Morgunblaðið - 31.03.2016, Page 76
76 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2016
Antík
Antíkhúsgögn og munir í úrvali.
Skoðið heimasíðuna.
Opið frá kl. 10 til 18 virka daga.
Þórunnartúni 6,
sími 553 0755 – antiksalan.is
Til sölu
SVEITARFÉLÖG – VERKTAKAR
Eru stórframkvæmdir í ljósleiðara-
lögnum á döfinni? JABOHÚS útvegar
allar gerðir vandaðra ljósleiðararöra
frá þýskalandi.
Sjá nánar á www.jabohus.is
Upplýsingar í síma 5814070 /
699 6303
Ýmislegt
Vorið er komið!
Glæsilegar sumarhúsalóðir til sölu í
landi Leirubakka í nágrenni Heklu.
Mikil náttúrufegurð, fjallasýn og
veðursæld. Óendanlegir útivistar-
möguleikar. Aðeins 100 km frá
Reykjavík. Uppl í síma 8935046
og á fjallaland@fjallaland.is
Húsviðhald
Húsaviðhald
o.fl.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Full búð
af nýjum
vörum
Póstsendum
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Kíktu á heimasíðuna
lifstykkjabudin.is
Smáauglýsingar
Frú Sigurlaug
Fylgstu með á facebook
Sundbolir • Tankini
Bikini • Náttföt
Undirföt • Sloppar
Inniskór • Undirkjólar
Aðhaldsföt • Strandföt
Tilboð
15-50% afsláttur
af náttfötum og
náttkjólum
29. mars – 9. apríl
Mjódd s. 774-7377
✝ Sigríður MaríaElísabet Hall-
dórsdóttir fæddist í
Reykjavík 10. apríl
1923. Hún lést á
dvalar- og
hjúkrunar-
heimilinu Grund
19. mars 2016
Foreldrar henn-
ar voru Bjarný
Málfríður Jóns-
dóttir frá Fögru-
eyri við Fáskrúðsfjörð, f. 29.
ágúst1896, d. 7. nóvember 2003,
og Halldór Kiljan Laxness frá
Laxnesi, Mosfellssveit, f. 23.
apríl 1902, d. 8. febrúar 1998.
Hálfbróðir samfeðra er Einar
Laxness, f. 9. ágúst 1931. Hálf-
systur samfeðra eru Sigríður, f.
26. maí 1951, og Guðný, f. 23.
janúar 1954.
María giftist 30. desember
1944 Ragnari Ámunda Bjarna-
syni járnsmið, f. 3. apríl 1917, d.
5. mars 1948. Foreldrar hans
voru Bjarni Ámundarson frá
Bjólu í Holtum, f. 13. apríl 1886,
d. 20. apríl 1935, og Magnea
Ingibjörg Magnúsdóttir frá
Hólmfastskoti, Innri-Njarðvík,
f. 4. júní 1894, d. 29. júní 1983.
Börn þeirra eru: 1) Bjarni Már
byggingatæknifræðingur, f. 5.5.
1945, sambýliskona Guðrún
eiginkona Gunnþórunn Geirs-
dóttir matráður, f. 20.9. 1955.
Börn þeirra eru: a) Sigríður
María læknanemi, f. 5.8. 1989, b)
Kolbeinn viðskiptafræðingur, f.
27.11. 1990, c) Geir viðskipta-
fræðingur, f. 27.11. 1990. Börn
Gunnþórunnar frá fyrra hjóna-
bandi eru Auður lyfjatæknir, f.
27.12. 1978, og Haukur sálfræð-
ingur, f. 14.4. 1975. 3) Þór húsa-
smíðameistari og viðskiptafræð-
ingur, f. 3.11. 1958, eiginkona
Lucia Helena Jacques, f. 4.3.
1963. Dóttir þeirra er Irene
María nemi, f. 26.3. 1998.
Barnabarnabörnin eru sex
talsins.
María fæddist að Skólavörðu-
stíg í Reykjavík og ólst upp hjá
móður sinni, Málfríði Jónsdótt-
ur, og móðurforeldrum. Hún
gekk í Landakotsskóla og síðan
lá leiðin í Gagnfræðaskóla
Reykjavíkur við Lindargötu, þá
kallaður Ingimarsskóli, og lauk
þaðan gagnfræðaprófi.
