Morgunblaðið - 21.12.2016, Side 46
46 Jólablað Morgunblaðsins
F
arið er í alla grunn-
þætti konfektgerðar,
sem sagt gerð fyll-
inga, steypingu í kon-
fektform og temprun
á súkkulaði,“ segir
Halldór spurður að því hvað fólk læri
á námskeiðinu hans. „Þátttakendur
búa til sína eigin mola og taka með
sér heim en allt hr áefni er innifalið í
námskeiðsgjaldinu. Íris Björk
Óskarsdóttir hefur einnig verið að
leiðbeina á námskeiðunum mínum en
hún er mjög flottur bakari og starfar
nú sem yfirbakari hjá 17 sortum.“
Halldór segir námskeiðið vera fyr-
ir alla sælkera sem hafi áhuga á kon-
fektgerð en karlar séu þó í minni-
hluta. „Það eru nú mest konur sem
koma á námskeiðin hjá okkur en
námskeiðin eru að sjálfsögðu fyrir
bæði kynin og alla þá sem vilja eiga
skemmtilega kvöldstund og læra að
búa til konfekt. Það hefur færst í vöxt
að vinnustaðahópar, saumaklúbbar
og hópar í óvissuferðum hafi verið að
koma á námskeið og skapast alltaf
jafn skemmtileg stemning.“
Borðar konfekt í hófi
En hvaða moli er í uppháhaldi hjá
Halldóri? „Uppáhaldsmolinn minn er
núggatmolinn góði sem ég er með á
námskeiðunum, hann er með núggati,
ristuðum möndlum og dökku súkku-
laði, mjög góður,“ segir Halldór, sem
borðar sjálfur konfekt í hófi. „Ég geri
nú því miður ekki mikið konfekt fyrir
sjálfan mig í kringum jólin en hef að-
stoðað konuna mína við sörubakstur-
inn fyrir jólin.“
Hver er svo galdurinn á bak við
fullkomið konfekt? Halldór segir gott
hráefni meðal annars skipta sköpum.
„Galdurinn við fullkomið konfekt er
að hafa nægan tíma við að dunda sér
því oft tekur þetta meiri tíma en fólk
hefur áætlað. Það þarf að kynna sér
uppskriftina vel og ekki verra að hafa
góða tónlist og rólegheit. Svo er gott
hráefni lykillinn,“ segir hann að
lokum.
Morgunblaðið/Golli
Halldór Kristján Sigurðsson, bakari og konditor, hefur haldið konfekt-
gerðarnámskeið í heil 19 ár. Hann veit því eitt og annað um konfektgerð og
hver galdurinn á bak við fullkomið konfekt er. Uppáhaldsmoli hans er
núggatmoli sem sælkerar geta einmitt lært að gera á námskeiðinu hans.
Guðný Hrönn | gudnyhronn@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
„Uppáhaldsmolinn minn er núggat-
molinn góði sem ég er með á nám-
skeiðunum, hann er með núggati, rist-
uðum möndlum og dökku súkkulaði.“
Jólakonfektið
Áhugasamir geta
skráð sig á námskeið
Halldórs á midi.is.
❄
Gerir ekki mikið
konfekt fyrir sjálfan sig
Halldór lærði bakaraiðn
á Íslandi en fór síðan til
Danmerkur til að bæta
við sig þekkingu.
Laugavegi 99 – Sími 777 2281
(gengið inn frá Snorrabraut) aff.is
Concept store
Ævintýraleg aðventa
í AFF Concept store
S v e i n b j ö r g · N j a r ð a r n e s i 4 · A k u r e y r i
MJÚK OG HLÝ ULLARTEPPI
Í JÓLAPAKKANN ÞINN
Sjá nánar sölustaði um land allt og
vöruúrval á www.sveinbjorg.is
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS