Morgunblaðið - 21.12.2016, Blaðsíða 22
Þ
eir sem ætla alveg örugglega
að belgja sig út af góðum
mat um jólin þurfa ekki að
örvænta því fjölmargir veitinga-
staðir bjóða upp á sérstaka jólamat-
seðla og jólahlaðborð í desember.
Úrvalið af jólaveislum á veitinga-
stöðum landsins er ansi gott líkt og
fram kemur á vefnum veitingastað-
ir.is en á slóðinni veitingastadir.is/
jolahladbord/ má finna lista yfir þá
veitingastaði, ýmist í Reykjavík og
úti á landi, sem verða með girnilega
jólamatseðla í kringum hátíðarnar.
Þar má einnig nálgast upplýsingar
um verð og önnur praktísk atriði um
jóladagskrána á hverjum og einum
stað.
Jólamaturinn
Getty images
Það verður nóg um
að vera á veitinga-
stöðum landsins í
desember.
Hlaðborð og
jólamatseðlar
aukast. „Úrvalið hefur farið batnandi með hverjum mán-
uði síðastliðin ár og má búast við heilum hellingi af af
jólatengdum vörum í helstu matvöruverslanir landsins
þetta árið. Í dag get ég farið út í búð og keypt sem dæmi
„vegan“-ost, jógúrt, ís, majónes, frosna pitsu, bollur,
nagga og allskonar góðgæti sem ekki var hægt áður fyrr.
Fyrir áratug pöntuðum við okkur „vegan“-vörur í gegn-
um vefinn en í dag fæst meirihluti þessara vara hér á
landi,“ segir Sigvaldi sem sjálfur hefur unnið að því að
bæta aðgengi fólks á Íslandi að „vegan“-vörum, bæði í
starfi sínu sem formaður Samtaka grænmetisæta á Ís-
landi og sem venjulegur virkur neytandi.
Morgunblaðið/Kristinn
S
íðastliðin 15 ár höfum við hjónin borðað
sveppahnetusteik á aðfangadagskvöld og
ég forvinn hana alltaf á Þorláksmessu.
Þetta er okkar eigin uppskrift sem við höf-
um þróað í gegnum tíðina og þykir afar vin-
sæl alls staðar þar sem hún er smökkuð.
Eftir að við eignuðumst börn höfum við einnig bætt við
Tofurkey á matseðilinn á aðfangadag, það er í afar miklu
uppáhaldi hjá krökkunum. Meðlætið er breytilegt, þó í
grunninn sé það hnetusósan hennar Sollu, ferskt og lit-
ríkt salat, ofnbakaðar sætar kartöflur með gulrótum og
venjulegum kartöflum í bland. Það er aldrei að vita nema
að við gerum einhverjar viðbótar tilraunir með forrétt
eða eftirrétt þetta árið, en það kemur í ljós,“ útskýrir Sig-
valdi spurður út í matinn sem verður á boðstólum á heim-
ili hans á aðfangadag. Sigvaldi hefur gert tilraunir með
hnetusteikina í gegnum árin og alltaf hefur maturinn
heppnast vel að hans sögn. „Já, við höfum verið afar
heppin með aðalréttinn á aðfangadagskvöldi og gert til-
raunir með aðra rétti sem einnig hafa farið furðuvel í
okkur. Með réttum kryddblöndum og góðu hráefni sem
maður þekkir vel er mjög auðvelt að fá þetta til að heppn-
ast.“
Eins og áður sagði sér Sigvaldi um að græja hnetu-
steikina á Þorláksmessu. „Já, það er hluti af hefð jólanna.
Die Hard í sjónvarpinu og ég inni í eldhúsi að setja saman
máltíðina. Maturinn er því tilbúinn til þess að setja í ofn
rétt fyrir aðfangadagsmáltíðina og því fyrirhöfnin á að-
fangadag lítil. Við höfum oftast borðað hjá öðrum í fjöl-
skyldunni en komum þá með allan okkar mat með okkur.
Núna í ár borðum við heima hjá okkur og fjölskyldan er
velkomin en það verður eingöngu vegan-matur í boði hjá
okkur,“ segir Sigvaldi sem er ekki alveg viss hvað verður
í eftirrétt þetta árið. „Við höfum oft verið með góðan veg-
an-ís, lúxus súkkulaði, köku eða eitthvert annað góðgæti
sem ábót eftir matinn en við verðum oft að bíða með eft-
irréttinn sökum þess hve södd við erum eftir aðalmáltíð-
ina.“
„Ostakallinn“ vinur hans gat þetta
Áður en Sigvaldi gerðist „vegan“ var hann grænmet-
isæta. Hann kveðst hafa í upphafi séð fyrir sér að „veg-
anismi“ yrði honum erfiður en í ljós kom að þetta var auð-
veldara hann hann hafði talið. „Ég hélt að það yrði erfitt
að breyta til en svo var ekki. Félagi minn, sem eins og ég
hafði verið grænmetisæta í langan tíma, ákvað að gerast
„vegan“ einn daginn og þá áttaði ég mig á því hversu auð-
velt þetta getur orðið. Hann, sem var mikill ostakall, gat
þetta og þá var ég alveg viss um að ég gæti þetta líka.“
Í dag er auðvelt að vera „vegan“ að sögn Sigvalda enda
er framboðið af „vegan“-vottuðum matvörum alltaf að
Jólakræsingar
Sigvaldi Ástríðarson, sem hefur verið „vegan“ í rúm tíu ár, mun hafa hnetu-
steik á aðfangadag í matinn líkt og árin áður. Um sérstaka uppskrift er að
ræða sem hann og eiginkona hans hafa þróað á síðastlinum 15 árum.
Sigvaldi segir steikina vekja lukku hjá öllum þeim sem smakka hana.
Guðný Hrönn | gudnyhronn@mbl.is
Eingöngu „vegan“-
matur á boðstólum í ár
Hnetusteik er
tilvalinn
hátíðarmatur.
„Með réttum kryddblöndum
og góðu hráefni sem maður
þekkir vel er mjög auðvelt
að fá þetta til að heppnast.“
❄
Sigvaldi
Ástríðarson
mun borða
hnetusteik á
aðfangadag.
22 Jólablað Morgunblaðsins
Gómgleðjandi Gjafaöskjur
- sérsniðnar eða staðlaðar
að hætti hússins
Grandagarður 35 · 101 Rvk · 551 8400 · www.burid.is
Gefðu upplifun.Gjafabréf
í ostaskóla Búrsins er
tilvalinn í skóin.
Ostajól
Hillur svigna undan
gómgleðjandi ostum
og girnilegum
kræsingum.