Morgunblaðið - 31.03.2016, Page 59
UMRÆÐAN 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2016
Héraðsdómur
Reykjavíkur hefur
með dómi sínum þann
22. mars sl., þess efnis
að loka skuli flugbraut
06/24 (oft nefnd neyð-
arflugbraut), fallist á
með Reykjavíkurborg
að nægjanlegt sé að
viðhalda einungis þol-
anlegu flugöryggi á
Reykjavíkurflugvelli.
Héraðsdómur tekur þannig undir
að einungis þurfi að taka tillit til
flugöryggis í flutningaflugi, þ.e. far-
þega-, vöru- og póstflugi um
Reykjavíkurflugvöll, þegar hann
kveður á um að loka skuli áð-
urnefndri flugbraut, en með því er
talið að einungis náist að viðhalda
þolanlegu flugöryggi á Reykjavík-
urflugvelli í flutningaflugi. Ef hins-
vegar er tekið tillit til sjúkra-, neyð-
ar- og almannavarnaflugs er ljóst
að flugöryggið verður ekki þol-
anlegt, en slíku flugi var haldið utan
sviga í að því er virðist pantaðri nið-
urstöðu úttektar um flugöryggi á
Reykjavíkurflugvelli, væri flugbraut
06/24 tekin úr notkun, en slíkt flug
hefur mest þurft að reiða sig á
þessa flugbraut enda oft stundað
við veðuraðstæður þar sem að flutn-
ingaflugi hefur verið aflýst. Sú
furðulega fullyrðing fylgdi í þessari
úttekt „að hægt hefði verið að lenda
í sjúkra- og neyðarflugi á öðrum
flugbrautum en 06/24“ þegar hlið-
arvindur var á eða utan marka ef
brautarástand þeirra væri „gott og
þurrt“ en flugmenn ganga þó
sjaldnast að slíku brautarástandi
vísu við íslenskar veðuraðstæður og
því væri verið að storka örlögunum
við slíkar lendingar.
Borgarstjórn Reykjavíkur hefur
leynt og ljóst unnið gegn almenn-
ingsþörfum landsmanna og Land-
spítala Íslands með því að þjarma
að og beita sér fyrir lokun Reykja-
víkurflugvallar, því í skýrslu nefnd-
ar um staðarval nýs Landspítala há-
skólasjúkrahúss (LSH) frá árinu
2004 segir í 10. kafla um samgöngur
við LSH.: „Mikilvæg forsenda fyrir
staðarvali við Hringbraut var að
sýnt þótti, að þar væri hægt að
tryggja gott aðgengi ökutækja og
sjúkraflugs“ og síðan
segir: „Hlutverk LSH
er m.a. að vera þunga-
miðja í íslensku heil-
brigðiskerfi, en þangað
verður leitað ef fjöl-
menn slys verða jafn-
framt því sem ein-
staklingar með smærri
vandamál fá þar þjón-
ustu“. Þá er í skýrsl-
unni fjallað um sam-
göngumiðstöð sem
þjóni flugi, lang-
ferðabílum og stræt-
isvögnum og þar með hagsmunum
Landspítalans til að uppfylla skyld-
ur sínar við landsbyggðina.
Þegar ljóst er að þessar mikil-
vægu forsendur fyrir staðarvali
sjúkrahússins við Hringbraut muni
ekki halda, hafi borgarstjórn
Reykjavíkur sitt fram, er eðlilegt að
menn skoði aðra kosti fyrir stað-
setningu nýs Landspítala til fram-
tíðar vegna breyttra og þyngri sam-
gangna á höfuðborgarsvæðinu og
þá sérstaklega á Hringbrautar/
Vatnsmýrarsvæðinu, gangi bygg-
ingaráform borgarinnar eftir, og
jafnframt hvað varðar sjúkraflug út
frá öðrum flugvallarmöguleikum og
forsendum en um Reykjavík-
urflugvöll. Markvisst hefur verið
unnið að því í heilbrigðiskerfinu að
beina neyðar- og sérfræðiþjónustu í
landinu á Landspítalann í Reykja-
vík og jafnframt draga úr og leggja
niður slíka þjónustu úti á lands-
byggðinni í sparnaðarskyni. En til
að tryggja þjónustu og öryggi sjúk-
linga við slíka ráðstöfun eru greiðir
sjúkraflutningar að Landspít-
alanum lífsnauðsynlegir.
