Morgunblaðið - 31.12.2015, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2015
Páskar íKína
19. mars - 1. apríl
Verð frá449.900 kr.*
og 12.500 Vildarpunktar
á mann í tvíbýli á 5 stjörnu hótelum
*Verð án Vildarpunkta 459.900 kr.
Fararstjóri er Héðinn Svarfdal Björnsson
VITA - Skógarhlíð 12 - Sími 570 4444Flogið með Icelandair
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Útgáfa Morgunblaðsins á nýju ári
hefst 2. janúar með blaðinu Tíma-
mótum, sem er samvinnuverkefni
New York Times og Morgunblaðs-
ins. Í blaðinu er að finna greinar
eftir rithöfunda og sérfræðinga um
innlend mál og erlend, menningu
og listir, ljósmyndir og skopmyndir
af innlendum og erlendum vett-
vangi þar sem farið er yfir helstu
atburði ársins og rýnt inn í framtíð-
ina.
Að auki gefur Morgunblaðið út
myndarlegt blað um heilsu, hreyf-
ingu og hollt líferni þennan dag.
Hefðbundið blað kemur svo út
mánudaginn 4. janúar.
Öflug fréttaþjónusta á mbl.is
Að venju verður öflug fréttaþjón-
usta á fréttavef Morgunblaðsins,
mbl.is, yfir áramótin. Hægt er að
senda ábendingar um fréttir á net-
fangið netfrett@mbl.is.
Afgreiðslutími um áramót
Þjónustuver áskriftadeildar er
opið á gamlársdag frá kl. 8-12.
Þjónustuverið verður lokað á ný-
ársdag en opið laugardaginn 2. jan-
úar kl. 8-12. Símanúmerið er
5691122 og netfang askrift@mbl.is.
Auglýsingadeildin er lokuð en net-
fangið er augl@mbl.is.
Blaðberaþjónusta er opin á gaml-
ársdagsmorgun frá 6-12. Lokað er
á nýársdag en opnað aftur 2. janúar
kl. 6-12. Símanúmer blaðberaþjón-
ustunnar er 5691440 og netfang
bladberi@mbl.is. Skiptiborðið
verður lokað yfir áramótin. Net-
fang ritstjórnar er ritstjorn-
@mbl.is. Hægt er að bóka dán-
artilkynningar á mbl.is.
Þjónusta um áramótin
5
6
9
0
9
0
0
0
0
0
9
0
0
V
er
ð
íl
au
sa
sö
lu
8
3
8
k
r.
Tímamót
HEIMURINN 2016
Tímamót í ársbyrjun í samvinnu við New York Times
Veðurstofa Íslands spáir sunnan og
suðaustan 10-18 m/s í dag og snjó-
komu eða éljum, en úrkomulítið
verður norðaustantil. Hvassara um
tíma sunnan- og suðvestanlands síð-
degis og síðar norðanlands, en dreg-
ur úr vindi seint annað kvöld. Hiti
um frostmark.
Spádeild Veðurstofunnar segir að
éljaganginum geti fylgt eldinga-
veður og er það þá bundið við sunn-
anvert landið og annes vestast á
landinu.
Búist er við besta áramótaveðrinu
á Norður- og Austurlandi.
Flugeldar
og eldingar
Mesti vindhraði
sem mældist í
ofsaveðrinu sem
gekk yfir Austur-
land í fyrrinótt og
fram eftir gær-
deginum var á
Vatnsskarði
eystra. Þar var
vindurinn 46,3
m/s þegar hvass-
ast var og sterk-
asta vindhviðan var 70,8 m/s. Í Pap-
ey mældist 38,6 m/s vindur og hviða
upp á 53,0 m/s. Í Hallsteinsdal mæld-
ist 34,6 m/s vindur og 57,9 m/s vind-
hviða.
Trausti Jónsson veðurfræðingur
greindi frá því á síðunni Hungur-
diskum í gær að lægsti sjávarmáls-
þrýstingur á landinu hefði mælst á
Kirkjubæjarklaustri klukkan fimm í
gærmorgun, 930,2 hPa. Það var
lægsti loftþrýstingur sem mælst
hafði á landinu frá 24. desember
1989 en þá mældust 929,5 hPa á
Stórhöfða í Vestmannaeyjum. Hinn
5. janúar 1982 mældist 929,9 hPa
þrýstingur einnig á Stórhöfða.
Lægsti loftþrýstingur sem mælst
hefur hér á landi mældist á Stór-
höfða 2. desember 1929 og var hann
920 hPa. Þetta kemur fram í grein
eftir Trausta á vef Veðurstofunnar.
Þar segir m.a. að loftþrýstingur fari
mjög sjaldan niður fyrir 940 hPa og
þá aðeins í stuttan tíma og á tiltölu-
lega litlu svæði. gudni@mbl.is
70,8 m/s
vindhviða
mældist
Hvassast á Vatns-
skarði í óveðrinu
Stormur Mjög
hvasst fyrir austan.
