Morgunblaðið - 21.12.2016, Side 14
Flækju-
burstinn
örvar hár-
svörðinn. F
lækjuburstarnir frá
Ikoo eru vandaðir og
góðir fyrir mjög flókið
og villt hár. Burstarnir eru
handgerðir og hannaðir til að
skapa vellíðan og auka blóð-
flæði í höfðinu. Með því að
nota burstann rétt má fá ansi
gott höfuðnudd í leiðinni.
Burstinn er ekki bara fyrir
síðhærðar þokkadísir heldur
líka fyrir herra.
Jólagjöfin
fyrir
hárprúða
Svona lítur
flækjuburst-
inn frá Ikoo út.
14 Jólablað Morgunblaðsins
Í S L E N S K H Ö N N U N
O G R I T S N I L L D
Í Þ Á G U
F A T L A Ð R A B A R N A
O G U N G M E N N A
S T Y R K TA R F É L A G L A M A Ð R A O G F AT L A Ð R A
Sölutímabil 2. – 16. desember
Casa – Kringlunni og Skeifunni
Epal – Kringlunni, Skeifunni og Hörpu • Hafnarborg - Hafnarfirði
Húsgagnahöllin - Reykjavík og Akureyri • Hverfisgallerí - Hverfisgötu 4
Kokka - Laugavegi • Kraum - www.kraum.is
Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhúsinu og Kjarvalsstöðum
Litla jólabúðin - Laugavegi • Líf og list - Smáralind
Módern - Faxafeni 10 • Snúran - Síðumúla • Þjóðminjasafnið - Suðurgötu
Blómaval - um allt land • Blóma- og gjafabúðin - Sauðárkróki
Blómastofan Glitbrá - Reykjanesbæ Norska húsið - Stykkishólmi
Póley - Vestmannaeyjum • Valrós - Akureyri
Netverslun – www.jolaoroi.is
Pottaskefill
J
ólin eru í hugum okkar
tími samveru, fjölskyldu-
tengsla og hefða. Á þeim
árstíma stöldrum við
gjarnan við, tökum okkur
hlé frá daglegu amstri og
njótum þess að eiga fólk að, vera
saman og undirstrika fyrir okkur
sjálfum að við tilheyrum. Þetta
hljómar vel, ekki satt? En auðvitað
er lífið ekki svona einfalt, það koma
tímabil þar sem áföll, átök og tog-
streita lita samskiptin, á okkur leita
jafnvel erfiðar minningar um önnur
jól og þá er snúnara fyrir okkur að
komast á þennan stað. Þó jólin séu
að koma. Og kannski sérstaklega af
því að jólin eru að koma. Því þá för-
um við að setja kröfur, hafa vænt-
ingar og erum viðkvæmari þess
vegna en ella. Við jafnvel kvíðum að
mæta í jólaboðin en mætum samt.
Höldum í hefðirnar þó þær séu
hættar að gefa okkur þann frið og
öryggi sem þær kannski einhvern
tíma sköpuðu í okkar huga. Stund-
um lendum við í þeim pytti að búa til
í huganum fallega mynd af því
hvernig jólin eiga að vera þar sem
allir eru góðir og glaðir, hátíðleiki og
hlýja ríkir og ekkert fer úrskeiðis.
Og jafnvel hömumst við að undirbúa
þessa jóladaga til að sjá til þess að
svo verði,“ segir Þórkatla. Hún legg-
ur áherslu á að hver og einn beri
ábyrgð á sjálfum sér – ekki öðrum.
„Við getum bara stýrt okkur sjálf-
um og okkar eigin líðan. Höfum eng-
in völd yfir öðrum og verið getur að
það fólk, sem við höldum jólin með,
hittum í boðunum, sé statt annars
staðar í sínum huga. Svo hvað skal
gera?“
Þórkatla segir að hver og einn
verði að undirbúa jólin með sínar
eigin þarfir í huga og sínar eigin að-
stæður.
„Horfum til þess að jólin eru þrír
dagar og við ætlum að hafa þá
ánægjulega og leyfa okkur að fara í
gegnum þá þannig að við sjálf séum
sátt. Það getur vel verið að það þýði
að við mætum í jólaboð vegna þess
að við viljum gleðja aðra. Við þurf-
um ekki endilega að vera lengi ef
okkur finnst það þrúgandi eða líður
ekki vel í aðstæðunum. Eða við
sleppum því að mæta í jólaboðið því
við treystum okkur ekki og það má
líka. Mestu skiptir að misbjóða ekki
sjálfum sér og bera ábyrgð á sjálf-
um sér þessa daga sem aðra.“
Hún segir að við eigum að búa
okkur til hefðir sem næra okkur og
henta okkar eigin lífi.
„Og hafi fjölskyldan breyst – bú-
um þá til nýjar hefðir sem henta
nýju fjölskylduformi og koma til
móts við okkur í breyttum að-
stæðum. Búum til ánægjulegar
minningar, það er besta lækningin
við sárum minningum.“
Þórkatla segir það vera þekkt
munstur að fólk fari að stjórnast í
sínum nánustu á tímum sem þess-
um.
„Jólakvíðinn hefur mörg andlit.
Eitt þeirra er stjórnsemi og til að
slá á kvíðann förum við að segja öðr-
um hvar og hvernig þeir eiga að
vera, stýra ofan í smæstu atriði.
Þegar við mætum stjórnseminni
skulum við anda inn og anda út og
standa fast í báða fætur. Það getur
enginn látið mann gera eitthvað sem
manni er á móti skapi en best er að
forðast reiði og átök á þessum árs-
tíma sem öðrum, enda erum við allt-
af sáttari við okkur sjálf þegar okk-
ur tekst að setja mörk af yfirvegun
og ákveðni. Og munum að stundum
þarf að setja aftur og aftur mörk
vegna sömu atriða. Það er allt í lagi,
og á endanum er tekið mark má
manni!“
Hún segir að það sé líka ágætt að
hafa bak við eyrað að það sé ekki til
nein fullkomin útgáfa af jólunum.
„Það er ekki til ein hárrétt og full-
komin útgáfa af jólunum. Jólin eru
mannanna verk og ófullkomin eins
og öll mannanna verk. En við getum
gert þau ánægjuleg, hátíðleg og
nærandi. Fyrir okkur sjálf. Og þá er
gott að vera með okkur á jólunum.“
Jólakvíðinn
hefur mörg andlit
Jólin eru ekki alltaf sykurhúðuð og dísæt. Þau geta líka verið skrýtin og full
af óraunhæfum kröfum, væntingum og vonbrigðum. Þórkatla Aðalsteins-
dóttir sálfræðingur segir að fólk eigi að fara sína leið og fylgja hjartanu
þegar jólahald er annars vegar og að jólakvíðinn hafi mörg andlit.
Marta María | martamaria@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Fjölskylduboð
geta verið al-
gert leikrit.
Þórkatla
Aðalsteinsdóttir
sálfræðingur