Morgunblaðið - 21.12.2016, Blaðsíða 32
32 Jólablað Morgunblaðsins
Þ
etta var reglulega
notaleg stund, það er
alltaf svo gaman þeg-
ar fólk hefur nægan
tíma og nýtur þess að
vera saman og
borða,“ segir Albert, en þeir Bergþór
tóku á móti fimm vinkonum sínum.
„Þetta eru vinkonur úr ýmsum áttum
sem tengjast ekki sem hópur og
þekktust ekki endilega áður. Það er
alltaf gaman að leiða fólk úr ólíkum
áttum saman, en þó ekki út í bláinn,
því að orkan þarf að smella saman.
Þær eru allar óskaplega opnar og
skemmtilegar þannig að þetta var
bara frjálslegt,“ segir Albert um hóp-
inn sem samanstóð af þeim Ólöfu
Kolbrúnu Harðardóttur, Lindu Pét-
ursdóttur, Kristínu Einarsdóttur,
Svanhvíti Þórarinsdóttur og Vigdísi
Másdóttur.
Albert segir eldamennskuna og
baksturinn hafa heppnast vel, þótt
hann hafi verið að prófa nýjar upp-
skriftir. En maturinn var ekki bara
bragðgóður, heldur gladdi hann einn-
ig augað eins og sjá má á meðfylgj-
andi myndum. „Það skiptir líka máli
að maturinn sé fallegur,“ segir Al-
bert.
Dýrmæta handmálaða
jólasparistellið
Maturinn var svo borinn fram á
dýrmætu jólastelli sem Bergþór
handmálaði á postulínsnámskeiði.
„Okkur bauðst einu sinni að fara á
postulínsnámskeið og það kom á
óvart, einbeitingin gerir það að verk-
um að maður fer í hálfgerða hug-
leiðslu, a.m.k. svona nýbyrjaðir klauf-
ar eins og við. En þetta heppnaðist
vel og Bergþór tók sér það verkefni
fyrir hendur að mála íslensku jóla-
sveinana og Grýlu og Leppalúða.
Hann studdist við jólasveina teikn-
arans Halldórs Péturssonar og færði
þá í búninga sem voru sigurtillaga í
samkeppni um nýja jólasveinabún-
inga sem Þjóðminjasafn Íslands hélt
á sínum tíma. Honum er margt til
lista lagt,“ segir Albert um stellið
veglega sem er alltaf dregið fram að
morgni jóladags.
Spurður nánar út í þær kræsingar
sem voru á boðstólum í jólaboðinu,
segir Albert þetta hafa verið nýja
rétti sem hann hafi aldrei reitt fram
áður. „Það er alltaf gott að breyta til
svo að maður staðni ekki alveg. Við
prófuðum möndlumjöl, en ég hef ekki
unnið mikið með það áður. Það kom
vel út, það er auðvelt að baka úr því,“
útskýrir Albert. „Annars erum við
ekkert sérstaklega fastheldnir þegar
kemur að jólasiðum, eða jólaréttum.
Tóku forskot
á jólasæluna
Jólatíminn er í miklu uppáhaldi hjá þeim
Alberti Eiríkssyni og Bergþóri Pálssyni enda
leggja þeir mikla áherslu á að njóta með vinum
og fjölskyldu yfir hátíðarnar. Nýverið tóku þeir
smáforskot á jólasæluna og héldu glæsilegt
jólaboð fyrir nokkrar vinkonur. Þá var boðið m.a.
upp á ofnbakaðar fíkjur með geitaosti og hind-
berjatertu með ljúffengu vanillukremi. Hand-
málað jólastell var svo dregið fram í tilefni jóla-
boðsins en það stell á sér skemmtilega sögu.
Guðný Hrönn | gudnyhronn@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Jólastemning
Jólastellið er hand-
málað af Bergþóri.
❄ SJÁ SÍÐU 34
Vigdís Másdóttir, Linda Pétursdóttir, Albert
Eiríksson, Svanhvít Þórarinsdóttir, Bergþór
Pálsson, Ólöf Kolbrún Harðardóttir og Kristín
Einarsdóttir áttu góða stund saman.
Bergþór tók að
sjálfsögðu lagið
og gestir þeirra
tóku undir.
Laugavegi 103 | 101 Reykjavík | Sími 551 5814 | www.th.is
5.500 - 7.800 kr.
Snyrtitöskur
-
r.
Góðar
jólagjafahugmyndir
Dömuhanskar
Herrahanskar
7.900 - 13.800 kr.
Seðlaveski
7.500 kr.
Helgartaska 33.500 kr.
Tölvutaska ADAX cph
34.600 kr.
6.200 - 6.800 kr.
Belti
6.5
10.70
0
0
0
k
Dömutöskur
17.800 -
20.500 kr.