Morgunblaðið - 31.03.2016, Síða 47
til B á eins skömmum tíma og hægt
er.“ Airlander getur verið á flugi allt
að fimm sólarhringa með áhöfn um
borð. Lengja má tímann um hálfan
mánuð sé skipinu fjarstýrt af jörðu
niðri og enginn maður um borð.
Gæti það þess vegna hangið kjurrt
yfir sama blettinum þann tíma, eða
vel á þriðju viku. Þá gæti það flogið
þótt á því væru skotgöt eftir vél-
byssur.
Gagnlegt til eftirlits
Meðal notkunarmöguleika sér
HAV fyrir sér að bjóða megi skipið
til strandgæslu og eftirlits í þágu
bæði herja og borgaralegrar þjón-
ustu. Einnig til kvikmyndunar og
vísindarannsókna. Fyrirtæki sem
þurfa að flytja þungar vélar og tæki
til afskekktra heimshorna gætu
einnig haft gagn af loftfarinu, segir
Daniels.
Á neðanverðum skrokknum er
nokkurs konar skíði eða flotholt til
að auðvelda aðgerðir á láði eða á
legi. Þegar þeirra er ekki þörf eru
þau dregin inn í búkinn til að
minnka loftmótstöðu.
Kostnaður við smíði loftfarsins
nemur 25 milljónum sterlingspunda,
tæplega 4,5 milljörðum króna. Hef-
ur það verið níu ár í þróun í stærsta
flugskýli Bretlandseyja. Nú fara í
gang flugtilraunir með Airlander en
vonast er til að loftfarið verði komið
á góða siglingu með sumrinu.
Í páskavikunni var það látið svífa í
skýlinu stóra í fyrsta sinn. Til flugs
þarf Airlander 1,3 milljónir rúmfeta
af helíum – sem er álíka magn og
þarf til að fylla 15 ólympískar sund-
laugar. Samsvarar það tæplega 37
þúsund rúmmetrum. Kostir loftfars-
ins eru að það getur hafið sig lóðrétt
til flugs sem þyrla og lent á næstum
því hvaða yfirborði sem er, til dæmis
á hafís, í sendinni eyðimörk eða á sjó
eða vatni.
Til að athafna sig hefur Airlander
enga þörf fyrir flugvallarmannvirki
með öllu sem þeim fylgir. Með um-
talsverða burðargetu og möguleika
á að lenda á næstum hvaða yfirborði
sem er gæti loftfarið átt mögulega
framtíð fyrir sér á sviði vöruflutn-
inga í lofti. Aðilar óháðir HAV hafa
metið markaðinn fyrir loftskip sem
Airlander vera rúmlega 50 milljarða
virði næstu 20 árin. Áætlað er að til-
koma framleiðslunnar muni hafa í
för með sér tæplega tvö þúsund ný
störf fyrir fólk með menntun á sviði
hátækni. Í fyrra fjölgaði HAV
starfsmönnum sínum úr 20 í 115.
Bíður spenntur eftir að fljúga
„Ég er afar spenntur fyrir að
hefja prófanir á Airlander og hlakka
mjög til fyrsta flugsins, sem ég er
sannfærður um að verði árangurs-
ríkt,“ segir þróunarflugstjórinn
David Burns. Það hefur ekki verið
tímasett en mun eiga sér stað um
leið og öllum prófunum á jörðu niðri
Óþreyjufullur Þróunarflugstjórinn David Burns bíður þess að hefja flugtilraunir með loftfarið.
SJÁ SÍÐU 48
FRÉTTIR 47Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2016
Verslun Tunguhálsi 10 - Sími 415 4000 – www.kemi.is - kemi@kemi.is
INTERFLON
Matvælavottaðar efnavörur
Nýjar umbúðir, sömu gæða efnin
HEILDEHF
Rúmfatnaður fyrir hótel
og sjúkrastofnanir
Stórhöfði 17 • 110 Reykjavík • Sími 5877685 • Netfang: elias@egheild.is • www.egheild.is
Vandaður rúmfatnaður 100% cotton satin með 300TH. 60/60μ.
Sterk og endingargóð teygjulök, 100% cotton satin með 300TH.
Gæða handklæði 500 gsm.
Góðar sængur sem má þvo við 95° hita.
Dýnuhlífar, þola þvott við 95°, rakaheldnar. Opið frá
kl. 13 til 18
virka daga.
Vinsamlegast
sendið net-
skilaboð.