Morgunblaðið - 31.12.2015, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 31.12.2015, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2015 Vandaður kuldafatnaður á góðu verði Útsöluaðilar: Útilíf Kringlunni – Smáralind – Glæsibæ I K Sport Keflavík I Nína Akranesi Sportver Akureyri I Borgarsport Borgarnesi I Sportbær Selfossi I Axel Ó Vestmannaeyjum Stærðir 2–12 ára Verið getur að auglýstar vörur séu ekki til hjá útsöluaðila. Umboðsaðili: DanSport ehf. VIÐTAL Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Hjörtur Traustason sigraði í söng- keppninni The Voice á Skjá einum fyrr í mánuðinum en hann heillaði landann með rödd sinni og fram- komu. Hann fluttist til Bolung- arvíkur í sumar ásamt eiginkonu sinni Freydísi Ósk Daníelsdóttur og dætrunum Agnesi Evu og Stefaníu Rún eftir 17 ára „útlegð“ í höf- uðborginni. Þau eiga síðan von á þriðju dótturinni í mars. „Mig langaði alltaf að koma heim aftur og vera í faðmi stórfjölskyld- unnar. Mín mafía er fyrir vestan, allt mitt fólk og hér er gott að vera,“ seg- ir Hjörtur. „Okkur líkar rosalega vel hér. Það er svo rólegt hérna, stundum fullró- legt en það er bara mjög gott. Ég þekki hitt, ég er búinn að eiga heima helminginn af ævinni fyrir sunnan,“ segir Hjörtur sem er úr sveit fyrir ofan Bolungarvík, frá Þjóðólfstungu, sonur Hjördísar Jónsdóttur og Trausta Bernódussonar. Hann er kominn af miklu söng- fólki. „Þegar við hittumst á manna- mótum, ættarmótum og fjölskyldu- veislum, þá er mikið sungið,“ segir hann. Góður hljómur í fjósinu Sjálfur var hann alltaf sönglandi sem barn. „Ég ólst upp við að mjólka beljur og gefa skepnum,“ segir hann og bætir við að það hafi verið gaman að syngja í bergmálinu í fjósinu, eitt- hvað sem hann og móðurbróðir hans og vinur Stefán Steinar hafi nýtt sér óspart. Hann á ennfremur þrjú systkini sem öll syngja líka mikið. Söngurinn var alltaf í félagslegum tilgangi, „límið sem límir okkur öll saman“. Hann játar því aðspurður að hann sé maðurinn sem taki upp gítarinn í partýum. Fyrir mér er gítarpartý það besta í heimi,“ segir Hjörtur, sem er ekki mikið fyrir miðbæj- arskemmtanir en vill „heldur sitja í góðra vina hópi, tralla á gítarinn og syngja. Þá gerist eitthvað, einhverjir töfrar. Sérstaklega þegar þú færð hóp með þér sem vill syngja og skemmta sér. Það eru bestu partý- in.“ Hjörtur segir að hann hafi ekki farið að syngja fyrir alvöru fyrr en hann byrjaði í kórnum Fjallabræðr- um árið 2009. Hann segir það vera öflugan og skemmtilegan fé- lagsskap. Hann saknar vinanna úr kórnum en eitt sinn Fjallabróðir, ávallt Fjallabróðir. „Ég sagði við strákana að ég þyrfti að hætta í Fjallabræðrum,“ segir hann en þetta var þegar komið var að flutningi vestur. Þá fékk hann svarið að það væri ekki hægt. Það væri bara ein leið út: Að drepast. „Ég var alltaf að syngja með mínu fólki en það er allt annað að syngja fyrir ókunnuga.“ Halldór Gunnar Pálsson kórstjóri hefur hvatt hann mikið áfram og hef- ur verið örlagavaldur í hans lífi, seg- ir Hjörtur. Fannst hann of gamall Hringt var í Hjört og hann beðinn um að taka þátt í The Voice. Hann segist bara hafa verið að „leggja parket á Bústaðavegi“ þegar kona hringir í hann og spyr hvort hann vilji koma fram í sjónvarpi. Hann segist ekki hafa áttað sig strax á því hversu umfangsmikið þetta væri en ákvað að slá til. Hann fékk fiðring í magann við tilhugsunina en efa- semdir létu líka á sér kræla. „Mér fannst ég vera of gamall í þetta,“ segir Hjörtur, sem er 35 ára. Hann var hvattur áfram af vinum og sér að vonum ekki eftir því að hafa tekið þátt en var alltaf að spá í hver hefði bent á hann. „Svo komst ég að því eftir keppn- ina að það hefði verið Halldór Gunn- ar, kórstjóri Fjallabræðra, sem benti á mig. Hann vildi ekkert láta mig vita af því, eins og hann sagði: „Fyrr en ég væri búinn að vinna þetta.“ Svo hló hann bara.