Morgunblaðið - 21.12.2016, Blaðsíða 2
2 Jólablað Morgunblaðsins
Útgefandi Árvakur Umsjón Marta María Jónasdóttir Blaðamenn Marta María Jónasdóttir martamaria@mbl.is, Guðný Hrönn gudny-
hronn@mbl.is Kolbrún Pálín Helgadóttir kolbrun@mbl.is Auglýsingar Katrín Theodórsdóttir kata@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Forsíðumyndina
tók Árni Sæberg
V
R hitti naglann á höfuðið fyrir nokkrum árum í
auglýsingum sínum um hvíldartíma starfsfólks í
desmber. Fólkið í auglýsingunum sofnaði ofan í
súpuna á aðfangadag og var andlega fjarverandi í
vinnunni eins og gerist þegar fólk ofkeyrir sig. Allt
var þetta sett upp á kómískan hátt eins og þetta
væri gamanmál – sem það var og er ekki. Stundum þarf þó að nota
húmorinn til að ná í gegn því húmor er eitt beittasta vopnið.
Fyrrnefndar auglýsingar hittu mig í hjartastað því þær voru eins
og skyggnilýsing á mínu „fyrra“ lífi. Ég man nefnilega varla eftir
mér öðruvísi en vinnandi frá mér allt vit í desember. Peninga-
græðgin stýrði þessu náttúrlega á yngri árum þegar beðið var í of-
væni eftir að klára jólaprófin til þess að komast í að afgreiða fólk
sem var að jólastressa yfir sig. Seinna vann ég í tískuvöruverslun og
náði stuð ársins þar hámarki í desember – sérstaklega á Þorláks-
messu. Það var alger veisla að bjarga jólum villuráfandi eiginmanna
sem vissu ekki hvort þeir voru að koma eða fara. Þegar ég í sakleysi
mínu spurði mennina hvernig konan í lífi þeirra liti út og hvaða
smekk hún hefði fékk ég undantekningalaust þau svör að konan
væri svipuð mér – nema svo bættu þeir við að konan væri með
stærri eða minni brjóst. Í tæplega tvo áratugi hef ég unnið í fjöl-
miðlum og það slokknar náttúrlega ekkert á þeim þótt það komi jól.
Sem gerði það að verkum að ég var yfirleitt meðvitundarlaus á sjálf-
um jólunum og algerlega eins og goslaust appelsín.
Eftir að móðurhlutverkið bættist við önnur störf breyttist margt.
Þá blossaði upp sú þrá að „allt“ væri fullkomið. Flottustu börn í
heimi máttu náttúrlega ekki líða neinn skort og það sem ég áttaði
mig ekki á þarna (á sokkabandsárum móðurhlutverksins) var að
þessi fullkomnunarárátta er lífshættuleg og tilgangslaus ef út í það
er farið.
Streita er samspil ýmissa þátta eins og taugakerfis, heila og
hormónakerfis líkamans. Streita hefur því áhrif á viðbrögð, lífefna-
legt jafnvægi og mannleg samskipti. Streita getur líka valdið sjúk-
dómum eins og þunglyndi og verið vond fyrir kransæðakerfið.
Það að keyra sig út til þess að hlutirnir líti út á ákveðinn hátt er
galið og það kemur alls ekkert gott út úr því. Það má líka velta fyrir
sér hvaða maður vill eiga úttaugaða og hundleiðinlega konu sem er
buguð af jólastressi og fullkomnunaráráttu. Körlum er nefnilega
yfirleitt slétt sama um jólaskreytingar og almennt jólastuð.
Sem betur fer horfir allt til betri vegar. Aldurinn er að færast yfir
og þessi móðir veit, því hún er alveg að verða 40 ára, að sumt er
bara ekki hægt að mastera meðfram fullri vinnu. Þess vegna hefur
skylduverkefnum fækkað, sem hefur aukið lífshamingjuna um alla-
vega nokkur prósent.
Eitt dæmi. Ég var ein af þeim sem sendu alltaf jólakort. Þetta
byrjaði sem krúttlegur jólasiður en eftir að tengslanetið varð eins
og seðlaveski Donalds Trump varð þetta eins og snjóbolti sem byrj-
ar að rúlla. Eins og með flest í lífinu voru jólakortin masteruð og
ekki var boðið upp á lágkúruleg kort með stöðluðum texta heldur
fékk hver og einn handskrifaða snilld frá þessari fullkomnu (og bug-
uðu) húsmóður. Eins skemmtilegt og það er að fá sniðug jólakort
var þessi jólakortasiður minn mun meira streituvaldandi en hitt.
Eins þrjósk og ég er var þessum sið ekkert hætt fyrr en þetta var
orðið svo dýrt að heimilisbókhaldið leyfði það ekki lengur. Af fjár-
hagslegum ástæðum kvaddi ég jólakortin – alls ekki vegna streitu
eða bugunar. Og það kom verulega á óvart hvað þessi siður hafði
tekið mikinn tíma og mikinn toll. Skyndilega hafði ég miklu meiri
tíma í desember og gat því gert eitthvað upp-
byggilegt með mínum uppáhalds.
Það eru samt ákveðin vonbrigði að ég
skyldi ekki fá símtöl frá grátandi vinum
sem voru miður sín yfir jólakorta-
leysinu.
Ef við gefum okkur það að við fáum
góð 70 ár á lífi, ef við erum heppin, er al-
veg glórulaust að lifa einn mánuð á
ári með hjartað í buxunum af
stressi og vanlíðan yfir því að
vera ekki að gera hlutina rétt.
Fólk með fulla greind getur
ekki boðið sjálfu sér upp á það.
Marta María
Jónasdóttir
❄
Stór-
hættuleg
hátíðahöld
6
Sigríður Hagalín Björns-
dóttir segist vera jólafasisti.
14
Þórkatla Aðalsteins-
dóttir sálfræðingur
segir að fólk eigi ekki
að láta meðvirkni
stýra jólahaldi.
40
Smákökubakstur er full-
komin leið til að búa til
notalega stemmningu með
börnunum.
60
Sara Lind Þórðardóttir
veit hversu sársaukafullt
er að missa maka sinn og
hvaða áhrif missirinn
hefur á jólahald.
76
Gleðilegan
jólaglamúr!
104
Þórdís Harpa
Lárusdóttir
sparar ekki
jólaskrautið.
106
Þórunn Högnadóttir er
ókrýnd heimilisdrottning.
Hún er alltaf með nýtt
þema á hverju ári.
26
Bjór er ekki bara til að hella í
sig. Úr honum má líka mat-
reiða girnilega jólarétti.
94
Sara Sjöfn Grettisdóttir
býr til nýjar jólahefðir
með fjölskyldunni.
116
Edda Jónsdóttir fer yfir sam-
band okkar við peninga.
126
Ekki einangrast félagslega í desember!
108
Allt sem þú þarft að vita um
heitustu jólagjafirnar.
80
Karitas
Sveinsdóttir er
mínimalískt
jólabarn.