sigurðardóttir
húsfr. á Hallormsstað
Friðrik Sæmundsson
b. á Efri-Hólum í Núpasveit
Guðrún Halldórsdóttir
húsfr. og ljósm. á Efri-Hólum
Benedikt G. Blöndal
bílstj. og verktaki á
Hallormsstað
Sigurður Björn Blöndal
form. borgarráðs
Guttormur Pálsson
skógarvörður á Hallormsstað
Kristján Friðriksson iðnrekandi í Rvík
Tryggvi Blöndal
skipstj. í Rvík
Vilborg Sigurðar-
dóttir kennari í Rvík
Jóhann
Friðriksson
forstj. í Rvík
Margrét Friðriksd.
húsfr. í Kópavogi
Jón Ólafsson prófessor
í heimspeki
Eggert
Jóhannsson
feldskeri í Rvík
Björn Þórhallsson
viðskiptafr. og varaforseti ASÍ
Ingibjörg Jóhannsd. skólastj. í Landakotsskóla
Karl Björnsson
frkvstj. Sambands ísl.
sveitarfélaga og fyrrv.
bæjarstj. Árborgar
Loftur Guttormsson
prófessor emeritus
Guðrún Kristjánsd.myndlistarm.
Hjörleifur Guttormsson
fyrrv. alþm. og ráðherra
Ásrún Kristjánsd. textílhönnuður
Gunnar Guttormsson fyrrv.
forstj. Einkaleyfissölunnar
Heiðrún Kristjánsd.myndlistarm.
Magnús Benediktsson Blöndal
sýsluskrifari í Stykkishólmi
Ragnheiður Sigurðardóttir
húsfr. í Stykkishólmi
Benedikt G. Blöndal
búfr. og kennari á Hallormsstað
Sigrún P. Blöndal
skólastýra á Hallormsstað
Sigurður Blöndal
skógarv. og skógræktar-
stj. á Hallormsstað
Páll Vigfússon
b. að Ási í Fellum og b.
og ritstj. á Hallormsstað
Elísabet Sigurðardóttir
húsfr. á Hallormsstað
Halldóra Björnsdóttir
fjölskylduráðgjafi
Sigfríður Björnsdóttir
deildarstjóri listfræðslu
Björn Sigurðsson
stórkaupm. í Rvík
og Þýskalandi
Guðný Daníelsd. læknir í Rvík
Bjarni Daníelss.
fyrrv. óperustj.
í Rvík
Daníel Ágúst Haralds-
son tónlistarmaður
Daníel
Bjarnas.
tónskáld
Dýrleif
Friðriksd.
húsfr. á
Dalvík
Dönskukennarar Sigrún með Katr-
ínu Högnadóttur og Söndru Valdi-
marsdóttur, fyrrv. nemum sínum.
ÍSLENDINGAR 75
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2015
Sigurbjörn fæddist í Glæsibæ íSæmundarhlíð 1.1. 1876, son-ur Gísla Sigurðssonar, bónda
þar og í Neðra-Ási í Hjaltadal, og
Kristínar Björnsdóttur húsfreyju.
Eiginkona Sigurbjörns var Guð-
rún, alþm. og rithöfundur, dóttir
Lárusar H. Halldórssonar, prófasts,
alþm. og fríkirkjuprests í Reykjavík,
og k.h., Kristínar Katrínar Péturs-
dóttur Guðjohnsen húsfreyju.
Sigurbjörn og Guðrún bjuggu að
Ási við Ásvallagötu í Reykjavík en
Guðrún fórst af slysförum, ásamt
tveimur dætrum þeirra hjóna er bif-
reið rann út í Tungufljót 1938.
Meðal barna Sigurbjörn og Guð-
rúnar voru Lárus, borgarminjavörð-
ur og öðrum fremur stofnandi Ár-
bæjarsafnsins; Gísli, forstjóri Elli-
og hjúkrunarheimilisins Grundar, og
Friðrik, stórkaupmaður í Reykjavík.
