Morgunblaðið - 21.12.2016, Blaðsíða 4
H
vítu handrenndu jólatrén frá Postulínu prýða
heimili margra fagurkera, en þau voru fyrst
framleidd árið 2012. Í ár eru trén fyrst fáanleg í
svörtu, en um sérverkefni fyrir NORR11 er að
ræða. Svörtu trén koma í nokkrum stærðum og
eru ýmist með mattri áferð eða háglans. Hvert
og eitt jólatré er einstakt að sögn Guðbjargar
Káradóttur leirkerasmiðs. „Það eru engin tvö
tré eins enda er þetta allt handrennt.“
Þess má geta að svörtu trén verða eingöngu
fáanleg í NORR11 á Hverfisgötu. Í tilefni svörtu
línunnar verður fögnuður í versluninni í dag, 1.
desember.
Nýtt
Hvítu klassísku trén verða
áfram fáanleg á vinnustofu
Postulínu í Mávahlíð 16.
Útkoma sam-
starfs NORR11
og Postulínu er
þessi svörtu tré.
Guðbjörg
Káradóttir
Postulína og
NORR11
í eina sæng
Uppáhaldsjólalag? „Ég er algjört klisju
„eighties“-barn og elska „Last Christmas“ með
Wham!“
Hvað gerir þú til að ná slökun í kringum jólin?
„Ég reyni að ýta allri vinnu frá og að hitta sem
mest af fjölskyldu og vinum og bara njóta þess
að vera með þeim og skemmta okkur saman.“
Ertu búin að finna jóladressið? „Nei, ég er nú
yfirleitt ekkert mikið að stressa mig á því að
kaupa eitthvað nýtt, ég á alveg margt fallegt
nú þegar til að vera í og finn yfirleitt bara ein-
hverja góða samsetningu svona korter í jól. En
aldrei að vita nema ég finni eitthvað nýtt fyrir
þessi jól. Mig langar mjög mikið núna í eina
silkiskyrtu frá Milla Snorrason.“
Fallegasta jólaskraut sem þú átt: „Ég var
reyndar að fá mjög fallegan jólakertastjaka frá
systur minni hannaðan af Finnsdóttur. Hann
er ekki kominn í notkun ennþá, en ég hlakka til
að stilla honum upp þegar mér finnst vera orð-
ið nógu jólalegt. Annars skreyti ég venjulega
ekki mikið, en ég er mikið fyrir kósí stemningu,
seríur, kertaljós og svo finnst mér líka að verði
að vera eitt alvörujólatré. Eða a.m.k. greni-
greinar, til þess að fá lyktina.“
Hvenær og hvar kaupir þú jólagjafir fyrir vini
og fjölskyldu? „Ég byrja mjög oft með ein-
hverjar háleitar hugmyndir um að búa bara til
allar jólagjafirnar, hafa þær persónulegar,
skemmtilegar og hagstæðar. En sannleikurinn
er sá að ég lendi oftast í því að vinna mikið al-
veg fram að jólum og hef því engan tíma í
svona auka dútl og enda með að kaupa gjaf-
irnar allar á Þorláksmessu. En í fyrra var það
bara PyroPet-hreindýrið á línuna. Einfalt og
allir voða sáttir!“
Besti hátíðarmatur sem þú færð: „Ég er
venjulega ekki mikil kjötæta, en síðustu jól hef
ég fengið dýrindis hreindýralund hjá mömmu
og pabba á jólunum, með rauðvínslagaðri sósu,
brúnuðum kartöflum, waldorf-salati og rauð-
káli. Mig dreymir um það stundum, það er svo
gott! Svo býr kærastinn minn líka til æðislega
gott „mushroom wellington“.“
Uppáhaldsjólamynd: „A Charlie Brown
Christmas – ég átti þessa mynd á spólu þegar
ég var lítil. Hún vekur alltaf upp mikla jóla-
nostalgíu. Og svo er tónlistin í henni líka frá-
bær, djasstónlist samin af Vince Guaraldi. Allir
krakkarnir í bænum eru að setja
upp jólaleikrit og allir í mega
jólafíling, nema Charlie
Brown. Hann er
hrikalega þunglynd-
ur því hann skilur
ekki tilganginn
með þessu öllu
saman og finnst
jólin bara ein
allsherjar inn-
antóm markaðs-
setning.“
Er eitthvað ákveðið
á jólagjafalistanum?
„Ég veit aldrei í hvað
mig langar í jólagjöf.
Mér finnst þetta fal-
legur siður að velja gjöf
fyrir þann sem þér
þykir vænt um og
finnst því skemmtileg-
ast að láta koma mér
á óvart. Falleg hönn-
un gleður mig alltaf
mjög mikið, hvort
sem það er fatn-
aður, skart eða eitt-
hvað fyrir heim-
ilið.“
Besta jólagjöf
sem þú hefur
fengið? „Ég og
kærastinn gáfum hvort öðru ferð til
Ástralíu í fyrra til að geta varið jólunum með
litlu systur minni sem bjó þar með manninum
sínum. Það var alveg ógleymanleg ferð og
mjög skemmtilegt að upplifa jól um há-
sumar í 40 stiga hita!“
Jólasmákaka eða konfekt; hvað er í
eftirlæti? „Uppáhaldssmákakan mín er sú
sem er nýbökuð, volg úr ofninum. Hvaða
tegund sem er.“
Jólafagurkerinn
„Uppáhaldssmá-
kakan mín er sú
sem er nýbökuð“
Vöruhönnuðurinn Þórunn Árnadóttir er jólabarn og hlakkar til að njóta
hátíðarinnar með vinum og fjölskyldu. Hún var spurð spjörunum úr um
jólahefðir og annað sem tengist jólunum og í ljós kom að grenigreinar og
volgar smákökur eru henni ómissandi um jólin.
Guðný Hrönn | gudnyhronn@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Þórunni langar í
silkiskyrtu frá Milla
Snorrason.
„Svo
finnst mér
líka að
verði að vera eitt
alvörujólatré.“
Öll 80s-börn
ættu að
kannast við
hljómsveit-
ina Wham!
Þórunn Árna-
dóttir vöru-
hönnuður.
A Charlie
Brown
Christmas
er í sérstöku
uppáhaldi
hjá Þórunni.
Hönnun
Þórunnar.
❄
Þessi kertastjaki
prýðir heimili
Þórunnar.
4 Jólablað Morgunblaðsins