Morgunblaðið - 31.03.2016, Page 69

Morgunblaðið - 31.03.2016, Page 69
MINNINGAR 69 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2016 ✝ Bergur SnærSigurþóruson fæddist 17. sept- ember 1996. Hann lést 18. mars 2016. Foreldrar hans eru Sigurþóra Steinunn Bergs- dóttir vinnusálfræð- ingur, f. 21. mars 1972, uppeldisfaðir Rúnar Unnþórsson, dósent í iðnaðar- verkfræði, f. 8. október 1971, og Haukur Sigurður Ingibjargarson matreiðslumaður, f. 28. septem- ber 1961. Systkini Bergs Snæs eru Margrét Rán Rúnarsdóttir, f. 22. febrúar 2003, og Eyjólfur Fel- ix Rúnarsson, f. 19. desember 2006. Foreldrar Sigurþóru Stein- unnar eru Bergur Felixson, fyrr- eru Gunndór Ísdal Sigurðsson, f. 22. febrúar 1940, og Ingibjörg Ingólfsdóttir, f. 30. október 1941. Bergur Snær fæddist í Reykja- vík og ólst fyrstu ár ævi sinnar upp á Túnsbergi og síðar Hjarð- arhaga í Vesturbæ Reykjarvíkur, að undanskildum tveimur árum þegar hann og móðir hans bjuggu á Egilsstöðum. Þegar Bergur Snær var 10 ára fluttist fjölskyldan á Seltjarnarnesið þar sem hún býr enn. Bergur Snær hóf skólagöngu sína í Melaskóla og síðar Mýrarhúsaskóla á Sel- tjarnarnesi og lauk grunnskóla- námi sínu í Valhúsaskóla. Vet- urinn 2012-2013 lagði hann stund á nám við Kvennaskólann í Reykjavík og haustið 2013 flutti hann til Akureyrar þar sem hann gekk í Verkmenntaskólann á Ak- ureyri. Síðastliðin ár vann Berg- ur ýmis þjónustustörf, ýmist með námi eða í fullu starfi, lengst af hjá frænda sínum á Bergsson mathúsi. Útför Bergs Snæs fer fram í Neskirkju í dag, 31. mars 2016, og hefst athöfnin klukkan 13. verandi fram- kvæmdastjóri, f. 14. október 1937, og Ingibjörg Sigrún Guðmundsdóttir hjúkrunarfræð- ingur, f. 8. febrúar 1942. Systkini Sigurþóru Stein- unnar eru Felix Bergsson, Þórir Helgi Bergsson og Guðbjörg Sigrún Bergsdóttir. Foreldrar Rúnars eru Guðmundur Unnþór Stef- ánsson, f. 6. júní 1948, og Mar- grét Guðlaugsdóttir, f. 12. des- ember 1949. Sambýliskona Hauks er Brynja Kristbjörg Jósefsdóttir, f. 17. mars 1966. Dætur Brynju eru Bára Kristbjörg, Guðrún Dögg og Ástrós Líf. Foreldrar Hauks Vegir drottins eru órannsak- anlegir. Hann Bergur Snær, drengur- inn okkar sem okkur þótti svo undur vænt um, er dáinn. Nítján ára kveður hann í blóma lífsins, allt lífið framundan. Hjarta okk- ar grætur, við erum harmi slegin. Bergur var með okkur alla sína tíð, fyrst með móður sinni, síðan góðum fósturföður og systkinum. Það var svo margt sem gladdi hann, samvera með fjölskyldunni, ferðalög og úti- vera, sem hann elskaði og ótal- margt fleira. Eftir sitja minningar um þennan góða og fallega dreng, sem öllum vildi gott og var alltaf með faðminn opinn. Hann var brosmildur, nærgætinn og hug- ulsamur. Tilfinningum okkar á þessari stundu verður best lýst með til- vitnun í Hávamál: Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. Afi og amma, Bergur og Ingibjörg. Elsku Bergur Snær. Ótal spurningar vakna þegar ungur maður, sem hefði átt að eiga allt lífið framundan, er skyndilega kallaður burt. Af hverju þurfa sumir að berj- ast við of mörg ljón? Það er fátt um svör. Trúin seg- ir að vegir Guðs séu órannsakan- legir en hún segir líka að Guð veiti líkn með þraut Í þessu tilfelli eru það minn- ingarnar, sem birtast smám sam- an ein af annarri og mynda þann fjársjóð sem eftir lifir og aldrei gleymist. Og trúin á það að nú sé dreng- urinn okkar kominn á annað og bjartara tilverustig, þar sem engin ljón eru lengur á veginum, hjálpar líka. Elsku Sigga og Rúnar, Hauk- ur og Brynja og allir aðrir að- standendur. Við sendum ykkur okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Minningin um