Morgunblaðið - 31.03.2016, Síða 30

Morgunblaðið - 31.03.2016, Síða 30
30 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2016 SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is „Mig langar að gera fólk ham- ingjusamt með söng mínum. Og ég vil að það geti notið þess að vera hamingjusamt; slappað af, komist í þægilegt hugarástand.“ Þannig komst bandaríska djass- söngkonan Ella Fitzgerald (1917- 1996) að orði í samtali við Matt- hías Johannessen, ritstjóra Morg- unblaðsins, þegar hún kom hingað til lands að halda tónleika fyrir rúmlega hálfri öld, í febrúar 1966. Stjarna Ellu, eins og hún var jafnan kölluð, skein hátt á þess- um tíma og heimsókn hennar þótti mikill viðburður í íslensku tónlistarlífi. Það skyggði hins vegar á að tónleikahaldarinn taldi sig þurfa að hafa miðaverðið afar hátt og leiddi það til þess að á sumum þeirra fimm tónleika sem hún hélt hér söng hún fyrir að- eins hálfum sal, henni sjálfri til undrunar og vonbrigða. Sló í gegn 15 ára Ella fæddist í Virginíu árið 1917 og eru því hundrað ár liðin frá fæðingu hennar á næsta ári. Í æsku fékk hún aðeins lágmarks- kennslu í tónlist. Þegar hún var 15 ára gömul fékk hún tækifæri til að troða upp ásamt fleiri ný- græðingum í hinu fræga Apollo- leikhúsi í Harlem. Var hún ákveð- in í að dansa sig inn í hjörtu áhorfenda en var svo taugaóstyrk að hún gat ekki hreyft fæturna á sviðinu. En röddin brást ekki og heillaði alla. Meðal leikhúsgesta þetta kvöld var einn liðsmanna í hljómsveit Chicks Webbs, sem stýrði einn helstu svinghljóm- sveitinni á þessum tíma, og hreifst hann af hæfileikum henn- ar. „Við skulum hafa hana með okkur til Yale á morgun,“ sagði hann, „og ef hún fellur í kramið hjá unga fólkinu fær hún að vera áfram.“ Eftir það var engra spurninga spurt. Vorið 1938 söng Ella inn á hljómplötu lagstúf, sem gerði hana heimsfræga í einni svipan, „A-Tisket, A-Tasket“. Var hann eftir einn af útsetjurum Webbs og byggður á gamalli vögguvísu. Tollur heimsfrægðarinnar Eftir stríð hófust söngferðalög Ellu um Bandaríkin í samvinnu við Fílharmóníuna og síðar lá leiðin oft til Evrópu og Asíu. Árið 1955 fór hún að koma fram og syngja inn á plötur með umboðs- manninn Norman Graz sér við hlið og hann beindi henni inn á þá braut að gera hljómplötur með mönnum eins og Duke Ellington og Cole Porter. Hann átti líka mikinn þátt í að hún sneri sér frá djassklúbbunum og fór að koma fram á kunnum hótelum, kabar- ettum og sérstökum hljómleikum. Það þýddi hins vegar að áheyr- endahópurinn varð þrengri, fólk með góðar tekjur sem hafði efni á að borga sig inn á dýra tónleika, en ekki alþýðufólkið með tónlist- ina í blóðinu, hinir sönnu aðdá- endur djassins sem hún hafði mestan áhuga á að syngja fyrir. „Að vera fræg, þar fylgir bögg- ull skammrifi,“ segir í viðtali Matthíasar Johannessen við Ellu 1966. Henni leiddust spurningar blaðamanna og viðtalið gekk stirðlega fyrir sig að sögn Matt- híasar. En þó kom að því að hún opnaði sig: „Einhvern tíma var ég á hóteli, þar sem ég borðaði sneið af svínakjöti,“ sagði hún. „Mér þótti það gott. Ég hélt blaða- mannafund og sagði við blaða- mennina til að setja eitthvað: Mér þykir svínakjöt gott. Næsta dag kom stór mynd af mér í einu blaðinu, hræðileg mynd, og stóð yfir henni: Mér þykir svínakjöt gott! Það var hræðileg stund. Ég grét. Og mér datt í hug að fara í mál við manninn. En ég lét það liggja. Það gerðist víst hvort eð var ekki annað en skilninginn vantaði. Skilninginn milli tveggja ólíkra persóna. Kannski var það ekki síður mér að kenna en blaða- manninum. Ég er feimin, mér þykir gott að vera ein.“ Hélt fimm tónleika Ella hélt fimm tónleika hér á landi. Þeir áttu upphaflega að vera fernir, en miðaverð þótti óheyrilega dýrt. „Brjálæði,“ sagði eitt blaðanna. Hver miði kostaði 450 krónur. Á verðlagi dagsins í dag eru það þó ekki nema 7.200 krónur. En Íslendingar voru ekki jafn ríkir þá og nú. Verðið var lækkað í 300 krónur á auka- tónleikunum en dugði ekki til. Fullyrt var að stórtap hefði orðið á tónleikunum. En þeir sem áttu þess kost að hlusta á hana voru í sæluvímu. Hún var sannarlega mesta djasssöngkona heims. Síðustu árin voru Ellu erfið. Hún veiktist á söngferðalagi 1985, þá komin á sjötugsaldur. Hún varð að leggjast á sjúkrahús vegna mikillar vökvamyndunar í lungum. Ári síðar fékk hún alvar- legt hjartaáfall og gekkst þá und- ir mikinn uppskurð. Árið 1993 leiddi síðan sykursýki sem hún var haldin til þess að taka varð af henni báða fætur fyrir neðan hné. Þegar hún lést í júní 1996 sagði Bill Clinton Bandaríkjaforseti og talaði áreiðanlega fyrir munn allra aðdáenda hennar: „Rödd hennar mun ylja okkur um ókomna tíma.“ Mesta djasssöngkona heimsins  Hálf öld frá tónleikum Ellu Fitzgerald á Íslandi  „Mig langar að gera fólk hamingjusamt,“ sagði hún við Morgunblaðið  Söngferillinn spannaði yfir 60 ár  „Rödd sem yljar um ókomna framtíð“ Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Söngkonan Ella Fitzgerald í essinu sínu við hljóðnemann. Hún var dáð um allan heim. Frægðarganga hennar hófst með fyrstu hljómplötunni 1938. Á Íslandi Ella Fitzgerald ræðir við Matthías Johannessen ritstjóra í febrúar 1966. Samtalið gekk stirðlega fyrir sig því hún var lítt hrifin af fjölmiðlum. Heimsókn Ellu Fitzgerald til Íslands fyrir 50 árum þótti mikil tíðindi. Heimsfrægt listafólk var ekki daglegir gestir á Íslandi á þeim tíma. Þó hafði djassleikarinn Louis Armstrong komið hingað ári fyrr og haldið þrenna tón- leika fyrir fullu húsi í Háskólabíói. „Louis er stórkostlegur,“ sagði Ella í samtali við Morgunblaðið. „Hann er eins og ambassadorar eiga að vera.“ Sjálf var hún ekki sérlega hrifin af þeirri frægð sem fylgdi velgengni hennar. Gunnar Ormslev, þekktasti djassleikari Íslendinga á þessum tíma, og hljómsveit hans hituðu upp fyrir Ellu á tónleikunum í Háskólabíói og þótti þeim takast vel upp. Ekki hrifin af frægðinni VAKTI MIKLA ATHYGLI Fræg Blöðin skrifuðu mikið um heimsókn Ellu.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.