Morgunblaðið - 21.12.2016, Side 20
20 Jólablað Morgunblaðsins
S T Y R K TA R F É L A G L AMAÐ R A O G FAT L A Ð R A
Í ÞÁGU FATLAÐRA BARNA OG UNGMENNA
Sölutímabil 2. – 16. desember
Casa – Kringlunni og Skeifunni
Epal – Kringlunni, Skeifunni og Hörpu
Hafnarborg - Hafnarfirði
Húsgagnahöllin - Reykjavík og Akureyri
Hverfisgallerí - Hverfisgötu 4
Kokka - Laugavegi
Kraum - www.kraum.is
Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhúsinu og Kjarvalsstöðum
Litla jólabúðin - Laugavegi
Líf og list - Smáralind
Módern - Faxafeni 10
Snúran - Síðumúla
Þjóðminjasafnið - Suðurgötu
Blómaval - um allt land
Blóma- og gjafabúðin - Sauðárkróki
Blómastofan Glitbrá - Reykjanesbæ
Norska húsið - Stykkishólmi
Póley - Vestmannaeyjum
Valrós - Akureyri
Netverslun – www.kaerleikskulan.is
S Ý N
A
nna Marín segist
byrja að finna fyr-
ir jólaandanum
strax í september
en að hún reyni
eftir bestu getu að
halda aftur af sér til 1. nóvember.
„Þá skreyti ég herbergið mitt hátt
og lágt og byrja að hlusta á jólalög.“
Aðspurð hvenær þessi mikli jóla-
áhugi hafi upphafist segist hún ekki
muna eftir sér öðruvísi en mjög
áhugasamri um jólin og jólahaldið.
En hvað er það sem er svona sér-
stakt við jólin að mati Önnu. „Ég
elska bara allt við jólin, ég elska að
baka, elska að hlusta á jólatónlist og
bara alla kósí stemninguna sem
fylgir þeim og undirbúningi þeirra.“
Það sem gleður Önnu Marín þó hvað
allra mest er að sjá andlit þeirra sem
hún færir kökur fyrir jólin ljóma en
Anna bakar smákökur og setur í box
og krukkur og færir sínum nánustu í
aðventunni.
„Ég er dugleg að finna uppskriftir
á netinu sem mér líst vel á og þýði
þær yfir á íslensku. Ég fann til dæm-
is eina æðislega í fyrra af kökum
sem kallast snjóboltakökur, sem ég
ætla einmitt að gera aftur núna í ár.“
Spurð um uppáhaldssmákökur
sínar segir hún þær vera vanillu-
kökur með súkkulaðidropum í miðj-
unni vegna þess að þær minni hana á
bernskuna.
Spurð um skoðun foreldra sinna á
þessu snemmbúna jólaæði skellir
hún upp úr. „Sko, þeim finnst þetta
bara fínt svo lengi sem ég skreyti
bara herbergið mitt til að byrja með
og hlusta á jólalögin með heyrnatól-
um. Svo fæ ég að hjálpa til við að
skreyta íbúðina þegar nær dregur
jólum.“
Anna Marín elskar ekkert síður
að gefa jólagjafir og segist leggja
upp úr því að gefa fleiri og minni
gjafir frekar en færri og stærri.
En hvers óskar Anna Marín sér
sjálf undir tréð þessi jólin?
„Mig dreymir um ljósbláa
Kitchenaid-hrærivél til þess að geta
bakað og náttföt.“ Eitthvað að lok-
um? „Bara gleðileg jól,“ segir þessi
heillandi jólastelpa.
Snjóboltakökur
100 g hveiti
25 g kakó
1½ og tsk. lyftiduft
¼ tsk. salt
170 g brætt súkkulaði
200 g brúnn sykur
100 g smjör við stofuhita
2 egg
2 dl flórsykur
Uppskriftin gefur um 30 kökur.
Byrjið á því að setja hveiti, kakó,
lyftiduft og salt saman í skál, hrærið
saman og setjið til hliðar. Því næst
er súkkulaðið brætt yfir vatnsbaði
eða í örbylgjuofni og látið kólna.
Þeytið því næst brúnan sykur og
smjör í annarri skál þar til blandan
er létt og ljós. Bætið eggjunum við
blönduna einu í einu. Hellið því næst
súkkulaðinu út í blönduna og hrærið
vel. Hellið að lokum þurrefnunum
saman við og passið að hræra ekki of
hratt. Setjið plastfilmu yfir deigið og
látið kólna í ísskáp í að minnsta kosti
klukkustund.
Takið 1 matskeið af deiginu og
rúllið því í kúlu og veltið svo kúlun-
um í flórsykri og setjið þær á plötu.
Hafið smjörpappír undir. Hafið alla-
vega 2 cm á milli kaknanna og setjið
þær í ofninn á 180°C og í bakið í 12
mínútur.
Dreymir um
hrærivél í jólagjöf
Hin þrettán ára gamla Anna Marín Bentsdóttir hefur verið
hugfangin af jólahátíðinni allt frá því að hún man eftir sér.
Hún segist einfaldlega elska allt við jólin
Kolbrún Pálína Helgadóttir | kolbrun@mbl.is
Anna Marín Bents-
dóttir elskar að
gleðja vini og vanda-
menn með bakstri í
aðventunni.
„Ég elska bara allt við jólin, ég elska
að baka, elska að hlusta á jólatónlist
og bara alla kósí stemninguna sem
fylgir þeim og undirbúningi þeirra.“
❄
„Mig dreymir um
ljósbláa Kitchena-
id-hrærivél til þess
að geta bakað og náttföt.“
❄