Morgunblaðið - 31.03.2016, Síða 68
68
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2016
Ertu rétt
klæddur?
Þú færð vinnu- og öryggisfatnað
hjá Dynjanda.
Hafðu samband.
Við veitum þér faglega aðstoð.
Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is
REIÐHJÓL Í SUMAR
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Liðin eru sjö ár síðan félagarnir
David James Robertson og Emil
Guðmundsson opnuðu reið-
hjólaverslunina Kría hjól á Grand-
garði 7. Búðin komst fljótt á kortið
hjá íslensku hjólreiðafólki bæði
sem staður til að finna fyrsta
flokks reiðhjól og aukabúnað, og
líka sem áningarstaður á ferð um
bæinn. Þar er tekið vel á móti
gestum með kaffibolla og þægilegri
aðstöðu til að spjalla og safna
kröftum áður en haldið er aftur af
stað. „Við vorum einmitt að end-
urhanna hjá okkur hluta búð-
arinnar til að skapa rými þar sem
fólk getur látið fara vel um sig og
horft á útsendingar frá hjólreiða-
keppnum í sjónvarpinu“ segir Dav-
id.
Margir landsmenn hafa smit-
ast af reiðhjólabakteríunni á und-
anförnum árum og ganga sumir
svo langt að spá því að reiðhjóla-
menningin á Íslandi fari bráðum að
geta keppt við það sem fólk þekkir
frá borgum eins og Kaupmanna-
höfn. David segir að þó svo efna-
hagskreppan virðist vera að mestu
að baki og jeppasalan eflaust farin
að glæðast þá sé ekki hægt að
greina að reiðhjólabyltingin hafi
náð hámarki. „Það sem svo margir
hafa lært á undanförnum árum er
að það er alveg hægt að hjóla Ís-
landi og með rétta útbúnaðinum og
góðum fatnaði er ekkert sem segir
að megi ekki vera á hjólinu allt ár-
ið um kring. Mikið líf er í reiðhjóla-
starfinu, og margt í boði hvort sem
fólk vill hjóla sér til dægrastytt-
ingar eða spreyta sig í keppni.“
Algengt verð 150 til 200 þús.
Þessi þróun hefur orðið til
þess að dýrari og vandaðri hjól
seljast betur en áður. Ef reiðhjólið
er orðið helsta samgöngutækið, eða
mikill metnaaður hlaupinn í þá sem
vilja ná góðum tíma á hjólreiða-
mótum, þá þykir ekki svo dýr fjár-
festing að kaupa hjól sem kostar á
bilinu 150 til 200 þúsund. „Flest
hjólin sem við seljum eru á því bili
og ekki óalgengt að við seljum hjól
sem kosta jafnvel 300 þúsund. Dýr-
ustu hjólin eins og Venge ViAS-
hjólið frá Specialized, geta kostað
hátt í tvær milljónir,“ útskýrir
David.
Ef lesendur eru forvitnir um
hvers konar undrahjól kostar á við
lítinn bíl þá er það að segja um
Venge ViAS að hjólið var þróað í
vindgöngum Specialized, og á helst
að nota með sérhönnuðum hjálmi
og skóm. Lögun hjólsins, skónna
og hjálmsins á að draga stórlega úr
vindmótstöðu og segir David talað
um að með því megi stytta 40 km
hjólreiðatúr um fimm mínútur.
„Margir einblína á þyngd hjólsins
og halda að mest muni um að hafa
hjólið sem léttast, en eftir því sem
hjólað er hraðar hefur vindmót-
staðan meiri áhrif og hefur í raun
mun meira að segja en þyngdin.
Maður finnur greinilega muninn á
Venge ViAS og öðrum reiðhjólum.
Tilfinningin er eins og hjólið renni
eins og hnífur í gegnum loftið.“
Góð til flestra nota
Þeir sem eru í hjólakaupa-
hugleiðingum en treysta sér ekki
alveg strax í tveggja milljóna
króna reiðhjól ættu að skoða það
sem Specialized kallar „æv-
intýrahjól“ (e. adventure bikes). „Í
daglegu tali eru þessi reiðhjól jafn-
an kölluð malarvega-hjól. Það er
rýmra um dekkið svo að pláss er
fyrir nagladekk fyrir vetr-
arhjólreiðar, og hönnunin þannig
að hjólið hentar bæði á sléttu mal-
biki, á malarvegum, og til daglegra
samgangna til og frá vinnu eða
skóla. Þetta eru hjól sem má fara
nánast hvert á land sem er, og þarf
ekki að stoppa hjólatúrinn þó að
malbikið klárist.“
Kríu-hjól hafa frá upphafi lagt
mikla áherslu á að sinna þörfum
kröfuharðasta hjólreiðafólks-
ins. Nýjasta skrefið í þessa átt
er fullkominn stillingarbúnaður
sem tekinn verður í notkun með
sumrinu. „Tækið notar rafræna
skynjara til að auðvelda okkur
að laga hjólið fullkomlega að
stærð hjólreiðamannsins. Verð-
ur þennan búnað að finna á
verkstæðinu okkar, sem er við
hlið verslunarinnar,“ segir Dav-
id.
Talandi um nýjungar segir
David að diskabremsur verði æ
meira áberandi á reiðhjólum.
Þessi tegund bremsa auki heild-
arþyngd hjólsins um aðeins 100
grömm en stórbætir alla stjórn
á hjólinu. „Diskabremsurnar
slitna ekki jafn fljótt og mjög
þægilegt er að stýra því hversu
hratt er bremsað. Ekki þarf að
grípa um bremsuhandfangið
með öllum fingrum heldur má
hægja ferðina með jafnvel bara
einum putta.“
Hjólið fínstillt
rafrænt
Reiðhjólabyltingin hvergi
nærri búin að ná hámarki
„Það er alveg hægt að hjóla á Íslandi og
með rétta útbúnaðinum“ Venge ViAS
hjólið frá Specialized klýfur loftið eins og
hnífur og kostar á við lítinn bíl
Morgunblaðið/Golli
Metnaður David James og Emil sinna þörfum reiðhjólafólks sem gerir miklar kröfur til hjólanna sinna.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vorboðar Allir eru að hjóla og margir hjólandi allt árið. Mynd úr safni.