Morgunblaðið - 31.12.2015, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 3 1. D E S E M B E R 2 0 1 5
Stofnað 1913 305. tölublað 103. árgangur
Ármúli 8 I 108 Reykjavík I Sími 516 0600 I www.birgisson.is
Óskum viðskiptavinum og landsmönnum öllum
gleðilegrar hátíðar með þökk fyrir viðskiptin
á árinu sem er að líða.
EYGLÓ ÓSK
ÍÞRÓTTAMAÐUR
ÁRSINS 2015
VÆNTINGAR
SAMTAKA
Á NÝJU ÁRI
HJÖRTUR MEÐ
MÖRG JÁRN
Í ELDINUM
VIÐSKIPTAMOGGINN SYNGUR Í EUROVISION 26ÍÞRÓTTIR
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gleðilegt
nýtt ár
Tveir menn rændu útibú Lands-
bankans í Borgartúni skömmu eftir
hádegi í gær. Annar þeirra var
vopnaður skammbyssu og hinn var
með hníf. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins stökk annar mann-
anna yfir borð í gjaldkerastúku og
hrinti gjaldkera. Við þetta skildi
hann eftir fingraför sín á borði.
Myndir náðust af mönnunum á ör-
yggismyndavél á bensínstöð og bar
lögregla kennsl á þá. Þeirra var
leitað í Öskjuhlíð og víðar.
Snemma í gærkvöldi hafði lög-
regla handtekið tvo menn í
tengslum við málið og tveggja til
viðbótar var leitað. »2
Vopnað bankarán
í Borgartúni
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Jens Garðar Helgason, formaður
bæjarráðs Fjarðabyggðar, sagði að
líklega næmi tjón vegna ofsaveðurs-
ins tugum milljóna króna í Fjarða-
byggð. Ekki var búið að meta tjónið
til fulls í gær.
Óveðrið í fyrrinótt varð verst í
Fjarðabyggð og olli miklu tjóni á
Eskifirði. Einnig varð tjón á Fá-
skrúðsfirði, Breiðdalsvík, Stöðvar-
firði, Djúpavogi og víðar á Austur-
landi. Hásjávað var og mikill
áhlaðandi. Lögregla, björgunar-
sveitir og starfsmenn sveitarfélaga
og hafna unnu að því að afstýra tjóni
á meðan óveðrið geisaði. Veðrið fór
að ganga niður um hádegi í gær.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra óskaði eftir því í
gær að sem fyrst yrði kallaður sam-
an viðbragðshópur til að fara yfir
stöðuna sem kom upp á Austurlandi
vegna veðurofsans. Fulltrúar Við-
lagatryggingar fóru á vettvang til að
meta aðstæður í kjölfar óveðursins.
Mesti vindhraði sem mældist í
ofsaveðrinu sem geisaði fyrir austan
í fyrrinótt og fram eftir gærdeginum
var á Vatnsskarði eystra. Þar var
vindur 46,3 m/s þegar hvassast var
og sterkasta hviðan var 70,8 m/s.
Tugmilljóna tjón
Mest tjón í Fjarðabyggð Viðbragðshópur kallaður til
MÓveðrið »2 og 4
Hópur fjárfesta hefur kynnt
fulltrúum Reykjavíkurborgar hug-
myndir um að breyta Perlunni, einu
helsta kennileiti borgarinnar, í lúx-
ushótel. Hugmyndin gengur út á að
byggja viðbyggingu við núverandi
sex vatnstanka, sem myndi líta út
eins og nýir en lágreistari tankar,
og innrétta þar 200 hótelherbergi.
Þar sem nú er útsýnispallur yrði
sundlaug og heitir pottar. »22
Vilja breyta Perlunni
í glæsilegt hótel