Í áðurnefndri dómsniðurstöðu
Héraðsdóms Reykjavíkur er þó
ábending um hvernig ríkisvaldið og
Alþingi eigi að standa að málum
vilji það tryggja almenningsþörf við
rekstur Reykjavíkurflugvallar og
þar með Landspítalans, en þar seg-
ir: „ Í krafti almennra heimilda
sinna getur Alþingi einnig, ef því er
að skipta, gefið ráðherra fyrirmæli
um framkvæmd málefna Reykjavík-
urflugvallar, svo og sett sérstök lög
um málefni flugvallarins, þ. á m. um
stærð og umfang flugvallarins, eftir
atvikum þannig að kveðið sé á um
heimildir til eignarnáms vegna
ákvæðis 72. gr. stjórnarskrárinnar,
sbr. 10 gr. laga nr. 97/1995 og for-
gang laganna gagnvart hvers kyns
áætlunum sveitarstjórna samkvæmt
skipulagslögum nr. 123/2010“.
Í tilvísaðri 72. gr. stjórnarskrár-
innar segir: „Eignarrétturinn er
friðhelgur. Engan má skylda til að
láta af hendi eign sína nema al-
menningsþörf krefji, þarf til þess
lagafyrirmæli og komi fullt verð
fyrir.“ Er því ekki óvarlegt að segja
að stjórnarskrárvarin almennings-
þörf sé fyrir því að tryggja al-
mannavarna-, neyðar- og sjúkra-
flutninga að og frá Landspítala
Íslands og almenningssamgöngur
um Reykjavíkurflugvöll vegna þjón-
ustu stjórnsýslu ríkisins í Reykja-
vík. Því liggur beinast við að Al-
þingi og ríkisvaldið stöðvi áform
Reykjavíkurborgar og fari að
ábendingu dómsins um hvernig
tryggja megi áframhaldandi rekst-
ur Reykjavíkurflugvallar og hags-
muni almennings um gott aðgengi
að Landspítala Íslands, sbr. nið-
urstöðu staðarvalsnefndar Land-
spítalans, með setningu laga um
málefni flugvallarins.
Þolanlegt flugöryggi á Reykjavíkurflugvelli?
Eftir Jakob
Ólafsson
» Borgarstjórn
Reykjavíkur hefur
leynt og ljóst unnið
gegn almenningsþörfum
landsmanna og Land-
spítala Íslands með því
að þjarma að og beita
sér fyrir lokun Reykja-
víkurflugvallar …
Jakob Ólafsson
Höfundur er flugstjóri.
JURA – If you love coffee
Opið virka daga frá kl. 10:00-18:00 og laugardaga frá kl. 11:00-15:00 | Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Púlsuppáhelling (P.E.P.®) tryggir réttan uppáhellingar-
tíma og framkallar fullkominn espresso, eins og hann
er gerður af heimsins bestu kaffibarþjónum
Sjálfskipting milli mjólkur og mjólkurfroðu, þannig
að auðvelt er að búa til vinsælustu kaffidrykkina með
einni snertingu
Vatnskerfið (I.W.S.®) skynjar vatnsfilterinn sjálfkrafa
meðan CLARIS Smart tryggir bestu mögulegu
vatnsgæði
Fágun, skilvirkni og glæsileg hönnun. Vatnstankur,
baunatankur og stjórnborð eru öll aðgengileg að
framanverðu
JURA – If you love coffee
Dásamlegt kaffi –
nýmalað,
engin hylki.
Ármúla 24 • S: 585 2800Opið virka daga 10 -18, laugardaga 11- 16. – www.rafkaup.is
Cloudy loftljós fráVelgreiddir þúfnakollar nýkomnir undan snjónum á Seltjarnarnesi.Minna helst á Donald Trump.
Kristín Halla Jónsdóttir
Fréttastofa RÚV og fleira
Mér fannst það lágkúra að láta
þessar leiknu glamúrauglýsingar
hljóma í útvarpinu á svo helgum
degi, sem föstudagurinn langi er.
Og áfram heldur fréttastofa Sam-
fylkingar/VG hjá útvarpinu aðför-
inni að forsætisráðherra og hans
fólki. Þetta nálgast það að vera ein-
elti. Engan skal undra, þótt for-
sætisráðherra vilji ekki tala við fjöl-
miðil, sem hagar sér svona gagnvart
honum og hans frú. Ég skil hann
vel, enda er þetta fyrir neðan allar
hellur, hvernig þessi fréttastofa,
sem er í fjölmiðli að sögn í almanna-
eigu, er orðin. Hún er farin að
minna meira á áróðursútvarps-
stöðvar í einræðisríkjum, gamla
Sovétútvarpið, og er sömuleiðis að
finna í Kína og öðrum Asíu- og Afr-
íkulöndum, sem búa við einræð-
isharðstjórnir. Það er nóg komið af
þessu. Er einhver hissa á því, þótt
vinstriflokkarnir njóti lítilla vin-
sælda hjá þjóðinni með þessu
áframhaldi? Mál er að linni, enda
varla orðið hlustandi á þetta lengur.
Guðbjörg Snót Jónsdóttir.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Velgreiddir þúfnakollar