Sigurbjörn lauk stúdentsprófum
frá Lærða skólanum í Reykjavík
1897, embættisprófi í guðfræði frá
Prestaskólanum árið 1900 og fór
víða um heim til að kynna sér trú-
mála- og líknarstörf. Hann starfaði
að kristindómsmálum alla tíð, sinnti
barnaguðþjónustum guðfræðinema
1897-1900 og síðar sunnudagaskóla-
starfi í Reykjavík í fjóra áratugi.
Hann ferðaðist um landið í 30 sumur
til að vekja áhuga á kristilegu sjálf-
boðastarfi, kenndi við Kvennaskól-
ann, Barnaskóla Reykjavíkur,
Æskulýðsskólann, Kennaraskóla Ís-
lands, Verslunarskóla Íslands og
Vélstjóraskóla Íslands. Hann stofn-
aði, ásamt Gísla, syni sínum, Elli- og
hjúkrunarheimilið Grund og var
heimilisprestur þar frá 1942 og til
æviloka.
Sigurbjörn var ritstjóri kristi-
legra tímarita og sinnti ótal trún-
aðarstörfum fyrir bindindishreyf-
inguna, kristniboð og á sviði
líknarmála. Hann var formaður
sóknarnefndar Dómkirkjunnar í 30
ár, sat í framkvæmdanefnd Stór-
stúku Íslands, var stjórnarformaður
Sambands íslenskra kristniboðs-
félaga og formaður Barnavernd-
arráðs. Hann hlaut margvíslega við-
urkenningu frá íslenskum og
erlendum félagasamtökum.
Sigurbjörn lést 2.8. 1969.
Merkir Íslendingar
Sigurbjörn
Á. Gíslason
Gamlársdagur
95 ára
Sveinn Elíasson
90 ára
Anna Þórhallsdóttir
Elísabet Árný Árnadóttir
85 ára
Guðmundur Kristinsson
Þorsteinn Jónsson
80 ára
Anna Sch. Kristinsdóttir
Arnkell Jósepsson
Knútur Guðmundsson
Stefán Þórðarson
75 ára
Ólöf Bárðardóttir
70 ára
Hrafn Björnsson
Hrefna Ólafía
Arnkelsdóttir
Margrét O. Björnsdóttir
Ragnar Þór Baldvinsson
Sigfús Guðmundsson
60 ára
Anna María Þórarinsdóttir
Birna Guðmundsdóttir
Egill Ásgrímsson
Eiríkur Jón Líndal
Guðmundur Már Þórisson
Helgi Þórður Sigurjónsson
Inga Guðmunda Aradóttir
Katrín Jónsdóttir
Kristín Magnúsdóttir
Lárus Haukur Jónsson
Rannveig Ósk Agnarsdóttir
Sara B. Þorsteinsdóttir
Þórarinn Magnússon
50 ára
Anna Guðrún Norðfjörð
Baldvin Ari Guðlaugsson
Eygló Sigurjónsdóttir
Lena Kristín
Lenharðsdóttir
40 ára
Erlendur Stefánsson
Geirharður S. Jóhannsson
Hafsteinn Þorsteinsson
Haraldur Ólafsson
Heiða Dögg Jónsdóttir
Heiðar Guðmundsson
Ian Mark Wilson
Jessica Marie Bygd
Lárus Ari Knútsson
Marilyn Caballero Blance
Sigurður Jakob Guðjónsson
Nýársdagur
90 ára
Kenneth Robert Meade
Rósa Jónsdóttir
85 ára
Ólafía Thi Ngon Nguyen
80 ára
Guðrún Lísa Óskarsdóttir
Ólöf Sigríður Magnúsdóttir
Ragnar Víkingsson
Thi Them Luong
75 ára
Bergþór Ólafsson
Guðlaug Sveinbjarnardóttir
Gunnlaugur Baldvinsson
Herdís Magnúsdóttir
Kristín O. Júlíusdóttir
70 ára
Guðmundur Steindórsson
Guðný Árdís Helgadóttir
