Morgunblaðið - 31.03.2016, Side 56
56
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2016
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Það er þekkt,að mis-vindasamt
sé í stjórnmálum.
Persónufylgið lýt-
ur þeim lögmálum
líka. Stjórnmála-
menn kynnast því flestir, hér
sem erlendis, að vinsælda-
kúrfan er iðulega jafnbrött og
þakklætiskúrfan.
Kjósendum þykir víst að
óvinsældir stjórnmálamanna
séu fyrst og síðast sjálfskap-
arvíti. Þeir uppskeri eins og
sáð var. Margt er til í því, en
ekki allt. Stundum árar betur
en endranær án þess að stjórn-
málamönnum verði þakkað, en
þeir njóta þess samt. Formerk-
in verða öfug þegar illa árar.
Það munaði litlu að Viðreisn-
arstjórnin héldi velli í þriðja
sinn 1971. Kannski réð stjórn-
málaleg þreyta úrslitum.
Kannski sviplegt fráfall mikils
leiðtoga. Eða kannski var það
hvarf síldarinnar af Íslands-
miðum og kaupmáttarhrun
næstu ár á eftir sem munaði
mestu. Kannski kom allt þetta
þrennt og jafnvel fleira við
sögu.
Um þessar mundir er van-
traust á stjórnmálamönnum
útbreitt, hvert sem litið er.
Evrópa er talandi dæmi. Þar
koma leiðtogar 28 ríkja ótt og
títt saman á fundum og taka
undir morgun ákvarðanir sem
hafa afleiðingar fyrir milljónir
manna. Þessir leiðtogar sækja
umboð sitt til mjög ólíkra
flokka en þess gætir ekki á
þessum furðulegu fundum. Þar
breytast allir eins og hendi sé
veifað í samkynja
elítuflokk og glittir
hvergi í hugsjóna-
eða meiningarmun.
Þessi vinnubrögð
senda kjósendum
heima fyrir þau
skilaboð að þingkosningar þar
séu sýndarleikur.
Í Bandaríkjunum er ríflega
helmingur stuðningsmanna
Repúblikanaflokksins í öngum
sínum yfir því að sitja senni-
lega uppi með Donald Trump
sem forsetaefni. Margir þeirra
kenna reyndar Obama forseta
um Trump, svo skrítilega sem
það hljómar, því enginn forseti
í manna minnum hafi ýtt jafn
kröftuglega undir þjóðar-
sundrungu og Obama og reiðin
sem magnast hafi upp skili sér
í ótrúlegu fylgi Trumps og
sósíalistans Sanders (væri
Sanders á hægri vængnum
myndu fjölmiðlar skeyta orð-
inu „öfga-“ framan við póli-
tísku skilgreininguna).
Á Íslandi heimta stjórnar-
andstæðingar afsögn forsætis-
ráðherrans. Þetta er sama
fólkið, sem sat í ríkisstjórn í
tvö ár eftir að sú hafði misst
sinn meirihluta. Vegna fram-
göngu sinnar gera þeir sig
ómarktæka nú með hrópum
sínum og köllum. Eitt, umfram
annað, veldur þessari vaxandi
fyrirlitningu á stjórnmála-
mönnum og það er einmitt
ósamræmið í orðum og athöfn-
um, sem fylgir þeim svo oft.
Það er stundum líkast því að
dr. Jekyll sé í framboði, en
herra Hyde sé sá sem komi
upp úr kassanum.
Það er furðu víða
svipað viðhorf uppi
til stjórnmálamanna
núna}
Traust er gulls ígildi
Argentínumennfögnuðu í vik-
unni þegar nefnd
Sameinuðu þjóð-
anna um mörk
landgrunnsins
komst að þeirri niðurstöðu að
tilkall Suður-Ameríkuríkisins
til 350 mílna efnahagslögsögu
ætti sér stoð í alþjóðalögum.
Skipti þá engu að með slíkri
útfærslu myndi yfirráðasvæði
Argentínu umlykja Falklands-
eyjar, þar sem Bretar hafa
haft nær óslitin yfirráð í hér
um bil tvö hundruð ár.
Bretar voru enda fljótir til
að benda á að álit nefnd-
arinnar hefði ekkert lagalegt
gildi, og að hún gæti ekki úr-
skurðað um mál sem sneru að
fullveldi ríkja. Þeir segja það
skjóta skökku við að nefnd á
vegum alþjóðasamtaka, sem
stofnuð voru um réttinn til
sjálfsákvörðunar, telji rétt að
afhenda Argentínumönnum
nær allt hafsvæðið sem umlyk-
ur eyjarnar, jafnvel þó að vilji
eyjarskeggja til þess að til-
heyra Bretlandi sé
skýr.
Þrátt fyrir þess-
ar mótbárur er
nefndarálitið
nokkur sigur fyrir
Argentínumenn og túlkaði
utanríkisráðherra landsins
álitið á þann veg að það „stað-
festi fullveldisréttindi okkar
yfir auðlindum landgrunnsins
okkar“. Ætla má að Argentína
muni á grundvelli álitsins stór-
auka umsvif sín í nágrenni
Falklandseyja, meðal annars í
sjávarútvegi, en einnig á sviði
olíu, sem fundist hefur í tölu-
verðu magni á svæðinu.