Vilhjálmur A. Kjartansson
Auður Albertsdóttir
Laust eftir hádegi í gær frömdu
tveir menn vopnað rán í útibúi
Landsbankans í Borgartúni. Talið er
að annar maðurinn hafi verið vopn-
aður skammbyssu og hinn vopnaður
hnífi. Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins höfðu mennirnir tveir í
frammi hótanir og kröfðust fjár-
muna af starfsmönnum bankans.
Rúnar Pálmason, upplýsinga-
fulltrúi Landsbankans, staðfesti í
samtali við mbl.is í gær að mennirnir
hefðu komist undan með einhverja
fjármuni, en ekki liggur fyrir hversu
mikla. Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins stökk annar mannanna
yfir borð í gjaldkerastúku og hrinti
gjaldkeranum sem þar var fyrir. Við
þetta skildi hann eftir fingraför sín á
borði.
Velferð starfsfólks mikilvægust
Steinþór Pálsson, bankastjóri
Landsbankans, sagði starfsfólki úti-
búsins illa brugðið en hann var
staddur í útibúi bankans þegar
blaðamaður mbl.is náði haf honum
tali í gær. Hann sagði engar veru-
legar skemmdir hafa orðið á úti-
búinu í ráninu en mestu máli skipti
velferð starfsfólksins.
„Flestir eru farnir heim núna eða
að fara heim núna. Útibúið verður
síðan lokað á morgun, gamlársdag, í
ljósi atburðanna en mörgum er illa
brugðið. Svona gerist sem betur fer
ekki oft en fólkið okkar er vel þjálfað
til að bregðast við.“
Bankaræningjarnir tveir voru
mjög ógnandi að sögn Steinþórs og
fékk starfsfólk útibúsins áfallahjálp.
„Þetta er auðvitað mikið áfall fyrir
okkur öll, bæði starfsfólk og fólkið
sem var að eiga viðskipti inni í úti-
búinu þegar þetta gerðist. Það voru
margir staddir hér inni þegar ránið
var framið.“
Röktu spor að Öskjuhlíð
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
brá skjótt við og strax var mynd úr
eftirlitsmyndavél bankans birt á vef
lögreglu og send fjölmiðlum og fólk
beðið um að veita lögreglu aðstoð við
að bera kennsl á mennina tvo en þeir
flúðu af vettvangi á stolinni hvítri
sendibifreið, sem fannst fljótlega eft-
ir bankaránið í Barmahlíð í Reykja-
vík. Þar náðust myndir af þeim á ör-
yggismyndavél og bar lögregla
kennsl á mennina af myndunum.
Við tók leit lögreglu á svæðinu en
vopnuð sérsveit embættis ríkislög-
reglustjóra leitaði í Öskjuhlíð ásamt
þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Að sögn íbúa í Hlíðunum flaug
þyrla Gæslunnar lágflug yfir Öskju-
hlíðinni, fór milli íbúðarhúsa í Hlíð-
unum, sunnan megin við Miklubraut,
og Öskjuhlíðar og beindi loftköstur-
um niður. Óstaðfestar heimildir
herma að þyrlan hafi notast við hita-
myndavélar og nætursjónauka við
leitina í Öskjuhlíð.
Tveir menn handteknir
Fljótlega upp úr kl. hálfsjö bárust
þær fregnir að búið væri að hand-
taka tvo menn í tengslum við banka-
ránið. Þá virðist sem leit lögreglunn-
ar og sérsveitarinnar í Öskjuhlíð hafi
lokið um svipað leyti, en hvorki lög-
reglumenn né lögreglubíla var þá að
sjá við Öskjuhlíðina.
Kristján Ólafur Guðmundsson, að-
stoðaryfirlögregluþjón hjá lögreglu
höfuðborgarsvæðisins, staðfesti í
gærkvöldi að búið væri að handtaka
tvo menn í tengslum við rannsókn
málsins og enn væri tveggja manna
leitað.
„Við gefum ekkert út um það
hvort mennirnir tveir sem nú er búið
að handtaka séu þeir sem fóru vopn-
aðir í útibú Landsbankans. Það eina
sem ég get sagt er að búið er að
handtaka tvo menn í tengslum við
ránið og við erum enn að leita
tveggja manna,“ sagði Kristján í
samtali við Morgunblaðið um hálf-
áttaleytið í gærkvöldi.
Vopnað bankarán
Tveir vopnaðir menn rændu útibú Landsbankans í Borgartúni upp úr hádegi í
gær Lögreglan rakti slóð þeirra í Öskjuhlíð þar sem sérsveitin leitaði þeirra
Vopn Þessi mynd af mönnunum tveimur náðist á öryggismyndavél útibúsins
er þeir komu þangað inn. Annar þeirra vera með hníf, hinn með skotvopn.
Með byssu Mynd úr örygg-
ismyndavél af öðrum mannanna.
Morgunblaðið/Júlíus
Sérsveitin Á planinu við bensínstöð Shell í Skógarhlíð í gær. Vopnuð sér-
sveit lögreglu virðir fyrir sér spor áður en haldið er til leitar í Öskjuhlíð.