“ Vinur hans hafði sett söng- myndbönd af Hirti inn á YouTube sem höfðu hjálpað til við að vekja at- hygli á honum en Hjörtur segist sjálfur hafa kunnað lítið á samfélags- miðlana fyrir keppnina. „Ég er gam- aldags og lærði á Facebook, In- stagram, Twitter og allt þetta bara fyrir keppnina.“ Meira en stígvélin og sjógallinn The Voice er margþættur þáttur og er að hluta til sendur í beinni út- sendingu. „Þetta var svolítið meira en að fara í stígvél og sjógallann. Maður var bara úti á ballarhafi og vissi ekk- ert hvað maður ætti að gera,“ segir Hjörtur sem var í liði Svölu Björg- vins. „Rauði þráðurinn í þessu öllu sam- an er hvað þetta fólk er æðislega skemmtilegt. Þetta var frábær upp- lifun. Maður er alltaf tilbúinn til að draga sig niður frekar en að hífa sig upp. Trúin á sjálfan sig er ekki nóg,“ segir hann og rifjar upp hvernig Svala hafi stappað í hann stálinu og er hann henni þakklátur. „Það er svo góð tilfinning að leyfa sér að trúa, að maður sé söngvari í hjarta sínu og það er það sem ég tók út úr þessari keppni. Maður getur alltaf gert betur. En ef maður heldur að maður sé of góður, þá er maður búinn að tapa.“ Finnurðu fyrir sviðsskrekk? „Hann er alltaf þarna og verður að vera þarna en um leið og ég er kom- inn á svið þá er hann bara búinn.“ Hann myndaði góð tengsl við fólk- ið í kringum þáttinn og segir allt í kringum sig hafa verið lærdómsríkt og að hann lifi á þessu alla ævi. Næsta keppni er síðan framundan hjá Hirti, sem tekur þátt í und- ankeppni Eurovision á RÚV. Þar syngur hann dúett með Ernu Hrönn Ólafsdóttur, lagið „Hugur minn er“, eftir Þórunni Ernu Clausen. Ernu Hrönn kynntist hann einmitt í The Voice þar sem hún var í bakröddum en hún er líka reyndur Eurovision- keppandi. „Þetta er svona lím- heilalag,“ segir Hjörtur sem lofar grípandi og skemmtilegu lagi. Hjörtur hlakka því til komandi árs og ekki verða ævintýrin minni á því ári en 2015 með aðra söngva- keppni framundan og barn í vænd- um. „Nú tekur næsta keppni við. Ég ætla nú ekkert að syngja í söngva- keppnum allt mitt líf en þetta er góð kynning. Að ég tali nú ekki um ef maður kemst út.“ Eins og aðrir hlakkar hann til hækkandi sólar eftir dimman des- ember.„Maður reynir alltaf að vera með sól í hjartanu en það er stund- um ekki bara nóg.“ Söngurinn er límið í fjölskyldunni  Hjörtur Traustason er sigurvegari keppninnar The Voice á Íslandi  Tekur þátt í undankeppni Eurovision  Nýfluttur aftur til Bolungarvíkur eftir 17 ára „útlegð“ í höfuðborginni Sigurreif Hjónin Hjörtur Traustason og Freydís Ósk Daníelsdóttir eftir að Hjörtur var útnefndur sigurvegari i söngkeppninni The Voice. Hjörtur segir að nú þegar hann er kominn til vinnu aftur fyrir vestan þar sem hann vinnur hjá verktaka við snjómokstur og fleira finnist honum óraunverulegt að þetta hafi allt gerst. En ævintýrin halda bara áfram hjá Hirti. „Ég fer á fullt skrið í tónlistinni eftir áramót,“ segir hann en sig- urinn í The Voice opnar ýmsar dyr og auðveldar honum að leita til fólks vegna samstarfs en hann hefur hug á því að senda frá sér plötu. „Söngurinn hefur alltaf verið áhugamál hjá mér, svona spari, en það er svo gefandi að syngja og gleðja aðra,“ segir Hjörtur sem hlakkar til að hella sér út í tónlist- ina. „Þetta er búinn að vera svo langur undirbúningur án þess að maður vissi af því,“ segir hann. Hann segist njóta sín á sviði og njóta þess að syngja og finnst skemmtilegast að syngja íslensk lög. „Öll stóru lögin og svo er það rokkið,“ segir Hjörtur en í úr- slitaþættinum söng hann einmitt eitt af þeim lögum sem einkenndu árið 2015, „Ég er kominn heim“, sem Óðinn Valdimarsson gerði frægt á sínum tíma. Var það mjög við hæfi enda er hann sjálfur kom- inn heim í Bolungarvíkina og kom- inn á rétta hillu í sönglistinni. Stefnir að plötuútgáfu NÆG VERKEFNI FRAMUNDAN HJÁ HIRTI Með dætrunum Hjörtur með dætrum sínum, Agnesi Evu og Stefaníu Rún.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.