Herbert Herbertsson
Ruth E.M. Þorsteinsson
60 ára
Ármann Óskar Jónsson
Birna Sigríður Bjarnadóttir
Bjarni Brynjar Ingólfsson
Buatong Kongchai
Guðmundur Hagalínsson
Halldór Hreinsson
Jóna Dóra Karlsdóttir
Ólöf Leifsdóttir
Sigvaldi Júlíus Þórðarson
Þóra K. Sigursveinsdóttir
50 ára
Anna Kristín Úlfarsdóttir
Árdís Kjartansdóttir
Einar Steinþór Traustason
Gísli Gíslason
Gunnhildur H. Axelsdóttir
Harpa Þorgeirsdóttir
Joseph Howard McCue
Jóhann Ingi Pálsson
Laufey Jóhannesdóttir
Ólafur Karl Brynjarsson
Ólafur Ólafsson
Sigurjóna Bára Hauksdóttir
Trausti Hafsteinsson
Tryggvi Baldur Bjarnason
40 ára
Albert Steinþórsson
Atli Antonsson
Carolina Lasadio Alquino
Geirlaug Jóhannsdóttir
Jóhanna Gunnarsdóttir
Trausti Snær Friðriksson
Vignir Steinþór Halldórsson
Ýrr Baldursdóttir
Þór Harðarson
Laugardagur
95 ára
Guðrún Þorvaldsdóttir
90 ára
Oddur G. Jónsson
85 ára
Bragi Jónsson
Gunnar Stefánsson
Sveinbjörg
Ingimundardóttir
80 ára
Anna Nína Guðröðsdóttir
Guðmundur Kristjánsson
Jóhanna Þ. Bjarnadóttir
Matthildur Jónsdóttir
Óskar Helgi Einarsson
Sverrir Guðjónsson
Sölvi Magnússon
75 ára
Artha Rut Eymundsdóttir
Björgólfur Guðmundsson
Halldór Pálsson
Jón Róbert Karlsson
70 ára
Arnbjörg Guðmundsdóttir
Erla Thomsen
Hafdís Þóra
Ragnarsdóttir
Hallfríður Bjarnadóttir
Jón Óskar Carlsson
Lilja Björg Ólafsdóttir
Ólöf Guðmundsdóttir
Ríkharð Brynjólfsson
60 ára
Fjóla Guðmundsdóttir
Henryk S. Ponichtera
María Kristjánsdóttir
Ragnheiður Elfa Arnardóttir
Valdimar Einarsson
50 ára
António Manuel Goncalves
Erla Björk Þorgeirsdóttir
Guðlaugur G. Árnason
Hlynur Bergmann Birgisson
Ingibjörg Birna Elísdóttir
Ingibjörg Ýr Þorgilsdóttir
Jennifer G. Selario Gíslason
Valborg Sveinsdóttir
Walter Hallgrímur Ehrat
Þórarinn Torfason
40 ára
Bjarklind Alda Gísladóttir
Elín Margrét Kristjánsdóttir
Gunnar Stefánsson
Halldór Magnússon
Kristborg Steindórsdóttir
Til hamingju með daginn
Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Álfhellu 9 | 221 Hafnafirði | sími 564 6070
Fax 564 6071 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is
kvarnir.is
Kvörn í vaskinn
MIKILVÆG Ö
RYGGISTILK
YNNING
Vegna galla í loftrofa á tilteknum kvörnum
In-Sink-Erator Model 55+ og Model 65+
sem keyptar voru hjá okkur og hjá Ísleifi
Jónssyni frá september 2014 til og með
maí 2015, biðjum við þá kaupendur að
snúa sér til okkar og við munum leiðbeina
þeim um frekari aðgerðir. Leiðbeiningar
má finna á vefsíðu okkar www.kvarnir.
is. Þessi bilun snýr eingöngu að því þegar
notaður er loftrofinn til að kveikja og
slökkva á vélunum.