Eftir skólagöngu vann María
ýmis störf, m.a. á saumastofu,
við verslunarstörf og seinna á
skrifstofu Vélsmiðjunnar Héð-
ins í Reykjavík. Lengst af
sinnti hún húsmóðurhlutverk-
inu meðan börnin voru ung.
Árið 1971 stofnaði hún og rak
Fatadeildina í Miðbæjarmark-
aðnum í Reykjavík til ársins
1982. María bjó í Granaskjóli
17, Reykjavík, í 67 ár meðan
heilsan leyfði.
Útför Maríu verður gerð frá
Hallgrímskirkju í dag, 31. mars
2016, klukkan 15.
Fjóla Gränz við-
skiptafræðingur, f.
18.2. 1949. 2)
Ragna María fram-
kvæmdastjóri, f.
12.1. 1948, eig-
inmaður Guðmund-
ur Þ. Harðarson
íþróttakennari, f.
10.2. 1946. Börn
þeirra eru: a)
Ragnar íþrótta-
kennari, f. 2.4.
1968, b) Þórunn Kristín lyfja-
fræðingur, f. 28.5. 1969, c)
Hörður flugstjóri, f. 10.2. 1974,
og d) María Björk kvikmynda-
gerðarkona, f. 24.5. 1982.
María giftist 4. apríl 1954
Kolbeini Karli Guðmundi Jóns-
syni véltæknifræðingi, f. 30.
ágúst 1925, d. 7. september
1975. Foreldrar hans voru Jón
Bergsteinsson, f. 7. júní 1876 í
Garðasókn, Gullbringusýslu, d.
6. janúar 1960, og Kristín Andr-
ésdóttir f. 16. desember 1885 í
Hafnarfirði, d. 26. maí 1953.
Synir þeirra eru: 1) Halldór geð-
læknir, f. 21.4. 1955, eiginkona
Hildur Petersen framkvæmda-
stjóri, f. 2.8. 1955. Börn þeirra
eru: a) Helga Huld læknir, f.
21.2. 1984, og b) Kolbeinn lækn-
ir, f. 23.12. 1987. 2) Kristinn við-
skiptafræðingur, f. 3.4. 1957,
Þegar við minnumst Maríu
móður og tengdamóður okkar
koma upp margvísleg minning-
arbrot. Sérlega sú létta lund sem
hún bjó að og einstök glaðværð
sem geislaði frá henni. Hún var
líka næm á fólk, djúpvitur og auk
þess mikill dugnaðarforkur. Í
móðurætt er María komin af
Long-ættinni sem er austan af
fjörðum, mikið langlífi er í þeirri
fjölskyldu. María varð 92 ára og
móðir hennar Málfríður 107 ára
en hún var næstelsti Íslending-
urinn þegar hún dó. Þórunn,
móðir Málfríðar, varð 101 árs
gömul. Allar bjuggu þessar
kjarnakonur í Granaskjóli 17
sem María byggði árið 1947 með
Ragnari fyrri manni sínum. Þeg-
ar ég kynntist Halldóri, syni
Maríu og seinni manns hennar
Kolbeins, heyrði ég fjölskyldu-
sögurnar þar sem hver kynslóðin
af annarri hlúði að þeirri eldri og
yngri. Halldór Laxness var faðir
Maríu og þó að hún hafi ekki
alist upp með honum var ætíð
gott samband á milli fjölskyldn-
anna. Sigríður móðir Halldórs
bjó í Laxnesi. Henni var mjög
annt um Maríu barnabarn sitt.
Frá tveggja ára aldri bjó María í
Laxnesi í fjögur sumur þar til
Sigríður móðir Halldórs lagði
niður búskap og flutti til Reykja-
víkur. Systur Halldórs Laxness,
Sigríður og Helga, litu á hana
sem systur sína og góður vin-
skapur var með Maríu og föð-
urfólki hennar alla tíð. María var
talin hafa svip af föður sínum og
strax í upphafi var sagt að María
hefði „augun hans Dóra“. Seinni
kona Halldórs, Auður Laxness,
hélt stórfjölskyldunni vel saman
og voru þær góðar vinkonur.
María hafði ávallt sæti við hægri
hlið Halldórs föður síns í öllum
þeim glæsilegu veislum í Gljúfra-
steini sem Auður reiddi fram á
afmælum og stórhátíðum. María
bar líka mikinn hlýhug til systra
sinna Sigríðar og Guðnýjar og
bróður, Einars Laxness, og fjöl-
skyldu.