Deilan um yfirráð yfir Falk-
landseyjum verður augljóslega
ekki leyst á grundvelli þessa
álits. Líklegra er að álitið geri
lausn deilunnar enn flóknari
en ella. En álitið er einnig
umhugsunarvert þar sem það
kann að hafa áhrif víðar um
heiminn, meðal annars hér í
Norður-Atlantshafi, nema það
eigi að vera einnota í þágu
Argentínumanna.
Nefnd Sameinuðu
þjóðanna skilar um-
deildri niðurstöðu}
Þrengt að Falklandseyjum
É
g var með fjörutíu milljónir
króna í jakkavasanum mínum
um daginn. Ég er hins vegar
ekki alveg viss hvort ég hafi
skilið jakkann eftir hjá Möggu
frænku í Kópavoginum eða Siggu vinkonu í
Keflavík. Ég hef svosem ekkert verið að at-
huga það neitt sérstaklega. Enda lánaði ég
Gunnu systur jakkann og það var hún sem
skildi hann þarna eftir.
Þetta er reyndar algjör steypa. Ég veit al-
veg í hvaða vasa, geymslu eða hólfi þúsund
króna seðill eða klink í stöðumælinn leynist.
Samt þarf ég ekki að koma umgjörðinni á fót
með formlegum hætti með tilheyrandi skjöl-
um og fjármálastofnanir minna mig ekki á
þetta með reglulegu millibili.
Fjármálaráðherra, yfirmaður fjármála Ís-
lands, virðist hins vegar ekki vera í sömu stöðu.
Hann átti fjörutíu milljónir króna einhvers staðar og
vissi ekki í hvaða landi þær voru. Vinur hans stofnaði
nefnilega félagið sem þær voru geymdar í. Óþarfi að at-
huga það eitthvað frekar.
Þetta kann að hljóma fullkomlega rökrétt í eyrum
sumra. Líkt og t.d. í eyrum innanríkisráðherra sem var
skráð fyrir félagi í skattaskjóli sem átti að taka við kaup-
réttargreiðslum eiginmanns hennar. Eða t.d. í eyrum
forsætisráðherra sem fannst það ekki í frásögur færandi
að eiginkonan ætti 500 milljóna króna kröfur í slitabú
föllnu bankanna í gegnum aflandsfélag.
Kannski er bara í alvörunni erfitt að tengja
og átta sig á undrunarsvipnum á andliti
flestra kjósenda um þessar mundir.
Þar liggur hins vegar vandamálið og þegar
svona mál koma upp er furðulegt að hugsa til
þess að fólkið í þessari stöðu skuli sjá um að
forgangsraða peningunum sem hinir greiða
til samfélagsins. Flestir án milligöngu
aflandsfélaga.
Skilningsleysi ráðamanna á skilningsleysi
landsmanna birtist síðan í ýmsum myndum.
Meðal annars í því að forsætisráðherra
skuli hlakka til framlagningar á vantrausts-
tillögu til þess að geta stært sig af öllum þeim
góðu verkum sem ríkisstjórnin hefur unnið.
Minni virðingu er vart hægt að bera fyrir úr-
ræðinu. Virðingin fyrir kjósendum virðist
ekki miklu meiri þegar ráðamenn gera lítið úr
fyrrnefndri forundran með því að snúa út úr einföldum
spurningum og neita að svara öðrum. Betra er að hafa
eigin bloggsíðu, líkt og forsætisráðherra, þar sem auð-
velt er að setja fram eigin spurningar og svara þeim um-
svifalaust aftur. Eða bara að tjá sig í gegnum stöðuupp-
færslur á Facebook. Best er að skrá sig síðan út og leyfa
fólki að röfla.
Staðreyndin er hins vegar sú að flestir hafa aldrei sýsl-
að með félög í útlöndum, skilja ekki af hverju ráðamenn
þurfa endilega að gera það og hvers vegna þeir geyma
ekki bara peningana sína á Íslandi líkt og aðrir. Fyrsta
skrefið í átt að trausti er gott samtal. sunnasaem@mbl.is
Sunna Sæ-
mundsdóttir
Pistill
Skilningsleysið á skilningsleysinu
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
FRÉTTASKÝRING
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Störfum heldur áfram aðfjölga á vinnumarkaði og erhlutfall starfandi af mann-fjöldanum nú að nálgast töl-
ur eins og þær voru hæstar á sein-
ustu árunum fyrir hrun.
Seinustu vísbendingar um þetta
má finna í Vinnumarkaðsrannsókn
Hagstofunnar fyrir febrúarmánuð
en hún leiðir í ljós að hlutfall starf-
andi er komið í 79,8% af mannfjöld-
anum. Til samanburðar var þetta
hlutfall 81,5% á árinu 2007. Atvinnu-
leysi í seinasta mánuði samkvæmt
Hagstofukönnuninni var komið nið-
ur í 3,1%.