góðan og falleg- an dreng lifir. Gunndór afi og Guðrún. Elsku Bergur. Við vorum svo heppnar að fá þig inn í líf okkar fyrir þó nokkr- um árum, þökk sé pabba þínum, og fyrir það verðum við ævinlega þakklátar. En þú fórst allt of snemma og nú syrgjum við tím- ann sem við fáum ekki með þér. Það er hægt að hugsa til baka og sjá eftir því að hafa ekki hist oft- ar, eða verið meira saman, en við viljum frekar minnast góðu tím- anna sem við áttum með þér. Við minnumst þess hversu fyndinn þú varst, klár, skemmtilegur, umhyggjusamur og umfram allt góðhjartaður. Þannig munum við minnast þín og geyma minn- inguna í hjörtum okkar út lífið. Það eru svona atburðir sem fá mann til þess að hugsa og átta sig á hvað við höfum í raun skamman en dýrmætan tíma í þessu lífi. Við erum þakklátar fyrir hverja mínútu sem við feng- um með þér. Þú munt alltaf eiga sérstakan stað í hjörtum okkar og við munum alltaf elska þig. Okkur langar að votta móður þinni, föður, systkinum, vinum og ættingjum okkar dýpstu samúð. Drengur góður fallinn er frá, við gefum þér grið. Guði á himnum ertu nú hjá, vonandi finnur þú loks frið. Sárið er nýtt og ennþá opið, þú flúðir frá lífi þínu. En þó jarðvist þinni sé lokið verður þú ætíð í hjarta mínu. (Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir) Þínar Bára Kristbjörg, Guðrún Dögg og Ástrós Líf. Í dag kveðjum við góðan dreng og fallegan. Bergur Snær, sonur Siggu og Rúnars, hefur yf- irgefið okkur. Hann var bara 19 ára. Alltof ungur. Harmur fjöl- skyldunnar er mikill. Við hlökk- uðum svo mikið til að fara saman til Spánar í sumar og fagna 50 ára brúðkaupsafmæli mömmu og pabba. Bergur Snær hafði sjálfur talað um ferðina af gleði og til- hlökkun. En dauðinn spyr ekki um stað og stund. Nú er allt breytt. Stórt skarð hefur verið höggvið í hópinn. Þegar Bergur Snær fæddist höfðum við nýlega hafið sambúð okkar og það var dásamlegt að fá fallegt lítið barn inn í fjölskyld- una. Börnin okkar, Guðmundur og Álfrún Perla, tóku litlum frænda opnum örmum. Hann var elskaður af allri fjölskyldunni. Sigga var ein með Berg Snæ fyrstu árin og með aðstoð mömmu og pabba fékk hann gott og ástúðlegt uppeldi. Rúnar kom svo inn í myndina þegar Bergur var tveggja ára. Þá bjuggu Sigga og Bergur Snær á Egilsstöðum en Rúnar lét sig ekki muna um að sækja þau þangað og koma með þau aftur heim til okkar hinna. Rúnar og Sigga settu upp fal- legt heimili í Vesturbænum og Bergur Snær var í leikskólanum Sæborg og svo Melaskóla. Þegar fjölskyldan flutti í fallega ástar- hreiðrið sitt á Seltjarnarnesi fluttist Bergur Snær yfir í Mýr- arhúsaskóla. Þá var hann 11 ára. Á þeim tíma vorum við komin á Túnsberg, æskuheimili okkar systkina, og oftar en ekki kom Bergur Snær í hjólatúra til okkar og sat með okkur við eldhúsborð- ið og þáði kakó og brauð. Það voru dýrmætar stundir sem við munum alltaf geyma í hjartanu. Bergur Snær var dulur dreng- ur en það var stutt í brosið og hlýjuna. Hann var uppátækja- samur og stundum fór hann fram úr sér en hann var alltaf vinur okkar og það var gott að hafa hann nálægt sér. Á unglingsárum fór að bera á erfiðleikum Bergs Snæs við að finna festu í lífinu. Hann fjar- lægðist okkur á tímabili og það var erfitt að ná til hans. Kannski reyndi maður ekki nóg. Maður tekur alltaf fólkinu sínu sem gefnu. Við tókum hann og Áka vin hans með í mikla ævintýra- ferð með hópi af krökkum á Hornstrandir árið 2010. Þar var mikið brallað enda barnæskan að enda og unglingsárin að taka við, stelpur komnar í spilið og margt sem var meira spennandi fyrir 13 ára gutta en eitthvert labb með gömlum köllum í óbyggðum. Ferðin var frábær