Morgunblaðið - 31.03.2016, Side 48
48 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2016
er lokið. Ætlaðar eru 200 klukku-
stundir til reynsluflugs en síðan
taka við sýningarferðir með fulltrúa
hugsanlegra kaupenda.
„Við erum stolt af því að vera
breskt fyrirtæki og með 80% birgja
okkar í Bretlandi,“ segir forstjóri
Hybrid Air Vehicles, Stephen
McGlennan. Fyrirtækið er aðili að
mikilli sókn fyrir breskar vörur og
breskt hugvit á alþjóðavettvangi
sem hjálpa mun HAV að markaðs-
setja Airlander-loftfarið. Um 60%
lyftikraftsins fær loftskipið úr helí-
uminu í belg þess. Því sem á vantar
skilar annars vegar loftaflsfræðileg
lögun búksins og hverfilblásnir V8-
dísilhreyflarnir fjórir, sem hver um
sig er 325 hestöfl.
Tim Robinson, ritstjóri tímarits-
ins Aerospace, segir að kostnaður
við helíumið gæti virkað fráhrind-
andi og sömuleiðis áhrif veðurfars á
getu skipsins til flugs. Hann sagði
þó, að tala mætti um loftskipið sem
nýjan snjallsíma; enginn vissi
hversu mikla þörf hann hefði fyrir
hann fyrr en hann væri orðinn að
veruleika.
Fleiri í sömu hugleiðingum
„Endurkomu loftskipanna hefur
áður verið spáð án þess að það rætt-
ist. Því hugsa sumir sem svo að hér
sé gömul tugga að skjóta aftur upp
kolli. En hér er um nýja kynslóð
loftfara að ræða þar sem nýjustu
efni og tækni er brúkuð. Þurfi menn
að flytja vörur er loftskipið ódýrara
en flugvélar og fljótar í förum en
skip. Því gæti verið að finna markað
fyrir það. Til dæmis vegna mann-
úðarverkefna og ég yrði ekki hissa
þótt Sameinuðu þjóðirnar keyptu
eitt slíkt. En sem stendur bíða
menn eftir því að fyrirtækið sanni
ágæti loftfarsins,“ segir Robinson.
Hybrid Air Vehicles er ekki eina
fyrirtækið sem er að gera tilraunir
með loftför. Bandaríski flotinn á í
samstarfi við fyrirtæki að nafni Ae-
ros um svipað flygildi og flugvéla-
og vopnaframleiðandinn Lockheed
Martin er sömuleiðis að hanna og
þróa loftskip. Stóra spurningin nú
er hvort Airlander 10 eigi eftir að
verða til að skapa nýjan áhuga á
loftförum sem þessum og reynast
nytsamlegt.
agas@mbl.is
Morgunblaðið/AFP
Í öllu sínu veldi Verið er að hefja flugtilraunir með Airlander en þeim verður lokið síðsumars eða með haustinu. Hér er hann í öllu sínu veldi í stærsta flugskýli Bretlandseyja.
Laugavegi 103 við Hlemm | 105 Reykjavík | Sími 551 5814 | www.th.is
Nýjar ferðatöskur
frábærar fermingargjafir
Við bjóðum uppá glæsilegar borgir í A-Evrópu. Tilvalið fyrir
hópa, fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar
þú vilt 2,3,4 daga eða lengur. Verðlag er hagstætt bæði í mat
og drykk. Þá eru hægt að gera góð kaup á hinum ýmsu
verslunum og mörkuðum. Við bjóðum uppá skoðunarferðir
fyrir hópa og fyrirtæki.
Verð frá 89.900 kr.
Sími 588 8900 | transatlantic.is
GLÆSILEGAR BORGIR Í
A-EVRÓPU Í BEINU FLUGI
BUDAPEST Í UNGVERJALANDI
Ein af fallegri borgum Evrópu, hún er þekkt fyrir
sínar glæsi byggingar sem margar eru á minjaskrá
Unesco, forna menningu og spa/heilsulindir.
Þar hefur í árhundruði blandast saman ýmis
menningaráhrif sem gerir borgina svo sérstaka.
Flogið er tvisvar í viku allt árið.
GDANSK Í PÓLLANDI
Hansaborgin Gdansk er elsta og fallegasta borg
Póllands, saga hennar nær aftur til ársins 997.
Hún var helsta vígi Hansakaupmanna í Evrópu.
Glæsilegur arkitektúr, forn menning og tónlistar-
hátíðir hafa gert borgina að vinsælustu ferða-
mannaborg Póllands. Flogið er tvisvar í viku allt árið.
RIGA Í LETTLANDI
Gamli og nýi tíminn mætast í borg sem ekki á sinn
líka. Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi
hvert sem litið er og setur borgina á stall með
fallegri borgum Evrópu. Þar ber hæst kastalinn í
Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan.
Flogið er tvisvar í viku frá maí til október