Fleiri atvinnulausir í vinnu
Fjölgun starfa og minnkandi at-
vinnuleysi haldast í hendur en starf-
andi einstaklingum fjölgar að sjálf-
sögðu einnig í takt við mann-
fjöldaþróunina. Nú kemur líka sífellt
betur í ljós að þúsundir einstaklinga
sem hurfu út af vinnumarkaði í
kreppunni og fóru í nám eða annað
og töldust því ekki meðal atvinnu-
lausra, eru í vaxandi mæli að koma
aftur út á vinnumarkaðinn.
Starfandi einstaklingum á
vinnumarkaði, þ.e.a.s. samanlagður
fjöldi fólks í aðal- og aukastarfi,
fjölgaði um 2.800 á árinu 2014 og
nýjar tölur Hagstofunnar sýna að
fjölgunin var ríflega tvöfalt meiri í
fyrra ef horft er á ársmeðaltöl en þá
fjölgaði starfandi einstaklingum um
5.900. Hlutfallið af mannfjöldanum
var þá 79,2%.
Greina má fjölgun starfa eftir
atvinnugreinum út frá tölum úr
Vinnumarkaðsrannsóknum Hag-
stofunnar. Þar má sjá að fjölgun
starfa hefur verið mjög misjöfn eftir
greinum. Ferðaþjónustan og aðrar
ferðaþjónustutengdar greinar hafa
verið drifkraftur í batanum á vinnu-
markaði ásamt öðrum útflutnings-
greinum. Um seinustu áramót hafði
t.d. störfum við rekstur gististaða og
veitingarekstur fjölgað um 4.800 frá
árinu 2008. Á seinasta ári nam fjölg-
unin í þessum geira 600 störfum.
Hagstofan flokkar eina atvinnu-
grein undir liðinn flutningar og
geymsla en undir hann heyra m.a.
hópferðaflutningar. Þar nam fjölgun
starfa í fyrra 1.200. Störfum við
heild- og smásöluverslun og við-
gerðir á vélknúnum ökutækjum
fjölgaði einnig um 1.200 í fyrra.
Ef eingöngu er litið til könn-
unar Hagstofunnar fyrir febr-
úarmánuð sl. bendir margt til að
uppgangurinn í ferðaþjónustunni
haldi áfram yfir vetrartímann sem
aldrei fyrr.
Ólafur Már Sigurðsson,
sérfræðingur hjá Hagstofunni,
bendir í samtali á að aldrei hafi eins
margir unnið í ferðaþjónustunni á
þessum árstíma og nú.
Fjölgunin mest meðal kvenna
Þegar greining Hagstofunnar á
fjölgun starfa eftir atvinnugreinum
er skoðuð með tilliti til atvinnuþátt-
töku kynjanna kemur í ljós mikill
munur. Þannig standa konur í miklu
meira mæli undir fjölgun starfa í
ferðaþjónustunni en karlar. Í fyrra
fjölgaði störfum kvenna í rekstri
gististaða og veitingarekstri um 800
en körlum fækkaði um 200 í þeirri
grein. Störfum kvenna í atvinnu-
greinaflokknum flutningar og
geymsla fjölgaði um 700 að meðaltali
í fyrra en störfum sem karlar sinntu
í þessari grein fjölgaði um 400. Kon-
um sem störfuðu við heildsölu- og
smásöluverslun og viðgerðir á öku-
tækjum fjölgaði um 1.000 á sama
tíma og körlum sem sinna þessum
störfum fjölgaði aðeins 400.
Fjölgun starfa ólík
eftir atvinnugreinum
Morgunblaðið/Eggert
Við Deildartunguhver Ferðamönnum fjölgar yfir vetrartímann og aldrei
hafa verið eins margir við störf í ferðaþjónustu á þessum árstíma og nú.
Sé litið á atvinnuþróunina í
ýmsum atvinnugreinum skv.
ársmeðaltalsupplýsingum
Hagstofunnar má sjá að lang-
flestir starfa við opinbera
stjórnsýslu, fræðslustarfsemi
og heilbrigðis- og fé-
lagsþjónustu eða 54 þúsund.
Fjölgaði þeim um 1.300 í
fyrra. Fjölgunin var langmest í
fræðslustarfseminni þar sem
störfum fjölgaði um 1.200 á
liðnu ári. Hins vegar fækkaði
störfum við landbúnað um
200 á seinasta ári og um 500
við fiskveiðar en þar hafði átt
sér stað umtalsverð fjölgun
starfa á árunum frá 2009 til
2012.
Störfum í bygging-
arstarfsemi og mann-
virkjagerð fjölgaði í fyrra um
1.100 samkvæmt greiningu
Hagstofunnar á fjölgun og
fækkun starfa eftir atvinnu-
greinum.
Fleiri hjá hinu
opinbera
STARFANDI EFTIR GREINUM