Morgunblaðið - 21.12.2016, Blaðsíða 70
F
yrrverandi fót-
boltakappinn
David Beckham
fór alla leið í jólagjafa-
innkaupunum árið 2005
þegar hann gaf eigin-
konu sinni, tísku-
hönnuðinum Victoriu
Beckham, nokkrar rán-
dýrar gjafir sem erfitt
er að toppa. Fyrsta
gjöfin mun hafa verið
Hermes-taska skreytt
demöntum sem kostaði
sem nemur um 11,4
milljónum króna. Því
næst færði hann henni
sérútbúinn Rolls Royce-
bíl sem metinn er á um
57 milljónir króna. Og
að lokum var það
Boucheron-hálsmen
með demöntum og
rúbínum sem mun hafa
kostað um 273 milljónir.
Algjört lágmark.
Klikkaðar jólagjafir
Góss upp á
hundruð milljóna
AFP
Beckham-
hjónin skortir
ekki fé.
70 Jólablað Morgunblaðsins
Litla Jólabúðin
Laugaveg 8, Rvk. S: 552 2412
Jólin byrja
hjá okkur
mikið úrval af fallegri gjafavöru
Komdu í heimsókn
Opið alla daga til jóla
E
ins og áður sagði
kveðst Hilda vera
jólabarn. „Já, mér
finnst fátt huggu-
legra en að njóta að-
ventunnar og undir-
búa jólin með vinum og fjölskyldu.
En ég er kannski minna fókuseruð á
aðfangadagskvöldið sjálft eftir því
sem ég eldist. Það mikilvægasta
finnst mér vera að elda góðan mat
og eiga svo ljúfa stund eftir matinn
saman, oftast lesum við bækur sem
hafa leynst í pökkunum. Þetta eru
svo fyrstu jólin mín eftir að ég hætti
að borða kjöt svo ég hlakka til að
elda eitthvað alveg spes í ár,“ út-
skýrir Hilda spurð út í jólahald fjöl-
skyldunnar.
Kaupir þú þér alltaf
nýtt dress fyrir jólin?
„Nei ekkert endilega og ég hef
ekki enn verið étin af neinum ketti.
Ég er t.d. búin að vera í sama kjóln-
um á aðfangadagskvöld síðustu tvö
jól en það er líka rosalega jólalegur
rauður silkiflaueliskjóll sem ég
hannaði fyrir Milla Snorrason jólin
2014.“
Eftirminnilegasta
jóladressið þitt:
„Mamma mín er algjör listakona í
sér og hefur saumað marga jólakjól-
ana á mig og systur mína. Sá eftir-
minnilegasti er sennilega rosalega
80’s-legur kjóll úr kóngabláu tafti
sem hún saumaði þegar ég var sjö
eða átta ára. Pilsið var svo stíft að
það stóð nánast út í loftið og hann
var með háum kraga. Svo var ég
með hliðartagl og í hvítum blúndu-
sokkum. Ég man að mér fannst ég
hrikalega mikill töffari.“
Hefur þú staðið að einhverju
minnisstæðu tískuslysi á jólunum?
„Já, að sjálfsögðu þegar ég horfi
til baka en á sínum tíma gekk þetta
allt saman upp á fullkominn hátt og
það er það sem skiptir máli. Ég vil
endilega að lífið sé stútfullt af tísku-
slysum, annars er ekkert gaman.
Auðvitað má svo líka færa rök fyrir
því að tískuslys séu í rauninni ekkert
til.“
Ertu búin að ákveða í hverju þú
verður þessi jólin?
„Já, ég ætla að vera í fína bláa
silkikjólnum úr nýju línunni minni.
Hann lætur mér eiginlega líða svip-
að og gamli blái 80’s-kjóllinn gerði á
sínum tíma!“
Hvernig er drauma-jólakjóllinn/
dressið?
„Blái kjóllinn er draumakjóllinn
minn, engin spurning og hann mun
fást í Kiosk fyrir jólin.“
Besta tískujólagjöf sem þú hefur
fengið:
„Það er jafntefli milli LA Gear
skópars með neonbleikum reimum
og FILA peysu í tíunda bekk.“
Leggur þú einhverja áherslu á
förðun yfir jólin?
„Nei, ég legg bara eiginlega aldrei
neitt sérstaka áherslu á förðun og
fíla mjög náttúrulegt lúkk. Ég set í
mesta lagi aðeins meiri varalit á mig
og finnst ég þá vera voðalega hátíð-
leg.“
Klæðist drauma-
kjólnum þessi jólin
Fatahönnuðurinn Borghildur Gunnarsdóttir, eða Hilda eins og hún er
gjarnan kölluð, er jólabarn að eigin sögn. Hún klæddist rauðum silkiflauels-
kjól síðustu tvö ár en þetta árið verður hún í bláum kjól sem minnir örlítið á
80’s-kjólinn sem hún klæddist þegar hún var um átta ára gömul.
Guðný Hrönn | gudnyhronn@mbl.is
Ljósmynd/Rut Sigurðardóttir
Morgunblaðið/Ófeigur
Jóladressið
„Pilsið var svo stíft
að það stóð nánast
út í loftið og hann
var með háum kraga.“
❄
Blái silkikjóll-
inn sem Hilda
mun klæðast
um jólin.
Borghildur hann-
ar undir merkinu
Milla Snorrason.