Morgunblaðið - 31.03.2016, Side 89
MENNING 89
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2016
Berglind Jóna
Hlynsdóttir ræð-
ir við gesti um
sýningu sína,
Class Divider, í
D-sal Hafnar-
hússins í dag kl.
17. „Í Class
Divider fjallar
Berglind um fyr-
irbæri sem er
hannað í þeim til-
gangi að aðgreina flugfarþega.
Class divider, sem þýðir einfaldlega
stéttaskipting, vekur spurningar
um það hvernig búin eru til tæki og
kerfi til að flokka fólk eftir sam-
félagsstöðu,“ segir í tilkynningu.
Listamannaspjall
um Class Divider
Berglind Jóna
Hlynsdóttir
Leikarinn Ian McKellen og söng-
konan Adele eru meðal þeirra sem
tilnefnd eru til bresku BAFTA-
sjónvarpsverðlaunanna sem afhent
verða í London 8. maí nk. Þar er
sjónum beint að þeim sem standa
fyrir framan kvikmyndatökuvél-
arnar, en 24. apríl nk. verða
BAFTA-verðlaunin veitt þeim sem
starfa að tjaldabaki, en meðal
þeirra sem tilnefndir eru er tónlist-
armaðurinn Ólafur Arnalds sem til-
nefndur er fyrir tónlist sína í hinum
margverðlaunuðu sjónvarpsþátt-
unum Broadchurch.
Idris Elba er tilnefndur fyrir
bestan leik í aðalhlutverki fyrir
túlkun sína á Luther í samnefndum
þáttum. Hann etur kappi við m.a.
Mark Rylance í Wolf Hall og Ben
Whishaw í London Spy. Ian McKel-
len er tilnefndur fyrir bestan leik í
aukahlutverki fyrir The Dresser.
Í flokki skemmtiþátta eru til-
nefndir m.a. Stephen Fry fyrir QI
og Graham Norton fyrir The Gra-
ham Norton Show, en söngkonan
Adele er einmitt tilnefnd fyrir þátt-
töku sína í þættinum Adele at the
BBC sem Norton stýrði.
Allar nánari upplýsingar um
verðlaunin og tæmandi lista yfir
alla þá sem tilnefndir eru má nálg-
ast á vefnum bafta.org.
AFP
Söngkonan Adele.
Ólafur og Adele tilnefnd
til BAFTA-verðlauna
Morgunblaðið/Kristinn
Tónskáldið Ólafur Arnalds.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Nýtt leikverk leikhópsins Jóel og
Jenný, Djúp spor, í leikstjórn
Bjartmars Þórðarsonar, verður
frumsýnt í Tjarnarbíói í kvöld kl.
20.30. Verkið er heimildaverk, unn-
ið og leikið af leikurunum Jennýju
Láru Arnórsdóttur og Jóel Sæ-
mundssyni og byggist á raunveru-
legum atburðum. Jenný Lára hefur
áður unnið verkið Elska með sömu
aðferð, þ.e. upp úr viðtölum við fólk
og í það skipti um hugmyndir þess
um ástina og ástarsambönd.
Djúp spor fjallar um baráttuna
við ástina, áföll og fyrirgefninguna
og unnu höfundar það út frá við-
tölum við einstaklinga sem þekkja
afleiðingar ölvunaraksturs af eigin
raun. Í því segir af fyrrverandi
kærustupari, Selmu og Alex, sem
hafa ekki hist í fimm ár og hittast
aftur fyrir tilviljun og þurfa að gera
upp drauga fortíðar, ákveða hvort
þau séu tilbúin til að axla ábyrgð á
gjörðum sínum og fyrirgefa.
„Smám saman raðast saman sú at-
burðarás sem varð til þess að þau
slitu sambandi og er ástæða þess
að þau eiga erfitt með að halda
áfram með líf sitt. Er hægt að fyr-
irgefa þeim sem þú elskar glæp
sem framinn er í gáleysi?“ segir um
verkið í tilkynningu.
Viðtal við geranda kveikjan
„Ég sá viðtal við einstakling sem
var gerandi og það kveikti í raun
hugmynd hjá mér varðandi þetta
málefni, að það hefði ekki verið tek-
ið fyrir í leikhúsi,“ segir Jóel,
spurður að því hvers vegna þau
Jenný hafi ákveðið að vinna leik-
verk upp úr þessum efnivið, afleið-
ingum ölvunaraksturs. „Út frá því
fór ég að tala við Jennýju og úr
urðu samræður um að taka þetta út
frá báðum hópum, þ.e. gerendum
og þolendum,“ segir hann. Auk
þess að taka viðtöl hafi þau leitað
heimilda, bæði innlendra og er-
lendra.
„Þetta viðtal hafði mjög mikil
áhrif á mig og okkur Jennýju lang-
aði að kanna hvað þetta væri og
hvaða áhrif þetta hefði á fólk, þessi
litla en um leið hrikalega stóra
ákvörðun,“ segir Jóel og á þar við
þá ákvörðun að aka undir áhrifum
áfengis. Hann segir lítið rætt um
ölvunarakstur og afleiðingar hans
hér á landi.
-Voru þetta erfið viðtöl að taka?
„Já, hrikalega, maður var alveg
eftir sig. Ef ég tala fyrir sjálfan
mig var það algjörlega þannig.“
-Erfitt fyrir fólk að rifja þetta
upp, væntanlega?
„Já, og það kom mér svolítið á
óvart hvað fólk var tilbúið að gera
til að hjálpa og það fannst mér
mjög gott,“ segir Jóel. Í ein-
hverjum tilfellum hafi fólk hins
vegar ekki treyst sér til þess að
tala við þau Jennýju og nefnir Jóel
viðmælanda sem var til í viðtal einn
daginn en ekki þann næsta. „Sárs-
aukinn fer ekkert,“ bendir hann á.
Frekari upplýsingar og miðasölu
má finna á tjarnarbio.is.
„Sársaukinn fer ekkert“
Djúp spor, heimildaverk unnið upp úr viðtölum við fólk sem þekkir afleið-
ingar ölvunaraksturs af eigin raun, verður frumsýnt í Tjarnarbíói í kvöld
Fyrirgefning „Það er erfitt að hata einhvern þegar þú þarft mest á honum að halda,“ segir í kynningu á verkinu
Djúp spor sem frumsýnt verður í kvöld. Hér sjást Jenný Lára og Jóel á æfingu í Tjarnarbíói.
BATMAN V SUPERMAN 3D 6, 9(POWER)
MY BIG FAT GREEK WEDDING 2 5:50, 8, 10:10
KUNG FU PANDA 3 5:50 ÍSL.TAL
BROTHERS GRIMSBY 10
FYRIR FRAMAN ANNAÐ FÓLK 8
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
POWERSÝNING
KL. 21:00
LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383
Verslunin LOKAR
á Laugavegi
30-50% afsláttur
Úr – demantar –gull – silfur
giftingahringir