og enn safn- aðist í góðan minningabankann. Hin síðari ár voru Bergi Snæ erfið. Hann reyndi að finna orku sinni og áhuga brautir en ekkert virtist ganga og hann gafst upp að lokum. Samt virtist hann alltaf glaður, alltaf brosandi þegar maður sá hann. Tók fast utan um mann, lét okkur finna að sér þætti gaman að sjá okkur. Maður vissi um þungan skugga þung- lyndisins en við gerðum okkur ekki grein fyrir að vandamálið væri svona alvarlegt. Það var því mikið áfall að fá fréttirnar af frá- falli hans föstudaginn 18. mars. Hugur okkar er hjá elsku Siggu og Rúnari, Margréti Rán, Eyjólfi Felix, mömmu og pabba, vinum og fjölskyldunni allri. Sofðu rótt, elsku Bergur Snær. Far í friði. Felix og Baldur. Mig langar að skrifa nokkur orð um frænda minn, Berg Snæ, sem kvaddi þennan heim alltof snemma. Bergur Snær var þriðja barnabarn foreldra minna en fyr- ir átti hann tvo eldri frændur sem voru honum eins og bræður. Bergur var einstaklega lífleg- ur og kröftugur drengur. Hann var sérstaklega efnilegur í fim- leikum og enginn hoppaði betur á trampólíni en Bergur. Alltaf var hann brosmildur og kátur og stundum var eins og orka hans væri óþrjótandi. Þegar ég opnaði veitingastaðinn Bergsson Mat- hús fékk ég Berg Snæ til að koma og vinna fyrir mig og var hann þá byrjaður í Kvennaskól- anum. Það var svo margt sem minnti á mig á mínum yngri ár- um í fari Bergs að mig verkjar að hugsa til þess. Ég hafði oft orð á því við konu mína og langaði mik- ið til að hjálpa honum. Bergur Snær átti ekki erfitt með að eignast vini og kunningja, en fjölskyldan skipti hann samt mestu máli. Hann var óþreytandi við að leika sér við yngri frænd- systkinin sem héldu mikið upp á hann og var hann alltaf til í að hjálpa, nú síðast í veislu í tilefni af 100 ára afmæli afa okkar og stóðu allir afkomendur upp og klöppuðu fyrir Bergi. Bergur var allra mesta ljúf- menni, alltaf brosandi og að því er virtist glaður. En það var ekki allt sem sýndist. Bergur lenti í hræðilegu ofbeldi sem hann gat ekki fengið af sér að segja frá. Við fjölskyldan vissum ekki af því fyrr en við fengum fréttir af því frá þriðja aðila tveimur árum seinna. Var þá allt reynt til að hjálpa honum að vinna úr afleið- ingum þess. Ekki er hægt að ímynda sér hvað hefur gerst en vanlíðanin hefur verið mikil, elsku Bergur. Þín verður sárt saknað hvort sem þér líkar það betur eða verr. Þú varst frábær drengur sem áttir svo margt framundan. Það er því með sorg og harm í hjarta sem ég kveð þig, elsku besti drengurinn minn. Við á Íslandi missum marga unga flinka, yndislega og góða drengi alltof fljótt. Vonandi get- um við hjálpað þessum drengjum að finna aðrar leiðir út úr ógöng- um sem þeir lenda í. Megir þú hvíla í friði og megi allar góðar vættir vaka yfir þér. Ég mun minnast þín með gleði í hjarta og alls þess góða sem þú komst með í þennan heim. Þinn frændi, Þórir Bergsson. Elsku Bergur minn. Það eru engin orð sem komast nálægt því að lýsa sársaukanum við að missa þig. Ég vona svo innilega að þú sért kominn í betri heim og líði betur. Þú munt alltaf eiga stóran part í lífi mínu, eins stóran og hann var líka áður, allar minn- ingarnar okkar, yndislegar í alla staði og öll umhyggjan – það er enginn eins og þú. Þitt hlýja bros og örugga faðmlag. Ég sakna þín endalaust og mun aldrei hætta að gera. Þín Móeiður (Mósa). Enn ég um Fellaflóann geng, finn eins og titring í gömlum streng, hugann grunar hjá grassins rót gamalt spor eftir lítinn fót. (Jón Helgason) Elsku Sigga mín, Rúnar, Mar- grét Rán og Eyjólfur Felix. Megi bjartar minningar um fallegan hrokkinhærðan dreng lifa. Ykkar, Þorgerður Sigurðardóttir, Sveinbjörn