Morgunblaðið - 31.12.2015, Blaðsíða 80
80 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2015
Stórsveit Reykjavíkur fagnar nýju
ári með árlegum sveiflualdartón-
leikum í Silfurbergi í Hörpu á sunnu-
dag klukkan 17. Þetta verður í þriðja
sinn sem sveitin heldur stórtónleika
helgaða swing-tímabilinu eða gullöld
sveiflunnar á tímabilinu um 1930 til
1945. Á efnisskránni eru mörg af
kunnustu dægurlögum þessa tíma,
lögum sem voru flutt af þekktum
stórsveitum sem var stjórnað af
mönnum á borð við Benny Goodman,
Artie Shaw, Jimmy Lunceford, Cab
Calloway, Charlie Barnet, Les
Brown, Glenn Miller, Duke Ellington
og Count Basie. Gestasöngvarar á
tónleikunum verða þau Andrea
Gylfadóttir og Páll Rósenkranz. Sig-
urður Flosason stjórnar og kynnir.
„Við erum að koma upp seríum
innan tónleikaseríunnar á hverju
starfsári, rétt eins og Sinfón-
íuhljómsveitin gerir,“ segir Sigurður
um sveiflualdartónleikana. „Þetta er
í þriðja sinn sem við tökumst á við
þetta tímabil, og eiginlega í það
fjórða því fyrir fjórum árum vorum
við með tónleika í Eldborg tileinkaða
tónlist Glenn Miller sem tókust vel.
Við hömpum nú swing-tímabilinu í
heild sinni og leikum úrval þekktra
laga með ólíkum hljómsveitum. Á
hverju ári flytjum við að mestu leyti
nýja efnisskrá, þó inn á milli séu ein-
hver lög sem við höfum spilað áður.
Grunnhugmyndin er þó alltaf sú
sama.“
Sigurður segir að Stórsveitin flytji
útsetningar á lögunum frá þeim tíma
þegar þau urðu vinsæl.
„Allt á tónleikunum er flutt í upp-
haflegum útsetningum og við reyn-
um að endurskapa þennan hljóm eins
nákvæmlega og við getum. Við leggj-
um töluvert á okkur í því að finna
þetta efni, þessar nótur, sem eru að
verða auðfundnari en lengi vel, það
er farið að gefa þær út og úti í heimi
eru menn sem dunda sér við að skrifa
þetta upp eftir plötum. Rétt eins og
þegar Sinfónían leikur Beethoven
eða Mozart, þá er tónlist þessa tíma-
bils kjarnatónlist hjá okkur. En líka
annar stíll af músík en við spilum
venjulega,“ segir Sigurður og bætir
við: „Eins og í öðrum verkefnum sem
við tökumst á við reynum við að taka
þetta alla leið. Og þessi tónlist var
popp síns tíma. Benny Goodman og
Tommy Dorsey voru Elvis og Mich-
ael Jackson á þessum árum. Þetta er
fjölbreytt flóra.“
Hvað varðar gestasöngvarana,
Andreu og Pál, segir Sigurður að
Andrea, sú einstaklega snjalla söng-
kona, hafi oft komið fram með Stór-
sveitinni. Páll syngur hinsvegar nú í
fyrsta skipti með henni „og er að
koma frábærlega út,“ segir hann.
efi@mbl.is
Ljósmynd/Jón Svavarsson
Kjarnatónlist „Þessi tónlist var popp síns tíma. Benny Goodman og Tommy Dorsey voru Elvis og Michael Jackson á
þessum árum,“ segir Sigurður Flosason um swing-tímabilið. Hann stjórnar hér hinni öflugu Stórsveit Reykjavíkur.
Endurskapa
swing-hljóminn
Stórsveitin hyllir sveifluöldina
Ólöglegi innflytjandinn – var Nína
Tryggvadóttir kommúnisti og
hættuleg Bandaríkjunum? nefnist
fyrirlestur sem Hallgrímur Odds-
son, blaðamaður og hagfræðingur,
heldur í Listasafni Íslands á sunnu-
daginn, 3. janúar, kl. 14. Nína flutti
til New York á 5. áratug síðustu
aldar og skapaði sér nafn sem
myndlistarkona. Hún kynntist
þýsk-ættaða vísindamanninum og
listamanninum Al Copley og giftu
þau sig árið 1949. Að lokinni dvöl
hér á landi ætlaði Nína að snúa aft-
ur til New York en hlaut ekki land-
vistarleyfi þar sem hún hafði verið
sökuð um kommúnískan áróður
sem átti rætur sínar að rekja til Ís-
lands. Barnabók eftir hana, Fljúg-
andi fiskisaga, var talin komm-
únískur áróður og voru þau Copley
aðskilin til fjölda ára.
Hallgrímur hefur farið í gegnum
bréfasafn Nínu frá þessum árum og
í fyrirlestrinum rekur hann baráttu
Nínu fyrir landvistarleyfi í Banda-
ríkjunum. „Ósk þeirra Al og Nínu
mætti mikilli andstöðu bandaríska
konsúlsins á Íslandi, í anda
hræðsluáróðurs McCarty-isma þess
tíma. Konsúllinn byggði afstöðu
sína fyrst og fremst á upplýsingum
frá óvildarmönnum Nínu í Reykja-
vík. Áður en yfir lauk teygði málið
anga sína djúpt inn í bæði íslenskt
og bandarískt stjórnmálakerfi og
átti Nína eftir að dúsa með öðrum
ólöglegum innflytjendum á Ellis Isl-
and,“ segir m.a. í tilkynningu frá
Listasafni Íslands. „Hverjir voru
þessir óvildarmenn Nínu? Er
barnabókin Fljúgandi fiskisaga
kommúnískur áróður sem beint er
gegn bandarískum stjórnvöldum?
Var Nína kommúnisti? Hvernig
hafði álagið vegna aðskilnaðarins
og langvarandi baráttu áhrif á líf
og listamannsferil Nínu?“ er spurt í
tilkynningunni. Hallgrímur muni
reifa þessar og fleiri spurningar og
rekja einstaka baráttu Nínu og Al
fyrir sameiningu fjölskyldunnar í
Bandaríkjunum.
Var Nína hættuleg
Bandaríkjunum?
Ásökuð Nína Tryggvadóttir mynd-
listarkona að störfum.
Umferðarmiðstöðin BSÍ • 101 Reykjavík • 580 5400 • main@re.is • www.flugrutan.is • www.re.is
BSÍ - Umferðarmiðstöðin
Reykjavík
Keflavíkurflugvöllur
Kauptu miða núna á www.flugrutan.is
*Miðast við að keyptur sé miði fram og til baka frá BSÍ eða Keflavíkurflugvelli á 4.000 kr.
2.000 kr.*
FYRIR AÐEINS
Alltaf laus sæti Alltaf ferðir Hagkvæmur kostur
Frí þráðlaus internet-
tenging í öllum bílum
Ferðatími u.þ.b.
45 mínútur
Umhverfisvænt
VIÐ
SKUTLUM
ÞÉR!
Áætlunarferðir Flugrútunnar eru í
tengslum við allar komur & brottfarir
flugvéla um Keflavíkurflugvöll.