Morgunblaðið - 31.03.2016, Qupperneq 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2016
Guð réð
Foreldrar systkinanna frá Öxl
voru Karl Eiríksson bóndi, sem
varð 81 árs og Anna Ólafsdóttir sem
varð 82 ára.
Þau kynntust þegar Anna kom
sem kaupakona að Gröf í Breiðuvík-
urhreppi þar sem Karl bjó ásamt
foreldrum sínum. Þau eignuðust
börnin 15 á 19 árum.
„Pabbi sagði bara að guð réði,
það var ekkert flóknara en það,“
segir Guðbjörg og hlær.
„Ég talaði einu sinni við mann
sem hafði komið vestur að vinna við
skurðgröft. Hann talaði um hvað
það hefði verið gott að vera þarna,
alltaf nóg að borða og svona.
Þegar ég spurði hann hvenær það
hefði verið sagði hann: Ég man nú
ekki hvaða ár það var en börnin
voru 14 og pabbi þinn sagðist vera
hættur. Ég sagði honum að það
hefði verið 1958 og hann hefði ekki
verið hættur því þá átti ég eftir að
koma.“
Í torfbæ fyrstu árin
Miklar breytingar hafa orðið á
búsháttum í sveitum landsins frá
uppvexti systkinahópsins.
Karl og Anna fluttu á Öxl árið
1941, þegar Jóhannes var nýfæddur
og elsti sonurinn, Reimar, var eins
árs. Fyrstu fjögur árin bjó fjöl-
skyldan á Öxl í torfbæ sem var að-
eins eitt stórt rými, með panel-
klæðningu að innan og eldavél fyrir
miðju og svo var sofið meðfram
veggjunum.
Þau byggðu sér þó fljótlega lítið
steinhús, með þremur herbergjum
og eldhúsi sem þau fluttu inn í árið
1945, þá með fimm börn.
„Fyrstu árin var notaður mór til
hitunar,“ segir Jóhannes. „Það var
skemmtilegur tími, þar sem maður
þurfti að taka hann upp og þurrka.“
„Já, það var mikil vinna í kring-
um það, stinga hann upp og keyra á
hjólbörum,“ grípur Sigurður inn í.
Guðbjörg hlær, kannski að svipn-
um á blaðamanni yfir skemmtun
gamla tímans, og segir skemmt-
unina við móinn hafa falist í því að
fá að fara af bænum.
„Það þurfti ekki mikið meira en
það. Og að fá að heyja annars stað-
ar var rosalegt ævintýri, þó maður
hitti jafnvel ekki neinn.“
Steinaldarmenn í augum
yngri kynslóðar
Ofangreindar uppeldisaðstæður
voru mjög svo hverfandi á seinni
hluta aldarinnar og afar fjarlægar
flestum þeim sem ólust upp í þétt-
býli. Móhitun, rafmagnsleysi og
fjórtán systkin þekkja nútímabörn-
in síðan nánast aðeins af afspurn.
„Yngri kynslóðin horfir svolítið á
mann eins og steinaldarmann,“ seg-
ur Guðbjörg. „Ég rek mig líka svo-
lítið á það í vinnunni þegar ég rifja
upp eitthvað svona, þá finnst mér
ég vera 150 ára!“
Kristlaug segir það eitt að fylgj-
ast með framvindu í heyskap segja
ýmislegt um hversu mikið hafi
breyst á skömmum tíma. „Við erum
alin upp við hrífu og hestasláttuvél
en nú kemur mannshöndin hvergi
nærri.“
Á Öxl voru kindur og kýr og
börnin voru látin ganga í öll verk
hvort sem það var að heyja eða
keyra vinnuvélarnar, sem Karl
snerti sjálfur helst ekki á. Drátt-
arvél kom ekki á bæinn fyrr 1957 og
rafmagnið kom 1964.
Á rúntinum Fyrsta dráttarvélin kom á Öxl árið 1957. Börnin lærðu að keyra
hana en faðir þeirra hafði lítinn áhuga á að aka henni.
15 systkin Hópurinn er fjölmennur og þykjast sumir sjá „sama sauðarsvipinn“ á þeim öllum. Því eru systkinin sjálf
ekki endilega sammála en kímnigáfan erfist hinsvegar jafnvel til systkinabarnanna.
Hjónin frá Öxl Þau Anna og Karl áttu miklu barnaláni að fagna en það var víðar. Anna kom sjálf úr fjórtán
systkina hópi og bróðir Karls eignaðist ellefu börn.
AUKIN ÞJÓNUSTA
VIÐ EIGENDUR SKODA
• Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem
uppfyllir allar ströngustu kröfur Skoda.
• Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina má flest
allt um ástand bílsins og gæði.
• Bílson hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins með gæðaúttekt frá BSI á Íslandi auk
starfsleyfis til endurskoðunar frá Samgöngustofu.
Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu.
Komið, sjáið og sannfærist.
Kletthálsi 9 • Sími 568 1090
- V E R K S T Æ Ð I Ð -
Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is