Morgunblaðið - 31.12.2015, Blaðsíða 78
78 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2015
Ingvar Smári Birgisson
isb@mbl.is
Meirihluti Íslendinga mun sitja fyrir
framan sjónvarpstækið klukkan
hálfellefu í kvöld og horfa á Ára-
mótaskaupið. Skaupið er síðan um-
talsefni í fjölmörgum boðum um allt
land, þar sem það er rökrætt og rifj-
að upp, gagnrýnt og krufið.
Atli Fannar Bjarkason, einn
handritshöfunda Skaupsins og rit-
stjóri Nútímans, segir að Skaupið í
ár verði ekki jafn
pólitískt og fyrri
ár. „Maður vill
ekki gefa of mikið
upp, aðallega til
að skemma ekki
fyrir fólki, en það
var samt alveg
eitt af leiðarstefj-
unum að fara
ekki út í of harða
pólitík,“ segir
hann. „Þannig
vorum við meira að pæla í að gera
skemmtiþátt, þar sem þjóðarsálin er
tækluð, frekar en að einblína á póli-
tíkusa. Stundum hefur verið póli-
tískt þema út í gegn en við ákváðum
að halda pólitíkinni í lágmarki, þó
hún sé auðvitað á svæðinu, og líka að
reyna að finna nýjar leiðir til að
tækla pólitíkina; pakka henni inn á
annan hátt en hefur verið gert áð-
ur.“
Handritshöfundar Skaupsins eru
fjórir í ár, þau Guðjón Davíð Karls-
son (Gói), Katla Margrét Þorgeirs-
dóttir, Steinþór Hróar Steinþórsson
(Steindi Jr.) og Atli Fannar Bjarka-
son, en jafnframt leika Gói, Katla og
Steindi Jr. í Skaupinu. Kristófer
Dignus Pétursson fer með leik-
stjórn.
Í ár var ákveðið að koma á fót svo-
kölluðu grínráði, sem yrði skipað
fagfólki úr skemmtana- og grín-
bransanum, til að aðstoða við gerð
Skaupsins. Var það hugmynd að
bandarískri fyrirmynd. „Það var feit
pæling sem gekk ekki upp,“ segir
Atli Fannar um grínráðið. „Það var
haldinn einn fundur með grínráðinu.
Fundurinn var fínn, en við sáum
samt að þetta var kannski ekki alveg
málið. Fundirnir urðu ekki fleiri og
aðkoman var í lágmarki.“
Steindi Jr. sér um lokalagið
Steindi Jr. er þekktur fyrir grín-
lög og var Atli Fannar því spurður
um aðkomu tónlistar að Skaupinu í
ár. „Það var frábært að hafa hann
því hann heldur utan um lokalagið
og gerði það alveg stórkostlega. Það
verður gaman að sjá það, hann er
svo góður í að gera fyndin lög sem
eru líka algjörir „hittarar“. Hann
var mjög harður á því að það þyrfti
að brjóta Skaupið reglulega upp með
tónlist og við vorum öll sammála um
það. Ég veit samt ekki hvort það er
minni eða meiri tónlist en áður.“
Oft hefur vel tekist til í Skaupinu
að finna leikara sem líkjast stjórn-
málamönnum þjóðarinnar. Atli
Fannar segir að einhver ný andlit
verði í leikaraliðinu í pólitísku inn-
slögunum en staðfestir þó að Hannes
Óli Ágústsson muni verða áfram í
hlutverki Sigmundar Davíðs Gunn-
laugssonar forsætisráðherra enda
hafi hann verið frábær í því hlutverki.
Almar í kassanum og flóttafólk
Handritshöfundahópurinn hefur
unnið að Skaupinu frá því í vor og
stóðu tökur fram í desember. Margt
áhugavert rak á fjörur íslensku
þjóðarinnar í desember, til að
mynda listagjörningur Almars Atla-
sonar, sem talið er líklegt að hafi
verið settur inn í Skaupið á síðustu
stundu. „Þó ég vilji alls ekki stað-
festa aðkomu Almars þá urðum við
auðvitað að ræða hana eftir að hann
kom út úr kassanum, enda vakti
hann gríðarlega athygli, en mér
skilst að þetta sé alltaf unnið þannig
að Skaupið sé nánast klárað og síðan
séu skildar eftir nokkrar mínútur ef
eitthvað gerist. Munurinn á árinu í
ár og fyrri árum er að það gerðist
svo mikið á síðustu stundu. Allt í
einu var verið að senda flóttafólk í
flugvél heim á næturnar og Almar
fór í kassann. Þetta var allt að ger-
ast eftir að við ætluðum að vera bú-
in, en við urðum auðvitað að taka af-
stöðu til þessara viðburða, þó ég vilji
ekki gefa upp hver afstaðan var,“
segir Atli Fannar.
Atli Fannar fylgist með Twitter
Ritun Skaupsins er frumraun Atla
Fannars í handritsgerð og kveðst
hann vera stressaður, en spenntur
fyrir viðbrögðum fólks.
„Þetta er það fyrsta sem ég skrifa í
gríni. Þetta er fyndinn staður til að
byrja á, því allir munu horfa á þetta
og allir munu hafa skoðun á þessu.
