Morgunblaðið - 21.12.2016, Blaðsíða 97
Jólablað Morgunblaðsins 97
Skref fyrir skref
Trjágreinar
úr görðum vina
í stóru hlutverki
Brynja Bárðardóttir, eigandi blómabúðarinnar
Möggubrá á Suðurlandsbraut, setti saman
tvær sætar jólaskreytingar fyrir jólin og kennir
hér lesendum að gera slíkt hið sama. Trjá-
greinar spila stórt hlutverk í skreytingum
Brynju, en þær fékk hún úr görðum vina sinna.
Guðný Hrönn | gudnyhronn@mbl.is
Aðventuskreyting
„Fyrsta skref er að saga
trjágreinar niður í heppilega
stærð. Þær eru svo festar
saman með smá lími og
snæri eða vír. Límið er svo
hulið með mosa. Athugið að
gott er að gera ráð fyrir
„sæti“ eða palli fyrir dádýrið
þegar greinarnar eru festar
saman. „Kertasætin eru fest
með lími en eins má bora göt
fyrir þau,“ segir Brynja, sem
notar alltaf svokölluð kerta-
sæti fyrir sprittkerti vegna
brunahættu sem getur ann-
ars myndast. „Dádýrið,
könglar og smá skraut er svo
fest með lími. Að lokum er
smá gervijólasnjór settur yf-
ir allt saman.“
Jólatré
Brynja byrjaði á að finna heppilega
skál eða pott undir jólatréð, sjálf
valdi hún skál sem unnin er úr
kókoshnetu og er seld í Möggubrá.
„Byrjað er að klippa grófa trjágrein
niður í heppilega stærð fyrir stofn
trésins. Síðan eru fíngerðari greinar
klipptar niður í rétta stærð og þeim
raðað upp stóru greinina og þær
festar með vír. Þegar toppnum er
náð er endi vírsins festur mjög vel
og mosi eða snæri sett yfir til
skrauts. Þá er settur þurr „oasis“ í
skálina og hann festur með lími.
Neðsta hluta trésins er stungið í
„oasis“-kubbinn og tréð fest með
lími. Mosi er settir yfir kubbinn. Að
lokum er smá skraut sett hér og þar
og auðvitað er skvetta af „jólasnjó“
sett yfir allt saman.“
Það tók Brynju
um 30 mínútur
að búa til hvora
skreytingu.
Morgunblaðið/Eggert
Dádýrið, kertasætin
og litla skrautið fæst í
blómabúð Brynju.
Ómissandi í jólamatinn
Villijurtir
Frábært á lambalærið
um jólin.
Kryddleggið í 4 -5 daga.
Eðal-kjúkllingakrydd
Ein vinsælasta krydd-
blanda Pottagaldra frá
upphafi, hentar einnig á
steiktan fisk.
Kalkúnakrydd
Þúsundir íslendinga
nota Kalkúnakrydd í
fyllinguna í kalkúninn um
jólin, hentar einnig
í kjúklingafyllingu.
Eðalsteik- og grillkrydd
Frábær á lambalundir,
nautasteikina og margt
fleira.
Húsið ilmar á meðan kjötið
er marinerað.
Arabískar nætur
7 krydda blandan frá
Líbanon. Notið á græn-
meti, kjúkling, lambakjöt
og svínakjöt.
Frábært á hnettusteikina
Töfrakrydd
Dásamleg kryddblanda í
pottréttinn og á afganginn
af lambalærinu.
Kryddin frá okkur eru ómissandi í eldhúsið hjá ykkur