Morgunblaðið - 23.01.2016, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 23.01.2016, Blaðsíða 10
Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Ég var alltaf teiknandiþegar ég var krakkiheima á Reyðarfirði þarsem ég er fædd og uppal- in. Þegar ég var tólf ára kom belgísk myndlistarkona til að kenna mynd- list í grunnskólanum og hún sá áhugann í mér. Hún bauð mér með sér á myndlistarnámskeið á Egils- stöðum, sem var mjög nýtt og spennandi fyrir mig. Það var hún sem sagði mér að ég væri með eitt- hvað sem ég ætti að rækta. Þessi belgíska kona er í raun minn örlaga- valdur í myndlistinni,“ segir Sylvía Dögg Halldórsdóttir myndlistar- kona, eða Sylvía Lovetank eins og hún kallar sig. Hún segist hafa verið óþolin- móður unglingur sem gat ekki beðið með að flytja að heiman. „Sjóndeild- arhringurinn var orðinn allt of þröngur og ég grátbað mömmu um að senda mig í heimavistarskóla þeg- ar ég var þrettán ára, mig langaði svo til að upplifa nýtt umhverfi og breyta til. Um leið og ég kláraði grunnskólann flutti ég til Reykjavík- ur og fór í Versló, en þar átti ég eng- an veginn heima svo ég flutti mig í Fjölbraut í Breiðholti þar sem kennd var myndlist. Ég var mjög upptekin af því að vera skvísa á þessum tíma, svo ég hætti í skólanum og fór að vinna í tískubransanum. Um tvítugt ákvað ég að drífa mig í að klára stúd- entinn og ég gerði það meðfram vinnu, í kvöldskólum og í fjarnámi.“ Frábær ár í Hollandi Strax að loknu stúdentsprófi fór Sylvía í listaháskóla í Rotterdam í Alin upp við að mér séu allir vegir færir Myndlistarkonan Sylvía Lovetank hefur unnið við fjölmörg spennandi verkefni við búninga í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum, m.a. við Game of Thrones og Fortitude. Hún segir þá vinnu gefa skemmtilegt jafnvægi á móti einyrkjanum við trönurnar, enda er hún mikil félagsvera. Að mála er ákveðin þerapía fyrir hana. Morgunblaðið/Golli Sylvía Lovetank Hér er hún stödd í eigin verki, myndinni af stúlkunum þremur í upphlut, en fyrirmyndin er ljósmynd af henni sjálfri 5 ára. Byssustrákur Þessa mynd vann Sylvía fyrir sýningu á Íslenska stríðsára- safninu á Reyðarfirði. Hún vann út frá ljósmyndum frá stríðsárunum. 10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 2016 Samverustundir barna og foreldra eru aldrei nógu margar og því er um að gera að stökkva til þegar boðið er upp á eitthvað skemmtilegt til að gera saman. Á heimilislegum sunnu- dögum á Kex hosteli við Skúlagötu í Reykjavík er alltaf eitthvað áhuga- vert í boði og á morgun kl. 13 verður þar krakkadans fyrir börn og foreldra klukkan 13. Kennarar frá Dansskóla Birnu Björns ætla að kenna krakkadans og meðal þess sem nemendur læra má nefna grunntækni, stökk, hringi, samsettar tækniæfingar og dansrút- ínur ásamt ýmsum dansstílum. Sérstök áhersla er lögð á að kynn- ast sem flestum dansstílum, en einn- ig er unnið mikið með sviðsfram- komu og leikræna tjáningu. Dansgleði og skemmtun er höfð í fyr- irrúmi og foreldrar eru hvattir til að vera með í dansinum. Allir eru velkomnir og enginn að- gangseyrir er að heimilislegu sunnu- dögunum á Kexinu. Heimilislegur sunnudagur á KEX Hostel Dansgleði og skemmtun höfð í fyrirrúmi í krakkadansinum Gaman Áður hefur verið boðið upp á krakkadans á Kex hosteli á heimilislegum sunnudegi og vakti það sannarlega lukku eins og sjá má á þessari mynd. Nú þegar meistari David Bowie er fallinn frá er ekki úr vegi að rifja upp og njóta þess sem hann gerði á við- burðaríkri ævi. Eitt af því var að leika í kvikmyndum og nú er lag að sjá kvikmyndina Labyrinth sem skartar honum í stóru hlutverki, en hún verð- ur sýnd í Bíó Paradís í dag, laugar- dag, kl. 16. Labyrinth er klassísk fant- asía frá árinu 1986, ævintýramynd sem er bæði brúðumynd og leikin. Eins konar söngleikur þar sem David Bowie fer með hlutverk Goblin King Jareth en Bowie á einnig heiðurinn af hluta tónlistarinnar. Kvikmyndin seg- ir frá hinni 15 ára Söru sem þarf að fara í annarsheimsveldi Goblin King Jareth og freista þess að bjarga yngri bróður sínum þaðan. Þetta er sannkölluð „költ“-mynd en tekið skal fram að myndin er ekki textuð. Bíó Paradís sýnir í dag Konungur David Bowie fór ótroðnar slóðir í því sem hann tók sér fyrir hendur. Labyrinth með David Bowie Blíð eru þau, augu ungviðisins, full af sakleysi og varnarleysi gagnvart hörðum heimi. Þessi nýfædda gór- illa á þó nokkuð verndað líf fyrir höndum því hún fæddist í dýragarð- inum Artis Zoo í Amsterdam nýlega. Móðirin, hún Sindy, gekk í átta og hálfan mánuð með afkvæmið og umvefur það nú ást og hlýju eins og sjá má á þessum myndum sem teknar voru í gær. Nýfædda fallega górillan ku vera fimmta afkvæmi hennar Sindyar. Í hlýjum móðurfaðmi AFP Blessað lífið Hrekklaus augun. Fædd er ofurkrúttleg górilla
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.