og börn. Er sárasta sorg okkur mætir og söknuður huga vorn grætir þá líður sem leiftur úr skýjum ljósgeisli af minningum hlýjum. (H.J.H.) Elsku fallegi Bergur Snær, mér er svo sárt að kveðja þig nú, allt of snemma. Ég mun aldrei gleyma símtalinu sem ég fékk frá mömmu þinni þar sem hún sagði mér að þú værir farinn frá okkur. Heimurinn hrundi og ekkert verður eins og áður, allt er breytt. Missir okkar er meiri en orð fá lýst. Nú streyma fram í hugann all- ar minningarnar um þig, dásam- lega drenginn, sem varst svo blíður og góður, fallegur og sjarmerandi. Ég hef alltaf haldið því fram að þú hafir fengið „þetta extra“ í vöggugjöf sem gerði það að verkum að það var svo auðvelt að elska þig, þykja óendanlega vænt um þig og vilja allt fyrir þig gera. Þú vissir það líka og not- aðir það óspart frá unga aldri til að sjarmera fólkið í kringum þig upp úr skónum og þá sérstaklega kvenfólkið. Ég man stundir þar sem ég reyndi að skamma þig fyrir eitthvað. Þú settir upp sjarmasvipinn og ég reyndi á móti: „Ekki gera þetta, Bergur Snær, þetta virkar ekki á mig.“ En auðvitað virkaði þetta og þú vissir það. Minningarnar eru óteljandi allt frá því að ég sá þig fyrst á Landspítalanum þar sem þið Áki fæddust með tveggja daga milli- bili, sumrin sem við vorum sam- an í Flatey, þegar þú bjóst hjá mér hálfan vetur fyrir norðan og allt stússið og vesenið á ykkur vinunum frá unga aldri í Vestur- bænum. Ég er svo óendanlega þakklát mömmu þinni og pabba fyrir að hafa fengið að eiga pínulítið í þér og fyrir allar stundirnar sem ég hef fengið að eyða með þér. Þú varst svo lánsamur, elsku Bergur Snær, að eiga stóra og sam- heldna fjölskyldu sem reyndist þér öll svo vel. Þú vissir að þú varst elskaður og þér leið alltaf best í faðmi foreldra þinna og litlu systkina, sem þér þótti svo óskaplega vænt um. Þetta átti ekki að fara svona en ég hugga mig við að þú hafir loks fundið friðinn sem þú þráðir að finna og þetta var þín leið. Síð- ustu ár hafa verið þér óskaplega erfið og oft hef ég óskað þess að geta tekið sársaukann frá þér því þú barst svo sannarlega ekki ábyrgð á því að verða rændur unglingsárunum og þeim sárum sem sál þín svo þjáðist af. Elsku hjartans drengurinn minn, við söknum þín öll svo sárt en við varðveitum minningarnar um þig í hjarta okkar alla tíð, þú varst svo brosmildur, blíður og góður. Megi góður Guð vernda þig. Elsku Sigga, Rúnar, Margrét og Eyjólfur, megið þið finna styrk til þess að takast á við sorg ykkar og missi. Sofðu vinur vært og rótt verndi þig Drottinn góður. Dreymi þig vel á dimmri nótt dýrð þíns Jesú bróður. (Þorkell G. Sigurbjörnsson) Svanfríður Dóra Karlsdóttir. Orð. Fullkomlega vanmáttug í svo yfirgengilegri sorg. Vissulega hlýtur heimurinn að stöðvast, að minnsta kosti í eitt andartak, svo veröldin átti sig á óréttlætinu. En ekkert gerist. Og lífið neyðist til að halda áfram að ganga sinn endalausa vanagang. Dýrmætum demanti fátækara. Sofðu unga ástin mín, úti regnið grætur. Mamma geymir gullin þín, gamla leggi og völuskrín. Við skulum ekki vaka um dimmar nætur. Það er margt, sem myrkrið veit, minn er hugur þungur. Oft ég svarta sandinn leit svíða grænan engireit. Í jöklinum hljóða dauðadjúpar sprungur. Sofðu lengi, sofðu rótt, seint mun best að vakna. Mæðan kenna mun þér fljótt, Meðan hallar degi skjótt, Að mennirnir elska, missa, gráta og sakna. (Jóhann Sigurjónsson) Mínar innilegustu samúðar- kveðjur til þín, elsku Sigga, miss- ir þinn er mikill. Ólýsanlega sárs- aukafullur og óskiljanlegur í tilgangsleysi sínu. Hjartans kveðjur til fjölskyldu þinnar með von um að þið finnið styrk til að komast í