Morgunblaðið - 31.12.2015, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 31.12.2015, Blaðsíða 42
42 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2015 SVIÐSLJÓS Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Hið íslenska biblíufélag fagnaði í ár 200 ára afmæli sínu, en það mun vera elsta félag landsins sem enn starfar. Félagið hefur minnst þess- ara tímamóta á veglegan hátt og staðið fyrir mörg- um viðburðum á árinu. Ragnhild- ur Ásgeirsdóttir, framkvæmda- stjóri Biblíu- félagsins, segist vera hæstánægð með það hvernig árið hafi gengið. Það hafi verið krefjandi, en jafnframt gefandi að fá að taka þátt í þessu merka afmæl- isári. Afmælisárið hófst formlega í fyrstu viku janúar, þegar Karl Sig- urbjörnsson, biskup og fyrrverandi forseti félagsins, flutti fyrstu hug- leiðingu sína af þrettán í tilefni afmælisársins á útvarpsstöðinni Lindinni. Kirkjur landsins tóku einnig fullan þátt í afmæli félagsins og stóðu fyrir ýmsum viðburðum á árinu. Má þar til dæmis nefna Biblíukvikmyndaviku í Bústaða- kirkju og fræðsluerindi um Biblíuna í Glerárkirkju og í Laugarneskirkju. Fræðasamfélagið lét einnig til sín taka á afmælisárinu, en tvær mál- stofur á Hugvísindaþingi 2015 voru tileinkaðar áhrifasögu Biblíunnar á ýmsum sviða bókmennta og lista. Afhjúpaður skjöldur Á afmælisdegi félagsins, föstu- daginn 10. júlí, var haldin hátíðar- guðsþjónusta í Dómkirkjunni í Reykjavík og var reynt að hafa hana með svipuðu sniði og guðsþjónustu árið 1815. Biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir, prédikaði og sr. Sveinn Valgeirsson dómkirkjuprest- ur þjónaði fyrir altari. Að guðsþjónustunni lokinni var gengið í fylkingu að minnisvarða í Fógetagarðinum, þar sem lagður var blómsveigur til heiðurs Geir Ví- dalín, fyrsta forseta félagsins og biskupi árið 1815. Að því loknu var haldið að Aðalstræti 10, þar sem fé- lagið var stofnað, og afhjúpaður þar minningarskjöldur. Hinn 29. ágúst var svo haldin sér- stök afmælishátíð félagsins í Hall- grímskirkju, en Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir stýrði þar fjölbreyttri dagskrá, þar sem tónlist var ekki síst í fyrirrúmi, en að auki flutti for- seti Íslands, Ólafur Ragnar Gríms- son, ávarp um þátt Biblíufélagsins í sögu þjóðarinnar. Hundrað ára afmæli kosninga- réttar kvenna voru einnig gerð góð skil á afmælisári félagsins og stóð félagið fyrir myndlistarsýningu í byrjun september, sem hét Konur og Kristur, en þar sýndu myndlist- arkonurnar Elva Hreiðarsdóttir, Hanna Pálsdóttir, Hildur Ásgeirs- dóttir, Ragnheiður Guðmundsdóttir, Rúna Gísladóttir, Steinunn Einars- dóttir og Þórey Magnúsdóttir, einn- ig þekkt sem Æja, verk sín. Dr. Auð- ur Eir Vilhjálmsdóttir, fyrsti kvenprestur Íslands, opnaði sýn- inguna. Afmælisárinu lauk svo hinn 11. desember síðastliðinn með tón- leikum í Dómkirkjunni, en þar fluttu frænkurnar Margrét Hannesdóttir sópran og Hólmfríður Sigurðar- dóttir píanóleikari tónlist sem samin hefur verið við texta Biblíunnar, eft- ir innlenda og erlenda höfunda eins og Pál Ísólfsson, Dvorak og Händel. Ærið verk að þýða Biblíuna Spurð um framtíð félagsins segir Ragnhildur að ýmis spennandi verk- efni séu framundan. „Hið íslenska biblíufélag vinnur enn að sömu markmiðum og sett voru í upphafi, þegar félagið var stofnað fyrir 200 árum, árið 1815, að efla útbreiðslu Biblíunnar hérlendis og erlendis og stuðla að notkun hennar,“ segir Ragnhildur. Hún bendir á að Biblían hafi komið út á tæplega 3.000 tungu- málum, en talið er að í heiminum séu til um 7.000 tungumál. „Það er því ærið verkefni að taka þátt í þýð- ingar- og útbreiðsluverkefnum Sam- einuðu biblíufélaganna, United Bible Societies, sem eru regnhlífarsamtök fyrir öll biblíufélög í heiminum.