Morgunblaðið - 21.12.2016, Blaðsíða 28
28 Jólablað Morgunblaðsins
þið viljið). Þessi sósa hentar bæði
með hamborgarhryggnum sem og
öðru kjöti, bara breyta kjötkraft-
inum eftir þörfum.
Lava-rauðlauksulta
með beikoni
Að þessari lauksultu á Elvar
bruggmeistari heiðurinn. Ölvisholts
Lava Stout bregður sér hér í jóla-
búninginn. Beikonið er steikt og tek-
ið til hliðar, rauðlaukurinn steiktur
upp úr feitinni af beikoninu og síðan
er hann soðinn upp úr Lava. Sultan
er góð bæði heit og köld og passar
með flestu kjöti, er frábær á ham-
borgara og með öllum ostum, ekki
verra að hafa einn jólabjór með. Þeir
sem ekki vilja kjöt geta sleppt
beikoninu og steikt laukinn upp úr
matarolíu.
6 sneiðar reykt beikon
6 meðalstórir rauðlaukar
½ tsk. kínversk kryddblanda
(5 chinese spice, fæst í Krydd- og
tehúsinu)
1,5 dl púðursykur
½ flaska ÖB Lava
salt og pipar
Steikið beikon á pönnu þar til það
verður stökkt. Skerið laukinn á með-
an í tvennt og svo í þunna hálfmána.
Takið beikonið af pönnunni og skiljið
fituna eftir. Steikið rauðlaukinn upp
úr fitunni og bætið út í smásalti
ásamt kínversku kryddblöndunni.
Þegar laukurinn er orðinn nokkuð
gegnsær er púðursykrinum bætt út í
og látið malla í um 5 mínútur. Hellið
þá Lava-bjórnum út í og sjóðið lauk-
sultuna niður við vægan hita í um 30
mínútur. Skerið beikonið í bita og
bætið aftur út í sultuna ásamt salti
og pipar eftir smekk.
Ostaídýfa
Hér fær lauksultan framhaldslíf
en hún er ein af uppistöðunni í þess-
ari dásamlegu ostaídýfu. Ídýfan er
góð með saltkringlunum og öllu
brauði eða sem meðlæti með kjötinu.
Hún gengur líka með alls kyns osta-
kexi og jafnvel nachos-flögum og
það má bera meiri lauksultu fram
með henni til að bæta á.
500 g rjómaostur
6 sneiðar beikon
4 msk. majónes
1 tsk. dijon-sinnep
1 msk. Worcestershire-sósa
1 dl Lava-rauðlaukssulta (sjá upp-
skrift hér að ofan)
150 g rifinn cheddar-ostur
smá pipar
Steikið beikonið þar til það er
stökkt. Leyfið því að kólna og skerið
það svo í litla bita. Blandið öllu hrá-
efninu saman nema helmingnum af
rifna ostinum og lúku af beikoninu.
Setjið blönduna í eldfast mót og
stráið restinni af ostinum og beikon-
inu yfir. Hitið ídýfuna í 200 °C ofni
þar til osturinn að ofan er bráðn-
aður.
Saltkringlur
Saltkringlur (e. pretzel) eru hið
fullkomna bjórfæði enda fátt sem
passar eins vel með einum köldum.
Hér byrjum við á að gera maltsíróp
úr Tuttugasta og fjórða og bætum
því svo út í deigið. Kringlurnar eru
síðan soðnar upp úr Heims um bjór
og kryddaðar með grófu salti og kín-
versku 5-spice kryddi sem einkenn-
ist af anis, kanil og negul áður en
þær eru bakaðar.
Þessar bráðna í munni og ná
sjaldan stofuhita eftir að þær koma
úr ofninum!
Maltsíróp
½ bolli sykur
½ bolli ÖB Tuttugasti og fjórði
Sjóðið saman sykurinn og bjórinn
við vægan hita. Gætið þess að ekki
sjóði upp úr. Sjóðið og hrærið í um
1-2 mínútur. Takið pottinn til hliðar
og látið sírópið kólna.
Saltkringlur
2 bollar volgt vatn (37°-40°C)
2 pk. þurrger
2 msk. maltsíróp
6½ bolli hveiti
2 msk. salt
75 g kalt smjör, skorið í bita
8 bollar vatn
½ bolli matarsódi
¼ bolli púðursykur
½ bolli ÖB Heims um bjór
Gróft salt og kínversk krydd-
blanda (5 chinese spice, fæst í
Krydd- og tehúsinu)
Blandið saman 2 bollum af vatni,
geri og maltsírópi í skál og leggið til
hliðar í um 10 mínútur. Hveiti, salt
og smjör er sett í hrærivélaskál og
smjörinu blandað saman við þurr-
efnin í höndunum (klípið smjörið
saman við þurrefnin). Hellið ger-
blöndunni út í og blandið saman með
sleif þar til deigið hefur tekið í sig
vökvann. Setjið nú hnoðarann á
hrærivélina og hnoðið deigið á
meðalhraða þar til það verður mjúkt
og teygjanlegt, um það bil 5-6 mín-
útur. Breiðið klút yfir skálina og
látið deigið lyfta sér á hlýjum stað í
1-1½ klst eða þar til það hefur
stækkað um helming.
Hitið ofninn í 230 °C.
Takið deigið úr skálinni og formið
n.k. hleif án þess að hnoða deigið.
Skerið hleifinn í ca. 12 sneiðar. Rúll-
ið hverri sneið út í 50-60 cm lengju.
Til að forma kringlurnar er lengjan
beygð í „U“. Endarnir á „U-inu“ eru
krossaðir einu sinni, eða tvisvar og
síðan festir sitt hvorum megin við
botninn á „U-inu“. Hafið tvær til
þrjár bökunarplötur með bökunar-
pappír tilbúnar. Blandið saman í
skál grófu salti og kínverskri krydd-
blöndu og leggið til hliðar.
Setjið 8 bolla af vatni, matarsóda,
bjór og púðursykri í pott og hitið
upp að suðu. Lækkið þá hitann örlít-
ið. Sjóðið kringlurnar, eina í einu í
pottinum í um það bil 30 sekúndur
eða þar til þær fljóta. Gætið þess að
taka þær varlega upp úr pottinum,
gott er að nota til dæmis fiskispaða.
Leggið kringlurnar á bökunarplötu,
kryddið með saltblöndunni. Bakið
kringlurnar í 5 mínútur, snúið þá
bökunarplötunni í ofninum og bakið
í um 8 mínútur í viðbót. Athugið að
það getur verið mjög misjafnt eftir
ofnum hve lengi þarf að baka kringl-
urnar en þær eiga að koma nokkuð
dökkar og stökkar út.
Ölvisholt brugghús
er með tvo jólabjóra
fyrir þessi jól.❄
Stollen-
jólabrauð.