gegnum þessa ósann- gjörnu þrekraun. Hvíl í friði, elsku fallegi, ljúfi og yndislega einstaki Bergur. Guðrún Eiríksdóttir og fjölskylda. Fyrir nokkrum árum kynnt- umst við fjölskyldan yndislegum dreng, honum Bergi Snæ. Þessi fallegi drengur sem var með svo gott hjartalag átti strax hug okk- ar og hjörtu. Okkur þótti óend- anlega vænt um þennan dreng sem varð strax hluti af fjölskyldu okkar og þótti okkur alltaf svo gaman að hitta hann þegar hann kom í heimsókn með pabba sín- um og fjölskyldu hans. Hjörtu okkar eru brostin yfir þeirri stað- reynd að hann er ekki lengur með okkur í dag og að hann skyldi hafa kvatt þennan heim aðeins 19 ára gamall. Elsku Bergur, við vonum að þér líði betur núna og við vitum að engl- arnir og Guð vaka yfir þér þarna hinumegin í ljósinu. Við elskum þig af öllu hjarta, elsku vinur. Litli vinur lífið kallar leiðir okkar skilja í dag. Góðar vættir vaki allar verndi og blessi æ þinn hag. Kærleikskveðjur, María Guðfinna Davíðs- dóttir, Kári Gunndórsson, Gabríel Dagur Kárason, Birgitta Ósk Káradóttir, Emilía Dögg Káradóttir og Sunna María Káradóttir. Fallegan septemberdag fyrir tæpum tuttugu árum varð Sigga vinkona okkar móðir. Hún var fyrst okkar í vinkvennahópnum að eignast barn og taka endan- lega stökkið inn í heim fullorð- inna. Drengurinn var yndislega fallegur, fallegasta barn sem við höfðum séð enda urðum við allar mini-mæður þennan dag. Í fram- haldinu urðum við guðmæður, skemmtimæður, vinkonumæður og alls konar mæður án þess þó að ná að fylgja Siggu í ferlinu að fullorðnast og verða alvöru móð- ir. Sigga gerði það ein. Við fífl- uðumst með og elskuðum Berg frá deginum sem hann fæddist. Hann var barnið okkar allra, var alltaf með okkur með fallegu bláu augun sín og brosið sitt aðeins á ská. Við pössuðum hann og allar þekktum við yndislegheitin sem og fiktið, vesenið og „hlaupa burtu“-Berg. Ein af annarri urð- um við mæður og skildum hversu vanþroska og fákunnugar við hefðum verið og kunnum enn frekar að meta yndislega af- sprengið hennar Siggu. Hann passaði fyrir okkur, var elstur og reyndastur, þvingaður til að hitta vinkvennahópinn með smákrökk- um og alls konar mökum og var skemmtilegastur allra. Það var auðvelt og áreynslu- laust að elska Berg enda gaf hann það tilbaka margfalt. Að elska sjálfan sig reyndist honum þrautin þyngri. Hann eignaðist pabba, yngri systkin sem sáu hann og elskuðu hann, en samt sem áður var óþolið og ókyrrðin fylgifiskur. Styrkleikar og veik- leikar eru sín hvor hliðin á sama peningnum og yndislegur dreng- ur með leitandi sál varð vondum manni að bráð. Hversu mikið sem Bergur var elskaður þá hjálpaði það ekki þegar hann gat ekki elskað sjálfan sig og sá ekki ljósið handan fjallsins. Fjallið varð ókleift. Þegar við kveðjum Berg Snæ, barnið hennar Siggu, barnið hans Rúnars, barnabarn Ingibjargar og Bergs, bróður Margrétar og Eyjólfs, frænda, vin og fyrsta barn okkar vinkvennanna þá finnum við fyrir sorg, tilgangs- leysi og vanmætti. Það á enginn að þurfa að fylgja barninu sínu til grafar eins og Sigga og Rúnar gera í dag. Sporin hans Bergs hverfa ekki úr hjörtum þeirra sem þekktu hann og minningin um fallegan, góðhjartaðan dreng lifir. Við spyrjum drottin særð, hvers vegna hann hafi það dularfulla verkalag að kalla svona vænan vinnumann af velli heim á bæ um miðjan dag. Og þó, með trega og sorg, skal á það sæst að sá með rétti hvílast megi í friði, er hafði, fyrr en sól reist hæst, fundið svo til, að nægði löngum degi. (Jóhann S. Hannesson) Erla, Eva, Hildur, Matthildur og Snjólaug. Bergur Snær Sigurþóruson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.