“ Þá sé það spennandi verkefni í samfélagi nútímans að kynna Biblí- una og boðskap hennar eftir nýjum leiðum. „Nýja testamentið hefur um hríð verið til á hljóðbók og nýlega kom Biblían í heild sinni út sem raf- bók hjá Forlaginu, þannig að nú get- ur fólk lesið Biblíuna á spjaldtölvum sínum,“ segir Ragnhildur. Þannig sé verið að mæta þörfum nútímafólks og gera Biblíuna aðgengilegri. „Það þarf að hugsa út fyrir rammann, vera opin fyrir nýjum leiðum, eiga samtal við fólk á öllum aldri og bjóða fólki að taka þátt í starfsemi félags- ins,“ segir Ragnhildur. Mikil mótunaráhrif Biblíunnar Hún bætir við að Biblían og ein- staka rit hennar hafi fylgt mannkyn- inu í meira en 2000 ár og mótað við- horf og menningu Vesturlanda og reyndar langt út fyrir þau. „Vitn- eskjuna um þau menningarlegu mótunaráhrif þarf kannski að skerpa á meðal samtíðarinnar til þess að samhengið þarna á milli rofni ekki, því samfélagið er stöðugt að breytast og við viljum sjá fram- farir, framþróun og umbætur,“ segir Ragnhildur. Hún bætir því við að miklar fram- farir hafi orðið á högum okkar á síð- ustu 100 árum, sem hafi kannski óbeint leitt til þess að okkur þyki við vera mun fremri en forfeður okkar, upplýstari og fróðari. „Okkur hættir stundum til að gleyma visku og þekkingu undangenginna kynslóða,“ segir Ragnhildur. „Breytingar gera kröfur til þeirra sem þær reyna og fela í sér ábyrgð og ögrun, þær fela í sér tækifæri til aukins þroska. Þess vegna er það ábyrgð okkar að kasta ekki öllu því sem við höfum lært, góðum gildum, út í buskann heldur varðveita, meta og þakka,“ segir Ragnhildur að lok- um. Afmælisár Frú Agnes Sigurðardóttir, biskup Íslands, afhjúpar minningarskjöld um stofnun Bibl- íufélagsins í Austurstræti 10 en þar var félagið stofnað fyrir 200 árum. Áhrif Biblíunnar umtalsverð  Komið að lokum viðburðaríks afmælisárs Hins íslenska biblíufélags  Fjöldi viðburða haldinn á árinu  Mörg spennandi verkefni framundan hjá félaginu  Reynt að gera Biblíuna aðgengilegri Morgunblaðið/Árni Sæberg Áhrif Biblíunnar á tónlist Mikið var um dýrðir á afmælishátíð Biblíufélagsins hinn 29. ágúst síðastliðinn. Þau Gunnar Kvaran og Elísabet Waage voru á meðal þeirra sem komu fram. Ljósmynd/Biblíufélagið Tónleikar Afmælisárinu lauk með tónleikum þar sem þær Margrét Hann- esdóttir sópran og Hólmfríður Sigurðardóttir píanóleikari komu fram. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, flutti ávarp í Hallgrímskirkju á afmælishátíð Hins íslenska biblíu- félags. Þar vísaði hann til þeirrar tengingar sem ríkti á milli kristni og íslensks samfélags og sagði meðal ann- ars: „Það gleymist oft í orðræðu okkar tíma, þegar kraf- ist er að kristnum textum sé ýtt til hliðar í skólum landsins og við uppeldi æskunnar, að menning og veg- ferð Íslendinga frá landnámstíð til þessarar nýju aldar, rösk þúsund ár í sögu þjóðar, verða ekki skilin til hlítar án þekkingar á kristnum fræðum; frásagnir Biblíunnar, sess og þróun kirkjunnar, störf presta í byggðum lands- ins séu öllum kunn og að verðleikum metin; að viðurkennt sé af heilum huga að hin helga bók og trúarskáldskapur Íslendinga sjálfra eru burðar- stoðir í sjálfsvitund þjóðarinnar, í samfelldri sögu okkar og í nýsköpun bókmennta, lista og samfélags á okkar tímum.“ Burðarstoð í vitund þjóðar ÚR ÁVARPI FORSETA ÍSLANDS 29. ÁGÚST 2015 Ólafur Ragnar Grímsson Ragnhildur Ásgeirsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.