Þetta er bæði stressandi og mjög
spennandi á sama tíma. Ég læt nú
yfirleitt ekki neikvæðni hafa mikil
áhrif á mig en ég er mjög stressaður
yfir viðbrögðunum, því ég vil auðvitað
að fólki finnist þetta skemmtilegt og
því verð ég eflaust mjög stressaður að
fletta í gegnum Facebook og Twitter
á gamlárskvöld,“ segir Atli Fannar.
Skaupið ekki jafn pólitískt og áður
Þjóðarsálin verður tekin fyrir Leiðarstef við gerð Skaupsins að fara ekki út í of harða pólitík
Grínráðið „feit pæling sem gekk ekki upp“ segir Atli Fannar, einn handritshöfunda Skaupsins
Dónakarlar? Steindi Jr. og Randver Þorláksson í Áramótaskaupinu 2015. Ekki fylgir sögunni hvaða dónakarlar eru þarna á ferð.
Atli Fannar
Bjarkason
Ingvar Smári Birgisson
isb@mbl.is
Stórtónleikar Rótarý verða haldnir
sunnudaginn 3. janúar í Norður-
ljósasal Hörpu. Burðarásar tón-
leikanna verða Jónas Ingimund-
arson píanóleikari og Magnús Bald-
vinsson óperusöngvari en einnig
koma fram verðlaunahafar Tónlist-
arsjóðs Rótarý. Kynnir tónleikanna
er Bergþór Pálsson.
Magnús og Jónas munu flytja
ýmis sönglög, íslensk og erlend, og
í lok tónleikanna þrjár glæsiaríur
úr fjölbreyttu safni sem Magnús
hefur flutt erlendis á undanförnum
árum.
Óperusöngvari í fremstu röð
Síðan 1994 hefur Magnús starfað
við nokkur óperuhús sem fastráðinn
söngvari en frá árinu 1999 við óp-
eruna í Frankfurt. Hann hefur
komið víða fram í Þýskalandi,
Bandaríkjunum, á Norðurlöndum
og í Japan.
Magnús hefur lagt mikla áherslu
á ítalskar óperur, sérstaklega óp-
erur eftir Verdi, þar sem hann hef-
ur komið fram í 17 af 26 óperum
hans. Sem gestasöngvari hefur
hann m.a. komið fram í Semperoper
Dresden, Barcelona, NHK óperunni
í Tokyo, Savonlinna Opera Festival
í Finnlandi og Lissabon-óperunni.
Hann tók þátt í uppfærslu Þjóðleik-
hússins á Niflungahring Wagners
og Á valdi örlaganna eftir Verdi.
Langt er síðan Magnús söng í óp-
eru á Íslandi, annars staðar en í
kirkjum. „Ég er að standa á sviði
sem sólósöngvari á öðru sviði en í
kirkju í fyrsta sinn í tuttugu ár á
Íslandi. Ég hef ekkert sungið síðan
árið 1995 í verkinu Á valdi örlag-
anna með Kristjáni Jóhannssyni og
fleirum í Þjóðleikhúsinu. Ég hef
eingöngu verið, að því leytinu til,
erlendis í óperuflutningi,“ segir
Magnús og bætir við að hann telji
að tónleikarnir verði glæsilegir.
Magnús: „Að sjálfsögðu!“
„Jónas Ingimundarson hringdi í
mig í sumar og sagðist vera búinn
að reyna að fá mig í nokkur ár til að
syngja á þessum tónleikum Rótarý-
manna í byrjun ársins. Það tókst
núna í fyrsta sinn. Hann spurði mig
hvort ég væri til og ég sagði: „Að
sjálfsögðu!““
Stórtónleikar Rótarý haldnir í Hörpu
Magnús Baldvinsson óperusöngvari kemur fram ásamt
Jónasi Ingimundarsyni píanóleikara á tónleikunum
Reynslumikill Magnús Baldvinsson hefur verið fastráðinn við óperuna í
Frankfurt frá árinu 1999. Hann leggur einkum áherslu á ítalskar óperur.
Ungt hæfileikafólk verðlaunað
Verðlaunahafarnir í ár eru tveir
hæfileikaríkir ungir tónlistarmenn,
þær Ásta Kristín Pjetursdóttir
víóluleikari, sem er fædd árið 1996,
og Sigrún Björk Sævarsdóttir,
sópran, sem er fædd árið 1990. Fá
þær hvort um sig 800.000 króna
styrk frá Rótarý á Íslandi. Meðal
fyrri styrkþega er Víkingur Heiðar
Ólafsson sem var fyrsti verðlauna-
hafi Tónlistarsjóðs Rótarý árið
2005.
Sigrún Björk stundar meist-
aranám í óperusöng í Hochschule
für Musik und Theater Felix Mend-
elssohn hjá Prófessor Roland Schu-
bert. Undanfarið ár hefur Sigrún
sungið við óperurnar í Leipzig og
Halle í Þýskalandi. Ásta Kristín
stundar nám hjá Tim Frederiksen á
Det Kongelige Danske Musikkons-
ervatorium í Kaupmannahöfn. Ásta
hefur starfað með Sinfóníuhljóm-
sveit unga fólksins og Ungsveit Sin-
fóníuhljómsveitarinnar.
Miðasala fer fram á harpa.is og í
miðasölu Hörpu frá 12-17 á virkum
dögum. Tónleikarnir eru öllum opn-
ir. Miðaverð er 5.000 krónur.