Morgunblaðið - 31.03.2016, Page 44
VALS TÓMATSÓSA
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA
AFP
Góður Andy Murray með þjálfara sínum Amelie Mauresmo á æfingu. Hann er einn af bestu tennisleikurum heims.
SVIÐSLJÓS
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Þegar Vanda Sigurgeirsdóttir var
ráðin þjálfari knattspyrnuliðs
Neista frá Hofsósi árið 2001 og
varð fyrsta konan til að taka við
stjórn meistaraflokks karla í knatt-
spyrnu hér á landi vakti það at-
hygli út fyrir landsteinana. En árið
2016 þykir ekkert tiltökumál að
kona sé í þjálfarateymi eða jafnvel
aðalþjálfari. Elsa Sæný Valgeirs-
dóttir og Ana María Vidal Bouza
eru einu kvenþjálfarar karlaliðs
hér á landi. Báðar stýra þær blakl-
iðum en Ana María stýrir Þrótti
Neskaupstað en Elsa hefur gert
frábæra hluti með HK og vann
þrefalt árið 2012.
Úti í hinum stóra íþróttaheimi
eru tvær konur þjálfarar í knatt-
spyrnu. Corinne Diacre stýrir
Clermont Foot 63 í annarri deild í
Frakklandi og Shelley Kerr stýrir
Stirling í fimmtu deild skoska bolt-
ans. Konur eru einnig byrjaðar að
láta til sín taka í þjálfarateymum
liða í amerískum íþróttum þó engin
sé enn orðin aðalþjálfari.
Þannig er Becky Hammon að-
stoðarþjálfari San Antonio Spurs í
NBA-deildinni og Nancy Lieber-
man er í þjálfarateymi Sacramento
Kings. Báðar áttu þær afbragðs-
feril og fengu starfið því þær þóttu
einfaldlega hæfastar. Hammon er
að klára sitt annað tímabil með
Spurs sem er næstbesta lið NBA-
deildarinnar á eftir Golden State.
Hún leiddi liðið til sigurs í sum-
ardeild NBA 2014 en lærifaðir
hennar er Gregg Popovich, sem
unnið hefur NBA-deildina fimm
sinnum. Hann hefur miklar mætur
á henni.
„Hún er leiðtogi og strákarnir
hlusta á hana enda hefur hún mikla
þekkingu á leiknum. Ég lít ekki á
hana sem einhvern brautryðjanda
af því hún er kona. Hún er frábær
þjálfari og er góð í því sem hún
gerir,“ sagði Popovich sem hefur
spáð því að Hammon gæti tekið við
sem aðalþjálfari í NBA-deildinni.
Hlusta á þá sem
geta gert þá betri
Í amerískum ruðningi, NFL, var
Jen Welter ráðin sem aðstoðar-
þjálfari innherja hjá Arizona Cardi-
nals. Sarah Thomas var svo ráðin í
fyrra sem fyrsti dómarinn í deild-
inni og þykir hún góð í sínu starfi.
Samningur Welter var stuttur og
var ekki endurnýjaður.
Washington Post fjallaði um
ráðningu hennar og talaði við Dr.
Justine Siegal sem sagði að
íþróttamenn hlustuðu á alla sem
geta gert þá að betri leikmönnum.
Skiptir þar engu hvort það er karl
eða kona. Siegal veit alveg hvað
hún er að segja því fyrir utan að
vera með doktorsgráðu í íþróttasál-
fræði varð hún fyrsta konan til að
stýra karlaliði í amerískum hafna-
bolta þegar hún tók við Brockton
Rox í Boston deildinni. Samningi
hennar var rift eftir aðeins sex vik-
ur vegna peningaleysis. Hún hefur
séð þær Hammon og Lieberman að
störfum og segir að þær njóti
stuðnings. „Ef einhver leikmaður
vill ekki gera það sem þær leggja
upp er hann í vandræðum. Ef
stuðningurinn er ekki til staðar er
auðvelt fyrir leikmenn að koma
konunni út en ekki ef stjórn og að-
alþjálfari styðja þétt við bakið á
þeim.
Ef liðunum gengur ekki vel er
auðvelt að kenna þjálfaranum um
og hann er yfirleitt rekinn, sér-
staklega ef þjálfarinn er kona.“
Reyndar eru þjálfarar í liðs-
íþróttum yfirleitt látnir fara ef úr-
slitin eru ekki rétt, hvort sem
þjálfarinn er karl eða kona.
Allt hægt
Þær Lieberman og Hammon
þykja líklegar til að verða fyrstu
konurnar til að verða aðalþjálfarar
liða í NBA-deildinni. „Núna er
kona að bjóða sig fram til forseta.
Það eru breytingar að gerast beint
fyrir framan nefið á okkur. En ef
enginn kemur á eftir okkur, þá hef-
ur okkur mistekist,“ sagði Lieber-
man nýlega við New York Times
þar sem þær voru í viðtali. „Bara
út af því að eitthvað hefur aldrei
verið gert þarf það ekki að þýða að
það sé ekki hægt,“ sagði Hammon
og bætti við: „Leiðtogi hefur ekk-
ert kyn. Við erum ekkert að biðja
karlmenn að yfirgefa svæðið. Bara
færa sig aðeins og búa til pláss fyr-
ir okkur konurnar.“
Leiðtogi hef-
ur ekkert kyn
Kvenþjálfarar í íþróttum ekkert til-
tökumál Tvær þjálfa karlalið á Íslandi
Aðalþjálfari Becky Hammon er
spáð bjartri framtíð í NBA.
Morgunblaðið/Kristinn
Árangur Blaklið HK hefur náð góðum árangri undir stjórn Elsu Sænýjar.
44 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2016