Sjálf átti María ekki alltaf
auðvelda ævi, en hún missti tvo
eiginmenn sína langt um aldur
fram. Fyrri eiginmaður hennar,
Ragnar, lést þegar hún var 24
ára gömul og Kolbein, seinni eig-
inmann sinn, missti hún þegar
hún var 52 ára. Þessi bitru örlög
settu vissulega svip sinn á líf
Maríu en hún spjaraði sig vel
enda gefinn dugnaður og góð
lund úr báðum ættum. Hún hélt
þétt utan um börnin sín fimm og
öll barnabörnin og reyndist þeim
firnavel því hún hafði hlýja nær-
veru og var fordómalaus og við-
ræðugóð.
Verslunarstörf áttu líka vel
við Maríu og hún naut sín mjög
vel þegar hún rak Fatadeildina,
sína eigin verslun, í Miðbæjar-
markaðnum í um áratug. Sú
skemmtilega tilviljun átti sér
stað í október 1981 að móðir mín
Helga Petersen kom að versla
hjá henni. Þær þekktust aðeins í
sjón sem gamlir Reykvíkingar.
En María sagði okkur að þarna
hefðu þær tekið tal saman og
farið svo vel á með þeim að það
var eins og þær hefðu þekkst alla
ævi og ættu eitthvað sameigin-
legt. Það kom því á Maríu þegar
hún heyrði viku síðar að Helga
hefði látist skyndilega. Næsta
sumar kynntumst við Halldór og
þótti okkur afar vænt um þessa
fallegu minningu.
María var mjög trúuð og fór í
Hallgrímskirkju þar sem hún
eignaðist góða vini og fann fyrir
velvild.
Guð blessi minningu Maríu og
hvíli hún í friði
Hildur Petersen,
Halldór Kolbeinsson.
Meira: mbl.is/minningar
Elsku amma mín, þú kvaddir
okkur á sólríkum laugardegi fyr-
ir rúmri viku.
Þú varst nýfarin þegar ég og
Kolli komum til að kveðja þig á
Grund. Þegar við komum inn í
herbergið til þín var mikil kyrrð
yfir, sólin skein inn um gluggann
hjá þér og fuglarnir sungu fyrir
utan. Mitt í sorginni fannst mér
gott að geta kvatt þig við þessar
aðstæður sem mér fannst svo
lýsandi fyrir þig en það var alltaf
hlýja sem kom frá henni ömmu
minni og henni fannst ekkert
jafn yndislegt og að sitja úti á
pallinum sínum í sólinni og
hlusta á fuglana syngja.
Amma María var mér svo hlý
og kær alla tíð. Það var alltaf svo
gott að koma í heimsókn til
ömmu og um leið og maður steig
inn um dyrnar í Granaskjólinu
var maður boðinn hjartanlega
velkominn. Hún var alltaf áhuga-
söm um hvað við barnabörnin
hennar værum að gera og fylgd-
ist alltaf með okkur jafnvel þótt
við byggjum ekki alltaf nálægt
henni. Ég á svo margar góðar
minningar um hana ömmu mína.
Hún kenndi mér til að mynda að
spila á píanóið og ég man hvað
mér fannst gaman að fá að sitja
með henni við flygilinn heima í
Granaskjólinu og spila með
henni. Hún gaf sér alltaf tíma til
að koma á píanótónleika hjá mér
þegar tækifæri gafst og fannst
mér alltaf vænt um það. Ég man
svo vel hvað mér fannst gaman
að fá að róla úti í garði hjá henni
sem lítil stelpa og söng ég þá iðu-
lega hátt, skýrt og essmælt fyrir
hana „Signir sól“. Það voru rifs-
ber og rabarbari í garðinum hjá
henni sem okkur krökkunum
fannst gaman að fá að taka upp
og borða. Helst vildi ég borða
rabarbarann með rjóma enda
gleymdir þú aldrei þegar ég,
fimm ára, sagði við þig „amma,
ég elska rjóma“. Amma fylgdist
alltaf vel með mér, þó ég yrði
eldri og flytti til Danmerkur í
nokkur ár eða væri á flakki um
heiminn vissi hún alltaf hvað ég
var að gera og gleymdi aldrei að
heyra í mér hvar sem ég var.
Það er svo skrýtið að kveðja
þig, elsku amma mín, en ég er
svo óendanlega þakklát fyrir þau
32 ár sem ég átti þig að. Hvíl í
friði. Þín
Helga.
María
Halldórsdóttir
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Minningargreinar