Morgunblaðið - 21.12.2016, Blaðsíða 106
106 Jólablað Morgunblaðsins
É
g er algjör jólaálfur
og byrja að undirbúa
jólin snemma í sept-
ember. Um mánaða-
mótin september/
október er ég svo
yfirleitt búin að kaupa allar jólagjafir,
pappír, borða og búin að gera jóla-
kortin,“ segir Þórunn. Hún segist nú
samt reyna að halda í sér og bíða með
skreytingarnar þar til október renn-
ur upp. Gjafainnkaup og innpökkun
klárar Þórunn svo yfirleitt tveimur
vikum fyrir jól. „Ég bara elska þenn-
an árstíma og nýt alls í kringum
hann.“
Spurð um hefðir og venjur þegar
kemur að kransagerð segist Þórunn
alltaf fara sínar eigin leiðir frá ári til
árs. „Ég hef alltaf gert minn eigin
krans og er aldrei með sama útlit á
kransinum fyrir utan eitt sem er al-
veg heilagt og það eru kertin. Þau
eru alltaf hvít.“ Þórunn segir jólatísk-
una einstaklega fallega í ár. „Mér
finnst ég sjá mikið af jólaskreyting-
um með hvítum kertum, könglum,
greni og margir setja tölustafi á kert-
in. En svo er þetta auðvitað allt
smekksatriði og það er margt mjög
fallegt í boði. Þemað hjá mér í ár er
hvítt, svart, lifandi greni og kopar-
borðar með smá glimmeri. Einfalt og
fallegt.“ Þórunn segist skoða Pinter-
est mikið til að fá sínar hugmyndir en
vinkonur hennar í versluninni Magn-
oliu veiti henni einnig mikinn inn-
blástur.
Þórunn segist ekki eiga sér neitt
sérstakt uppáhaldsjólaskraut en
stjörnur af öllum stærðum og gerð-
um séu í miklu dálæti hjá sér. „Svo er
ég ilmkertasjúk og á alltaf til greni-
ilminn frá Bath and body works, og
jólasápurnar frá Williams-Sonoma.“
Þar sem Þórunn er dugleg að
skipta út jólaskrauti leikur mér for-
vitni á að vita hvað verður um jóla-
skrautið sem hefur skilað sínu hlut-
verki. „Ég hef vanið mig á að gefa
það, ég fór til dæmis með mikið magn
í Rauða krossinn í fyrra.“
Ein hefð er þó stór hluti af undir-
búningi jólanna á heimili Þórunnar
og fjölskyldu en það er að fara saman
í Haukadalsskóg og fella þar drauma-
tréð. „Við veljum annað hvort stafa-
furu eða blágreni og erum yfirleitt
búin að koma því skreyttu upp tveim-
ur vikum fyrir jól.“ Þórunn blandar
saman bæði nýju og gömlu skrauti á
tréð, aðallega í silfri, hvítu og gráu.
„Ég hef safnað mér ýmsu á tréð á
ferðalögum erlendis, því til viðbótar
finnst mér einstaklega fallegt að vera
með mikið magn af seríum. Síðustu
jól var tréð skreytt þrjú hundruð
perum.“ En hvað setur punktinn yfir
i-ið þegar kemur að jólahaldinu hjá
Þórunni? „Allt, en toppurinn er án
efa þegar ég heyri kirkjuklukkurnar í
Bústaðakirkju hringja inn jólin; fæ
gæsahúð. Og svo auðvitað dásamlegi
jólamaturinn hennar mömmu.“
Toppurinn að
heyra í kirkju-
klukkunum
Þórunn Högnadóttir, ritstjóri tímaritsins Home
Magazine og einn fremsti fagurkeri landsins,
veigrar sér ekki við að viðurkenna aðdáun sína á
jólunum og metnað sinn í jólahaldi heimilisins.
Kolbrún Pálína Helgadóttir | kolbrun@mbl.is
Morgunblaðið/Ófeigur
Mæðgurnar þær
Þórunn og Leah Mist
eru svo sannarlega
tilbúnar að taka á
móti jólunum.
Þemað í kransa-
gerðinni var einfalt
hjá Þórunni í ár en
útkoman er ein-
staklega falleg.
„Ég hef alltaf gert
minn eigin krans
og er aldrei með
sama útlit á kransinum fyrir
utan eitt sem er alveg heil-
agt og það eru kertin. Þau
eru alltaf hvít.“
❄